Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Blaðsíða 38

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Blaðsíða 38
SAMEINING SVEITARFÉLAGA Uppbygging stjómkeifis í sameinuðu sveitaifélagi við Eyjafjörð í nokkrum umdæmanna, þar sem kosið verður um sameiningu sveitar- félaga 20. nóvember, hafa verið sett- ar fram og ræddar hugmyndir um uppbyggingu stjórnkerfis í samein- uðu sveitarfélagi sem yrði að nokkru breytt frá því sem almennt hefur verið í sveitarfélögum. Eyjafjöröur Nefnd, sem starfað hefur á vegum héraðsnefndar Eyjafjarðar frá því í febrúar sl. urn sameiningu sveitarfé- laga í Eyjafirði, hefur þannig gert tillögur um uppbyggingu stjórnkerfis og fleira. Nefndin hefur kynnt þessar hugmyndir sínar á sameiginlegum l'undi sveitarstjórnanna við Eyjafjörð 19. október og síðan sent þær á öll heimili í umdæminu í greinargerð. Hugmyndir nefndarinnar um upp- byggingu stjórnkerfis sameinaðs sveitarfélags í Eyjafirði fara hér á eftir að nokkru í endursögn tímaritsins. Æðsta stjórn, rekstrarsvið og nefndir Skipta má stjórnkerfi sveitarfélags í tvo hluta. Annars vegar er um að ræða lýðræðislega kjörna fulltrúa í sveitarstjórn og nefndum hinna ýmsu málaflokka. Þetta er hið stefnumark- andi vald sveitarfélagsins. Hins veg- ar er um að ræða embættismanna- kerfi og rekstrarsvið sveitarfélagsins, en það skal fara með daglega stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun kjörinna fulltrúa hverju sinni. Hér er fjallað um þessa tvo hluta stjórn- kerfisins í senn. Sveitarstjórn Sveitarstjórn fer með æðstu stjórn sveitarfélags. Samkvæmt 11. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 skulu kosnir 11-15 fulltrúar í stjórn sveit- arfélags með þann íbúafjölda sem yrði í sameinaða sveitarfélaginu. Kosning færi fram samkvæmt 111. kafla sveitarstjórnarlaga. Fundir yrðu haldnir að jafnaði einu sinni í mánuði í samræmi við 48. gr. sveit- arstjórnarlaga. Sveitarstjórn yrði stefnumarkandi fyrir sveitarfélagið. Byggöarráð Byggðarráð heyri beint undir sveitarstjórn. Það yrði kosið skv. 55. gr. núgildandi sveitarstjórnarlaga og hafi 5-7 fulltrúa sem væru jafnframt aðalfulltrúar í sveitarstjórn. Fundir byggðarráðs yrðu allt að vikulega. Hlutverk byggðarráðs er líkt og bæj- arráðs. Það fer með æðsta vald sveitarfélags milli funda sveitar- stjórnar og getur t.d. skuldbundið sveitarfélagið innan ramma fjárhags- áætlunar (56. gr. sveitarstjórnar- laga). Framkvæmdastjóri Gert er ráð fyrir að framkvæmda- stjóri sveitarfélagsins heyri undir sveitarstjórn og byggðarráð og sé yfirmaður daglegs rekstrar þess. Ráðning hans og starfssvið fer að öðru leyti eftir 69.-71. gr. núgildandi sveitarstjórnarlaga. Svæðisnefndir í 58. gr. núgildandi sveitarstjórn- arlaga segir svo: „Sveitarstjórn getur kosið nefnd til að fara með afmörkuð málefni í hluta sveitarfélags. Akveða má í samþykkt um stjórn sveitarféiagsins að slíka nefnd skuli kjósa í almenn- um kosningum í sveitarhlutanum. “ Lagt er til að þessi heimild verði nýtt og kosnar verði í almennum kosningum þriggja til fimm manna svæðisnefndir á nokkrum svæðum í sameinaða sveitarfélaginu. Jafnframt kemur til greina að sveitarstjórn tilnefni formann svæð- isnefndar en aðrir fulltrúar verði kosnir í almennum kosningum. Svæðisnefndir yrðu settar á stofn þar sem fjarlægð frá aðalþjónustu- kjarna eða aðrar aðstæður krefjast þess. Hlutverk svæðisnefnda yrði fyrst og fremst að veita sveitarstjórn og byggðarráði ráðgjöf og umsögn varðandi málefni viðkomandi svæða. Sveitarstjórn yrði heimilt að ráða til starfa með svæðisnefnd sérstakan starfsmann, svokallaðan þjónustu- stjóra, eftir því sem starfsumfang á viðkomandi svæði gæfi tilefni til. Hlutverk þjónustustjóra yrði m.a. að sitja l'undi svæðisnefndar og vera tengiliður hennar við sveitarstjórn. A svæðum þar sem ekki yrði talin þörf á að ráða þjónustustjóra gæti formaður svæðisnefndar verið tengiliður hennar við sveitarstjórn. Nefndir einstakra málaflokka Lagt er til að einstakir málaflokk- ar, sem sveitarfélagið hefur umsjón með, skiptist í fimm meginsvið. 284
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.