Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Qupperneq 67
ÞING ALÞJÓÐASAMBANDS
SVEITARFÉLAGA HALDIÐ
I' BANDARIKJUNUM í JÚNÍ
Þing Alþjóðasambands sveitarfé-
laga, hið 25. í röðinni, verður haldið í
bænum Columbus í Ohio fylki í
Bandaríkjunum dagana 21. — 25. júní
næstkomandi.
Á þinginu verður rætt um fyrirheit
níunda áratugarins, hlutverk sveitar-
félaga um heim allan á tímum verð-
bólgu og hárra vaxta, en gengið virð-
ist út frá því, að framundan séu
mögru árin i búskap sveitarfélag-
anna, eftir þenslu seinustu áratuga.
Efni ráðstefnunnar verður rætt í
átta umræðuhópum. í þeim fyrsta
verður fjallað um orkumál og orku-
sparnað, í öðrum hópnum um hús-
næðis-, byggingar- og skipulagsmál, í
þeim þriðja um samvinnu einkaaðila
og opinberra aðila um endurbygg-
ingu gamalla hverfa eða bæjarhluta.
Sá fjórði ræðir hagnýtingu framfara á
sviði vísinda og tækni á sviði sveitar-
stjórnarmálefna, m. a. í samgöngum,
í þjónustustofnunum og á sviði
tölvutækni. Fimmti hópurinn ræðir
þátttöku kvenna í sveitarstjórnar-
störfum, sá sjötti um þróun almenn-
ingsvagnaþjónustu og breytt viðhorf
gagnvart henni, sá sjöundi um
æskulýðsmál og sá áttundi um hina
ýmsu þætti öldrunarmála, s. s. þátt
sjálfboðaliða í heimaþjónustu.
BYGGÐAVANDI EVRÓPSKRA EYJA
SB
Sveitar- og héraðsstjórnarþing
Evrópuráðsins hefur boðað til ráð-
stefnu um byggðavanda evrópskra
eyja á Tenerife á Kanaríeyjum dag-
ana 7.—10. april næstkomandi.
Undirbúningsnefnd ráðstefnunnar
undir forsæti Mota Amaral, sem er
formaður sjálfsstjórnar Azoreyja,
boðar sérstaklega á ráðstefnu þessa
fulltrúa sveitar- og héraðsstjórna á
eyjum við strendur Evrópu. Markmið
hennar er að ræða sérþarfir þessara
eyja og marka stefnu í málefnum
þeirra. Ráðamönnum eyjanna gefst
þarna tækifæri til að marka sam-
eiginlega afstöðu gagnvart stefnu
hinna ýmsu Evrópu-stofnana, s. s.
Evrópuráðsins, Efnahagsbandalags-
ins og fleiri aðila, sem m. a. fara með
yfirstjórn byggða- og samgöngumála
í álfunni.
NORRÆN RÁÐSTEFNA
UM SKIPULAGSMAL
Norræn ráðstefna um skipulagsmál
(Nordisk byplanmode 1981) verður
haldin í Hanstholm á Jótlandi dag-
ana 25.-27. maí n. k.
Ráðstefnur sem þessi hafa verið
haldnar með þriggja til fimm ára
millibili frá árinu 1960 og hverju
sinni verið fjallað um eitt aðalefní í
fyrirlestrum og umræðuhópum auk
þess sem þátttakendum gefast ýmis
tækifæri til kynnisferða og skoðana-
skipta.
Að þessu sinni beinast sjónir að
smærri einingum í skipulagi, jafnt
skipulagsmálefnum litilla sveitar-
félaga sem afmörkuðum þáttum um-
hverfismótunar innan stærri bæja.
Þátttakendur í þessum ráðstefnum
eru arkitektar, sveitarstjórnarmenn
Bærinn Columbus í Ohio er sagður
spegilmynd af bandarískum bæjum
og er mikið notaður til að gera þar
skoðanakannanir og markaðskann-
anir. Merkilegir sögustaðir eru i
næsta nágrenni, og gefst þátttakend-
um kostur á skoðunarferðum til
margra þeirra í tengslum við þing-
haldið.
Skrifstofa sambandsins veitir nán-
ari upplýsingar um þátttökugjald og
ferðakostnað. Verði sveitarstjórnar-
menn á ferðinni í Bandaríkjunum
síðari hluta júnímánaðar, ættu þeir
að gera skrifstofu sambandsins kunn-
ugt um það.
Á ráðstefnunni verða lagðar fram
skýrslur um ýmis hugðarefni framá-
manna á Azoreyjum, á Madeira og á
Kanaríeyjum, og þess er óskað, að
ábendingar berist frá fleirum um
hugsanleg sameiginleg hagsmunamál
ey-héraða Evrópu.
Sveitarstjórnarmenn, sem kynnu
að leggja leið sína til Kanaríeyja um
þær mundir, sem ráðstefnan er hald-
in, ættu að gera skrifstofu sambands-
ins kunnugt um það hið fyrsta. Hún
veitir einnig nánari upplýsingar um
ferðamöguleika og kostnað við þátt-
töku í ráðstefnunni.
og embættismenn, sem að skipulags-
málum starfa.
Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 25.
marz n.k. til Dansk Byplanlabora-
torium, Tordenskjoldsgade 10, 1055
Kobenhavn K.
Fulltrúi Arkitektafélags Islands í
undirbúningsnefnd ráðstefnunnar er
Hrafnkell Thorlacius, Laugavegi 96,
sími 17277, og veitir hann frekari
upplýsingar.
SVEITARSTJORNARMÁL