Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Blaðsíða 33

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Blaðsíða 33
SAMEINING SVEITARFÉLAGA Framkvœmdastjórn VSI um sameiningu sveitarfélaga: „Löngu tímabær hagræðing í skipu- lagi opinberrar þjónustu“ Vinnuveitendasamband íslands hefur látið Sveitarstjórnarmálum í té svofellda samþykkt sem fram- kvæmdastjórn þess gerði á fundi í september um sameiningu sveitarfé- laga: „Framkvœmdastjórn Vinnuveit- endasambands Islands styður ein- dregið tillögur um sameiningu sveitarfélaga og telur að með þeim hætti geti löngu tímabœr hagrœðing í skipulagi opinberrar þjónustu orð- ið að veruleika. Fækkun og stœkkun sveitarfélaga fylgir ekki einasta sparnaður í stjórnsýslu heldur einnig í rekstri og fjárfestingu, sem lœkkað getur kostnað atvinnulífs og almennings um allt land. Sameining sveitarfé- laga leiðir til stœkkunar atvinnu- svœða og sveigjanlegri vinnumark- aðar, þar sem skammtímahagsmunir einstakra sveitarfélaga standa ekki í vegi nauðsynlegrar hagrœðingar í atvinnulífinu. Samnýting opinberrar þjónustu getur orðið virkari og uppbygging samgöngukerfisins - hafna, flugvalla og vega - getur tekið mið af sameiginlegum hags- munum heilla atvinnusvœða og þannig aukið samkeppnishœfni ís- lensks atvinnulífs. Tekjur sveitarfélaganna hafa vaxið gríðarlega síðustu ár. Frá 1985 hefur raungildi tekna sveitar- félaganna aukist um 25%, eða sem svarar rúmum 7 þúsund krónum á mánuði hjá hverri fjögurra manna fjölskyldu. Þrátt fyrir þessa einstöku tekjuþróun eiga minni sveitarfélög í vaxandi etfiðleikum með að sinna þjónustuhlutverki sínu og þau stœrri safna skuldum. Þeim vanda verður ekki lengur mœtt með hœkkun gjalda á einstaklinga og atvinnufyrirtœki. Þar er meira en nóg að gert. Vaxandi samkeppni heima og er- lendis knýr á um það að fyrirtœkin lœkki framleiðslukostnað vilji þau halda viðskiptum. Frammistaða þeirra rœður því hvert atvinnustigið verður á nœstu árum. Alþjóðleg samkeppni fer harðnandi, hvort heldur er varðar sölu á vörum eða þjónustu og íslensk fyrirtæki þurfa á öllu að halda til að eiga möguleika íþessari samkeppni. Þess vegna eru það jafnt hagsmunir fyrirtœkja sem starfsmanna þeirra að ýtrustu hag- kvœmni verði gœtt í opinberri þjón- ustu. Skipulagsbreyting á borð við stœkkun sveitarfélaga miðar að því og stuðlar þannig að aukinni sam- keppnishœfni fyrirtœkja um land allt. Vinnuveitendasamband Islands treystir því að embœttismenn sveit- arfélaga og á annað þúsund sveit- arstjórnarmenn leggi þessu gríðar- lega hagsmunamáli lið, vinni að framgangi tillagna um sameiningu sveitarfélaga og stœkkun atvinnu- svœða, líti til hagsmuna atvinnulífs og heimila og láti hugsanlegar breytingar á eigin stöðu ekki standa í vegi framfara. Atvinnuhorfur og afkoma landsmanna á komandi árum er undir því komin að einskis verði látið ófreistað til að draga úr óhagkvœmni og kostnaði á öllum sviðum þjóðlífsins. I kosningunum 20. nóvember nœstkomandi verða greidd atkvœði um það hvort óhagkvœmt skipulag eigi að halda niðri lífskjörum og at- vinnustigi eða hvort sveitarfélögin eigi að þróast til nútímalegra og hagkvœmara skipulags. Úrslit þeirra munu því eiga stóran þátt íað ákveða lífskjör á Islandi á komandi árum. “ í frétt frá VSÍ, sem fylgdi ályktun framkvæmdastjórnarinnar, segir að hún telji tillögurnar um sameiningu sveitarfélaga, sem kosið verður um 20. nóvember, eitthvert djarfasta framlag síðustu ára til að gera opin- beran rekstur og þjónustu skilvirkari og ódýrari. Frá sjónarhóli atvinnu- lífsins felist kostirnir í stærri at- vinnusvæðum, bættri þjónustu við atvinnulífið og nýjum forsendum fyrir samvinnu og samruna fyrir- tækja. Sameining sveitarfélaga stuðli þannig að því að gera atvinnufyrir- tækin hæfari til að standast sam- keppni, framleiða, selja og veita at- vinnu. 279
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.