Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Síða 9
KYNNING SVEITARFELAGA
Dvalarheimilið Hjallatún í Vik. Ljósm.
Hafsteinn Jóhannesson.
þætt. Annars vegar geta aldraðir einstaklingar nú dvalið
mun lengur í sinni heimabyggð og hins vegar er þetta
töluverð lyftistöng fyrir atvinnulíf staðarins og þá sér-
staklega fyrir konur.
Heimaþjónusta
Heimaþjónusta er rekin á vegum hreppsins og hefur
verið hægt að verða við óskum allra sem óskað hafa
aðstoðar. Þá hefur Vinnuskólinn séð um hirðingu garða
fyrir þá ellilífeyrisþega sem þess hafa óskað, þeim að
kostnaðarlausu.
Sorphreinsun
Sorphirða fer fram vikulega í öllum hreppnum og
mæltist það vel fyrir er hafin var sorphirða í sveitinni.
Árlega fer fram hreinsunarátak í hreppnum þar sem
farið er á hvert býli og tekið stærra drasl sem menn vilja
losna við. Hefur þetta gefist vel og er mikið magn
gamalla bíla og búvéla hirt á ári hverju. Unnið er að því
að finna varanlega lausn á förgun sorpsins og er sorp-
brennsla ein þeirra hugmynda sem nú eru í skoðun og
hugsanleg nýting orkunnar frá brennslunni til hitunar á
sundlaug.
Önnur starfsemi á vegum sveitarfélags-
ins
Áhaldahús er rekið á vegum hreppsins og starfa þar
tveir menn allt árið. Annast þeir viðhald á fasteignum
hreppsins svo og ýmsar framkvæmdir stórar og smáar.
Ennfremur sjá þeir um alla sorphirðu í hreppnum.
Vinnuskóli er starfræktur í átta vikur á sumri hverju.
Hefur hann notið mikilla vinsælda hjá börnum og
unglingum og í sumar voru yfir 30 böm á aldrinum 11
til 16 ára, þrír flokksstjórar og vélamaður við störf í
Vinnuskólanum.
Þá hefur hreppurinn tekið virkan þátt í uppbyggingu
ferðamannaþjónustu á undanfömum árum. Hefur hann
verið með í rekstri upplýsingamiðstöðvar fyrir ferða-
menn undanfarin tvö sumur auk þess sem hreppurinn
sér einn um rekstur tjaldstæðis í Vík.
Félagsstarfsemi
Félagslíf er mjög blómlegt og mörg félög starfandi.
Má þar nefna ungmennafélögin Drang og Dyrhólaey,
Kvenfélag Hvammshrepps, Kvenfélag Dyrhólahrepps
og Kvenfélagið Ljósbrá, Lionsklúbbinn Suðra, Hesta-
mannafélagið Sindra, Golfklúbbinn í Vík og Björgun-
arsveitina Víkverja, svo nokkur séu nefnd. Undanfarin
ár hafa ungmennafélagið Drangur og Björgunarsveitin
Víkverji staðið fyrir veglegri útihátíð í Vík um versl-
unarmannahelgar. Gestum hefur fjölgað með hverju
árinu og sl. sumar er áætlað að um 3000 manns hafi sótt
hátíðina. Árlega eru haldin þrjú þorrablót í hreppnum
og má áætla að um 400 manns sæki þau á ári hverju.
Tónlistarlíf er mjög öflugt en auk skólahljómsveitar-
innar er hér starfandi barnakór Víkurskóla, kirkjukór og
karlakór. í byrjun ársins var tekið í notkun veglegt 11
radda pípuorgel í Víkurkirkju og er það tvímælalaust
mikil lyftistöng fyrir allt tónlistarlíf í hreppnum. Þá var
á síðasta ári stofnaður félagsskapur áhugamanna um
hljóðfæraleik og dans. Er það hópur fólks sem kemur
saman og spilar og dansar gömlu dansana. Nefnist sá
félagsskapur „Spor í rétta átt“.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru í félagslífi í
hreppnum og vissulega er margt sem enn er ónefnt.
Sérstætt náttúrufar
Mýrdalurinn hefur oft verið nefndur „Sveitin milli
sanda", með Mýrdalssand í austri og Sólheima- og
Skógasand í vestri. Mýrdalsjökull gnæfir yfir hreppnum
í norðri með Kötlu sem aðalógnvald og síðan höfum við
Atlantshafið í suðri. Innan þessa svæðis eru mörg
merkileg og sum heimsþekkt náttúrufyrirbæri. Nægir
þar að nefna Dyrhólaey með sitt þekkta gat og fuglalíf
255