Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Blaðsíða 48
ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST
Greinarhöfundur, Loftur Þorsteinsson oddviti, flytur ræöu viö vígslu íþróttahússins hinn 17. janúar sl.
Nýtt íþróttahús í Hrunamannahreppi
Loftur Þorsteinsson oddviti
Langþráðu takmarki var náð þegar
nýtt íþróttahús var tekið í notkun að
Flúðum í Hrunamannahreppi hinn 17.
janúar sl.
Forsaga byggingarframkvæmd-
anna er orðin býsna löng því skömntu
eftir 1970 var farið að ræða þörfina
fyrir íþróttahús og nokkru fyrir 1980
var fyrst sótt um fjárveitingu til
byggingarframkvæmda. Mennta-
málaráðuneytið átti lögum samkvæmt
að standa undir stofnkostnaði á móti
sveitarfélaginu þar sem að mestu var
um skólamannvirki að ræða. Skiln-
ingur virtist vera hjá ráðamönnum á
þörf okkar fyrir íþróttahús þótt illa
gengi að fá samþykki ríkisins fyrir
fjárveitingu til að hefja framkvæmdir.
Þó kom fljótlega undirbúningsfjár-
veiting kr. 5.000,- sem þýddi að vísu
það eina að verkið væri samþykkt
einhvern tíma í næstu framtíð. Var
þessum umsóknum síðan fylgt eftir
með árvissri heimsókn til fjárveit-
inganefndar Alþingis hvert haust en
aldrei hækkaði upphæðin, sent veitt
var, enda taldist okkur til að við ætt-
um tíu eða tólf fimmþúsundkalla
þegar loks fékkst fjárveiting úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga þegar sá sjóð-
ur tók við þvf hlutverki að fjármagna
stofnframkvæmdir eftir breytt verka-
skipti ríkis og sveitarfélaga.
Eitt atriði í þessari undirbúnings-
vinnu er vert að drepa á, það eru
stærðarmörk sem sett eru af hálfu hins
opinbera við byggingar, svokallaðar
normtölur. Samkvæmt þeim máttum
við ekki byggja nema litlu stærri
íþróttasal en þann sem þegar var til í
félagsheimilinu. Það var alltaf
draumur okkar að geta byggt íþrótta-
hús af fullri stærð, það er að vera með
löglegan handboltavöll. Félagsheimili
Hrunamanna hefur vissulega þjónað
vel til íþróttaiðkana síðan það var
byggt en þar hafa, eins og í öðrum
fjölnota húsum, verið ýmis vandamál
sérstakiega varðandi geymslu og
uppsetningu á íþróttatækjum enda
hefur raunin verið sú að tæki til
íþróttaiðkana hafa nánast ekki verið
til hjá okkur. Einnig hefur þrátt fyrir
mjög góðan vilja húsráðenda í félags-
294