Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 5

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 5
FORUSTUGREIN Yfirtaka sveitarfélaga á því verkefni að greiða laun til kennara og skólastjórnenda leiðir enn frekar til þess að hægt verður að endurskipuleggja yfirstjórn skólamála og skólahverfi og auka á samvinnu skólanna til hags- bóta fyrir nemendur. Slík hagræðing þarf ekki að leiða til þess að kennslustöðum fækki þótt markmiðið sé í sjálfu sér ekki fjöldi skóla heldur góðir skólar og markvisst og faglegt skólastarf, sem börnin eiga auðvelt með að nýta sér, m.a. með tilliti til fjarlægðar frá heimili til skóla. Breytt verkaskipting ríkis og sveitarfélaga varðandi rekstur grunnskólanna er eitt stærsta verkefni er sveit- arfélögin hafa staðið frammi fyrir í langan tíma. Málið er vandasamt bæði hvað varðar samninga við ríkið og stéttarfélög kennara og vegna misjafnra aðstæðna sveitarfélaganna. Tekjutilfærsla frá ríki til sveitarfélaga er forsenda þess að verkefnatilfærslan geti átt sér stað. Ríkisstjórnin hefur nú lýst því yfir að tekjur verði fluttar frá ríki til sveitarfélaga þannig að þau geti tryggilega staðið undir kostnaði vegna nýrra verkefna. Jafnframt er fyrirsjáanlegt að koma verður til víðtækra jöfnunar- aðgerða til að tryggja skólastarf í fámennari sveitarfé- lögum. Sveitarstjórnarmönnum og foreldrum ásamt kennur- um er best treystandi til þess að standa vörð um hag barna varðandi skólastarf. Samband íslenskra sveitar- félaga væntir þess að við þá vinnu, sem framundan er við undirbúning þess að sveitarfélögin yfirtaki allan rekstur grunnskólanna, geti þau átt góða samvinnu við kennara, skólastjórnendur og foreldra. Þórður Skúlason ÞJÓÐHAGSSTOFNUN vekur athygli á ritum síniun um sveitarstjómarmál og almenn efhahagsmál Sveitarstj órnarmál Þjóðhagsstofnun hefur nýlega gefið út ritið Búskapur hins opinbera 1980-1991 í ritinu er meðal annars að finna yfirlit um tekjur, útgjöld og afkomu hins opinbera. Birt eru sundurliðuð yfirlit fyrir ríkissjóð og sveitarfélögin í heild. Fjallað er um umfang hins opinbera í þjóðarbúskapnum og í því skyni stuðst við mismunandi mælikvarða. Gerð er grein fyrir skuldum og lánastarfsemi hins opinbera og sýndur samanburður á umsvifum hins opinbera á íslandi og í öðrum aðildarríkjum OECD. Ritið er gagnlegt fyrir alla sveitarstjórnarmenn, verðandi sveitarstjórnarmenn og áhugafólk um sveitarstjórnarmál. Almenn efnahagsmál Á hverju vori gefur stofnunin út 50-60 síðna rit, Þjóöarbúskapinn, þar sem lýst er framvindu efnahagsmála á liðnu ári og horfum á líðandi ári. Sögulegt yfirlit hagtalna kemur út á nokkurra ára fresti þar sem hagþróuninni undanfarna ára- tugi er lýst í tölum. Síðasta rit kom út í júní 1993. Efni ritsins er einnig fáanlegt á disklingi. Annáll efnahagsmála lýsir í tímaröð helstu aðgerðum stjórnvalda og atburðum á sviði efna- hagsmála. Þetta rit kom út í janúar 1993 og nær yfir tímabilið 1988-1992. Þá gefur stofnunin út stutta Frétt 5 til 10 sinnum á ári um þaö sem efst er á baugi hverju sinni og Hagvísa mánaðarlega. Auk þess gefur stofnunin út ýmsar atvinnuvega- og þjóðhagsreikningaskýrslur. Ritin eru til sölu hjá Þjóðhagsstofnun og í afgreiðslu Seðlabankans og er verð þeirra á bilinu 500 til 700 kr. hvert rit. Einnig stendur til boöa föst áskrift að öllum útgáfunum eða hluta þeirra. ÞJOÐHAGSSTOFNUN Kalkofnsvegi I 150 REYKJAVÍK Sími: 91-699500 Fax: 91-626540

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.