Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 30
VERKASKIPTING RÍKIS OG SVEITARFÉLAGA
úar 1990. Með þeirri gjörð hækkaði
kostnaður við heimavistargæslu á
einni nóttu í Reykhólaskóla um 65%,
úr 26,63 einingum í 44 einingar (þá
gat ríkið verið rausnarlegt á kostnað
sveitarfélaganna).
Þessi ákvörðun m.a. varð til þess
að skólastjórnendur í Reykhóla-
hreppi boðuðu lil borgarafundar um
stefnuna í skólamálum. Fundurinn
var haldinn 1. maí og markaði þá
stefnu að leggja af heimavist við
Reykhólaskóla. Jafnframt var sú
stefna mörkuð að ef til sparnaðar
kæmi þá nýttist hann skólanum í
aukinni þjónustu.
Síðan þá hafa margir fundir verið
haldnir og mikið rætt, hugsað stíft og
framkvæmt.
1 stuttu máli er framkvæmd skóla-
mála þannig í Reykhólahreppi að öll
börn fá 35 stunda kennsluviku. Öll-
um börnum er gefinn koslur á heitri
mállíð í hádegi og er verðið frá 90-
150 kr. eftir aldri barns. Öllum börn-
um sem búa utan Reykhóla er dag-
lega ekið í og úr skóla. Hádegisakst-
ur yngri barna hefur verið felldur
niður og skólaaksturinn boðinn út.
Rekstrarkostnaður skólans hefur
staðið í stað. Til glöggvunar má sjá
helstu breytingar í útgjöldum milli
ára sem orðið hafa vegna þessarar
stefnubreytingar. Tölurnar eru í þús-
undum króna og árið 1994 er valið
vegna þess að nýgengið er frá samn-
ingi um skólaakstur:
1990 1994
Ýmis kennaralaun 611 3000
Launatengd gjöld 321 600
Heimavistargæsla 1783 0
Skólaakstur 4382 3874
Laun í mötuneyti 1740 1400
Samtals 8837 8874
Árið 1990 voru eknir km í skóla-
akstri 57065 en verða á árinu 1994
samtals 78500.
Sveitarfélagið leggur til jafnmarg-
ar stundir í stuðningskennslu og ríkið
og hefur með þeim hætti tvöfaldað þá
þjónustu, auk þess sem öllum nem-
endum gefst kostur á 35 stunda
kennsluviku.
Sem dæmi má nefna að 1. bekkur
hefur nú um fram 1. bekk 1990 þrjá
bóklega tíma í hverri viku sem áður
fóru í sund og leikfimi. Sund og
leikfimi hefur verið flutt yfir á eftir-
miðdag. 1. bekkur fær nú tvo tíma í
smíði og tvo tíma í handavinnu á
viku, sem hann hafði ekki áður, þá
eru 5 stundir á viku nú í félagsstarf
og lesstund sem ekki var áður.
Ég fullyrði að þetta gerðist ein-
vörðungu vegna þess svigrúms sem
andi verkaskiptalaganna frá 1989
leyfði en þar var gert ráð fyrir því að
heimamenn notuðu tækifærið og tel
ég að við höfum gert svo. Hvort vel
hafi til tekist verður seint hægt að
skera úr um en víst að sé þetta hið
rétta þá gerðist það ekki með þeim
hætti sem Svanhildur vildi heldur
þvert á móti.
mneo Skjalaskápar
Islendingar þekkja þá
S af gæðunum
S afverðinu
S afendingunni
Verð kr. m.vsk.
4 skúffu skápur 23.879,00
3 skúffu skápur 21.912,00
2 skúffu skápur 19.410,00
Fást bæöi í DIN A4
og folio stæröum
H. OLAFSSON & BERNHOFT
Vatnagaröar 18 - s. 812499
276