Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Page 31
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
Stefnumörkun ríkisstjómarinnar
vegna átaks í sameiningu
sveitarfélaga 1993—1994
Félagsmálaráðuneytið lét hinn 27. september sl. frá
sér fara svofellda fréttatilkynningu vegna átaks í sam-
einingu sveitarfélaga 1993-1994:
Nú liggja fyrir tillögur allra umdæmanefnda um
sameiningu sveitarfélaga sem kosið verður um í al-
mennri atkvæðagreiðslu hinn 20. nóvember nk. I þeim
felst að sveitarfélögum fækkar úr 196 í 43 ef tillögurnar
ná fram að ganga.
Með stórtækum samruna sveitarfélaga og tilflutningi
verkefna skapast tækifæri til að efla og styrkja sjálfs-
forræði sveitarfélaga og byggð í landinu jafnframt því
að ná fram hagræðingu í opinberum rekstri. Fjölmenn
og öflug sveitarfélög hafa mun meiri vaxtarmöguleika
í atvinnulegu tilliti og geta boðið íbúunum betri þjón-
ustu en þau fámennu.
Jöfnunarsjóóur
Reglur um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga eru
miðaðar við núverandi skiptingu landsins í sveitarfélög
og núverandi verkefni sveitarfélaga. Reglurnar virka
mjög hvetjandi á sameiningu fámennra hreppa, t.d. með
innan við 300 íbúa, en eru ekki sniðnar með sameiningu
fjölmennari sveitarfélaga í huga, t.d. með 1-2 þús.
íbúa.
Nauðsynlegt er að gjörbreyta reglunum þannig að
þær virki hvetjandi á sameiningu stærri sveitarfélaga og
að þær breytist síðan í takt við færslu verkefna frá ríki
til sveitarfélaga.
Til þess að ná árangri í sameiningu sveitarfélaga er
nauðsynlegt að styrkja sjóðinn tímabundið svo hann
geti m.a. tekið þátt í að jafna skuldastöðu sveitarfélaga,
greitt kostnað við sameiningu sveitarfélaga og aðrar
aðgerðir sem því tengjast. Rétt er að sveitarfélögin í
landinu taki santeiginlega þátt í slíkum kostnaði að
hálfu á móti ríkinu.
Atvinnumál
Ýmis vandamál atvinnulífsins, svo sem atvinnuleysi
og veik staða fyrirtækja í einstökum byggðarlögum,
verða auðveldari viðfangs í stórum og fjölmennum
sveitarfélögum en er almennt í núverandi sveitarfélög-
um. Þá kallar þróunin í sjávarútvegi á stækkun sveitar-
félaga. Má þar nefna nauðsyn á stækkun atvinnusvæða
verkalýðs- og sjómannasamtaka, sameiningu hafna,
sameiningu sjávarútvegsfyrirtækja á ntilli byggðarlaga.
Jafnframt er ljóst að sveitarfélögin munu hafa sterkari
aðstöðu til að varðveita fiskveiðikvóta í heimabyggð ef
þau verða stærri.
Samgöngumál
Ein af forsendum þess að stækkun sveitarfélaga leiði
til betri þjónustu við fbúana eru greiðar samgöngur
innan hinna stóru sveitarfélaga. Með greiðum sam-
göngum skapast betri grundvöllur fyrir rekstri marg-
víslegrar þjónustu sveitarfélagsins við íbúana og hún
verður þeim aðgengilegri. Þá leiða greiðar samgöngur
til þess að íbúarnir geti sótt atvinnu um lengri veg.
Takmarkaðar samgöngur innan héraðs hafa leitt til þess
að ekki hefur verið grundvöllur fyrir ýmiss konar
þjónustustarfsemi sem krefst stórs markaðar.
Samþykkt ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin hefur fallist á eftirfarandi tillögur fé-
lagsmálaráðherra:
1. Feli niðurstöður kosninga um sameiningu sveitar-
félaga í sér eflingu sveitarstjórnarstigsins og stækkun
sveitarfélaga mun ríkisstjórnin beita sér fyrir samning-
um við sveitarfélögin um að þau yfirtaki rekstur
heilsugæslu, öldrunarþjónustu og málefni fatlaðra. Við
það verði miðað að hin nýja verkaskipting ríkis og
sveitarfélaga öðlist gildi sem fyrst eða á næstu 2 til 3
árum. Samhliða verði skoðað hvort um frekari tilflutn-
ing verkefna geti orðið að ræða. Unnið er að undirbún-
ingi þess að sveitarfélögin yfirtaki að fullu rekstur
grunnskóla 1. ágúst 1995.
2. Ríkisstjórnin mun í samningum við sveitarfélögin
277