Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Page 32
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
í tengslum við breytta verkaskiptingu beita sér fyrir því
að tekjur flytjist frá ríki til sveitarfélaga þannig að þau
geti tryggilega staðið undir þeim kostnaði sem aukin
verkefni krefjast. í því sambandi verði stefnt að því að
afla sveitarfélögunum sjálfstæðra tekjustofna.
3. Ríkisstjórnin mun sérstaklega fjalla um auknar
fjárveitingar til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árunum
1995-1998 vegna aðgerða sem greiða fyrir sameiningu
sveitarfélaga og vegna breyttrar verkaskiptingar.
Reglugerð jöfnunarsjóðs verði breytt svo hún verði enn
frekar hvetjandi fyrir sameiningu sveitarfélaga, t.d.
þannig að þau tapi ekki fjárhagslega á því að sameinast.
Stefnt verði að því að auka þjónustuframlög úr sjóðnum
svo sveitarfélögin geti veitt íbúum sínum góða þjón-
ustu. Ríkisstjórnin mun leita eftir því með samkomulagi
við Samband íslenskra sveitarfélaga að fjármunum
verði varið úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að greiða
fyrir sameiningu sveitarfélaga enda gefi úrslit fyrir-
hugaðrar atkvæðagreiðslu tilefni til þess.
4. A svæðum þar sem erfiðleikar eru í atvinnumálum
mun ríkisstjórnin fela Byggðastofnun að beita sér fyrir
tillögum að sérstökum aðgerðum í atvinnumálum í
tengslum við sameiningu sveitarfélaga, einkum er
varðar fjárfestingu og hagræðingu í rekstri.
5. Við ákvörðun um fjárveitingar
og forgangsröðun framkvæmda í
samgöngumálum á næstu árum
verði m.a. tekið tillit til sameining-
ar sveitarfélaga.
Innkaupastofnun
ríkisins
Nafni Innkaupastofnunar ríkisins hefur verið breytt
í RIKISKAUP, til samræmis við nýja tíma og að
nokkru breytt þjónustusvið.
Innkaupastofnun hefur annast innkaup fyrir
ríkisstofnanir, en einnig margs konar útboð vegna
vörukaupa, verkframkvæmda og þjónustu.
Jafnframt hefur verið lögð aukin áhersla á
viðskiptalega aðstoð og leiðbeiningar um vörukaup.
Þá hefur sala á eignum ríkisins, svo sem notuðum
bílum, fasteignum, tækjum og búnaði, farið fram á
vegum Innkaupastofnunarinnar á undanförnum
árum. Hér hefur því skapast eins konar kaupvangur
á vegum ríkisins og því er við hæfi að breyta nafni
stofnunarinnar í hentugra og þjálla orð.
RÍKISKAUP
U t b o ð s k i I a á r a n g r i !
BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK
SÍMI 91-26844, BRÉFAS.91-626739
FRÁ STJÓRN
SAMBANDSINS
Nefnd um aukna
hagræðingu
dagvöruverslunar í
strjálbýli og þéttbýli
Stjórn sambandsins hefur tilnefnt
Kristján G. Magnússon, hreppsnefnd-
armann í Vopnafjarðarhreppi, til þess
að vera fulltrúi sambandsins í sjö
manna nefnd sem viðskiptaráðherra
hefur skipað til þess að kanna mögu-
leika á aukinni hagræðingu dagvöru-
verslunar í strjálbýli og þéttbýli og
hugsanlegan þátt ríkis og sveitarfé-
laga í slíkri hagræðingu, t.d. með
breyttum starfsreglum, skipulagsað-
gerðum og samgöngubótum.
Aðrir í nefndinni eru Jóhannes
Jónsson, framkvæmdastjóri Bónuss í
Reykjavík, Úlfar S. Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri söluskálans Hamra-
borgar á ísafirði, Pálmi Guðmunds-
son, kaupfélagsstjóri á Höfn í
Hornafirði, Sigurður Jónsson, rekstr-
arráðgjafi, Reykjavík, Sigurður Guð-
mundsson, skipulags- og áætlunar-
fræðingur í Byggðastofnun, og Atli
Freyr Guðmundsson, skrifstofustjóri
í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu,
og er hann formaður nefndarinnar.
278