Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Síða 40
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
fyrirtækja þeirra með sjálfstæðan
fjárhag, þ.m.t. orkufyrirtækja, verði
sundurgreindar þannig að einungis
skuldir sveitarsjóðanna teljist skuldir
hins nýja sveitarfélags. Skuldir fyr-
irtækja með sjálfstæðan fjárhag fylgi
þeim í samræmi við markmið um
rekstur þeirra. Ábyrgðir núverandi
sveitarsjóða verði ábyrgðir sveitar-
sjóðs hins nýja sveitarfélags.
Ennfremur segir í greinargerð-
inni:
í fréttatilkynningu frá félagsmála-
ráðuneytinu dags. 24. september um
stefnumörkun ríkisstjórnarinnar
vegna átaks í sameiningu sveitarfé-
laga 1993-1994 segir m.a.:
„Ríkisstjórnin mun sérstaklega fjalla
um auknar fjárveitingar til Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga á árunum 1995-
1998 vegna aðgerða sem greiða fyrir
sameiningu sveitarfélaga og vegna
breyttrar verkaskiptingar. Reglugerð
jöfnunarsjóðs verði þannig breytt að
hún verði enn frekar hvetjandi fyrir
sameiningu sveitarfélaga, t.d. þannig
að þau tapi ekki fjárhagslega á því að
sameinast.“ Samkvæmt þessu er lík-
legt að einhverjar aðgerðir verði
reyndar til að jafna skuldastöðu
þeirra sveitarfélaga, sem illa standa
fjárhagslega, enda segir ennfremur í
sömu fréttatilkynningu: „Til þess að
ná árangri í sameiningu sveitarfélaga
er nauðsynlegt að styrkja sjóðinn
tímabundið svo að hann geti m.a.
tekið þátt í að jafna skuldastöðu
sveitarfélaga."
Meóferö fyrirtækja í eigu nú-
verandi sveitarfélaga
Fyrirtæki í eigu núverandi sveitar-
félaga, þ.m.t. orkufyrirtæki, verði
rekin sjálfstætt. Rekstrarmarkmið
fyrirtækja sem þjóna íbúunum skuli
vera að tekjur og gjöld standist á og
þjónustan þannig veitt á kostnaðar-
verði hjá hverju einstöku fyrirtæki.
Hlutafjáreign sveitarsjóða skal
varðveitt í hlutafjársjóði sveitarfé-
lagsins. Farið verði með arð af
hlutafjáreign samkvæmt ákvörðun
sveitarstjórnar hverju sinni.
Nokkrar tölur úr ársreikningum
Þá er gerð grein fyrir nokkrum
tölum úr ársreikningum sveitarfélag-
anna við Eyjafjörð á sl. ári.
Skatttekjur, þ.e. tekjur skv. lögum
um tekjustofna sveitarfélaga, námu
samanlagt rúmlega tveimur milljörð-
um króna. Á hvern íbúa voru tekjur
að jafnaði kr. 98.735, sem er nálægt
landsmeðaltali, sem var kr. 98.772 á
árinu. Hæstar voru tekjur í einum
hreppi á svæðinu kr. 125.523 og
lægstar í öðrum kr. 65.861. Almennt
voru hæstar tekjur á dæmigerðum
útgerðarstöðum en lægstar í land-
búnaðarhreppum.
Hvenær tæki ný sveitarstjórn
vió?
Loks segir í greinargerðinni á
þessa leið:
„Samþykki íbúar við Eyjafjörð til-
lögu um sameiningu svæðisins í eitt
sveitarfélag 20. nóvember verður þó
ekki sameinað strax. í nefndinni um
sameiningu sveitarfélaga við Eyja-
fjörð komu fram tvö sjónarmið um
hvenær kosið yrði til nýrrar sveitar-
stjórnar og sameining tæki gildi, ef
tillaga umdæmanefndar verður sam-
þykkt. Annars vegar var rætt um að
kosið yrði til nýrrar sveitarstjórnar í
sveitarstjórnarkosningunum vorið
1994 og tæki ný sveitarstjórn við
skömmu síðar. Einnig kom fram það
sjónarmið að athuga hvort heimilt
væri að seinka sveitarstjórnarkosn-
ingum. Þannig fái núverandi sveitar-
stjórnir setið áfram um nokkurra
mánaða skeið inn á næsta kjörtíma-
bil, eftir því hversu tímafrek samein-
ing verður."
Umsókn um framlög úr Fram-
kvæmdasjóði fatlaðra 1994
Stjórn Framkvæmdasjóðs fatlaðra auglýsir eftir umsóknum um
framlög úr sjóðnum árið 1994.
Um hlutverk sjóðsins vísast til 40. gr. laga nr. 59/1992 um málefni
fatlaðra.
Umsóknum skal skila til hlutaöeigandi Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra, sem veitir nánari upplýsingar.
Svæðisskrifstofa Reykjavíkur,
Nóatúni 17, Reykjavík.
Svæðisskrifstofa Reykjaness,
Digranesvegi 5, Kópavogi.
Svæðisskrifstofa Vesturlands,
Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.
Svæðisskrifstofa Vestfjarða,
Mjallargötu 1, ísafirði.
Svæðisskrifstofa Norðurlands vestra,
Ártorgi 1, Sauðárkróki.
Svæöisskrifstofa Norðurlands eystra,
Stórholti 1, Akureyri.
Svæðisskrifstofa Austurlands,
Tjarnarbraut 39e, Egilsstöðum.
Svæðisskrifstofa Suðurlands,
Eyrarvegi 37, Selfossi.
Umsóknum skal skila til svæðisskrifstofa fyrir 1. desember 1993.
F élagsmálaráðuney tið
286