Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Qupperneq 42

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Qupperneq 42
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM verði námskeið fyrir sveitarstjórnar- menn í Norðurlandi vestra eftir sveitarstjórnarkosningar vorið 1994 í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Verkefni FMR til sveitarfélaga Þá skoraði þingið á stjórn Sam- bands íslenskra sveitarfélaga að beita sér fyrir samningum við ríkisvaldið um að flytja verkefni Fasteignamats ríkisins (FMR) til sveitarfélaga og leggja FMR niður í núverandi mynd. Tilfærsla á yfirstjórn frá ríki til sveitarfélaga Þingið saniþykkti að beina því til stjórnar Santbands íslenskra sveitar- félaga að samhliða viðræðum við ríkisvaldið um breytta verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga verði tryggt að sveitarfélögin fái fjármagn til stjórnunar og reksturs þeirra málaflokka sem um ræðir. Jafnframt minnki ríkið umsvif sín sem nemur þeint verkefnum sem flytjast til sveitarfélaganna. Með tillögu að þessri ályktun fylgdi svofelld greinargerð: „Viðunandi samningar urn til- færslu á stjórnunarkostnaði ásamt fjármunum til reksturs viðkomandi verkefna eru ein af grundvallarfor- sendum þess að hagræðing verði á verkefnaflutningi til sveitarfélag- anna. Aukning á verkefnum og þar með stjórnunarkostnaði sveitarfélag- anna án samsvarandi niðurskurðar á stjórnkerfi ríkisins leiðir til útþenslu hins opinbera stjórnkerfis og þar með hærri skattheimtu í þjóðfélaginu. Slík þróun mundi hvorki þjóna hags- munum sveitarfélaganna né íbúum þeirra. Því leggur þing SSNV ríka áherslu á að nú þegar verði teknar upp viðræður við ríkisvaldið um þessi mál þannig að sveitarstjórnar- menn geti metið fjárhagsleg og stjórnunarleg áhrif af tilfærslu á verkefnunt til sveitarfélaganna. Eignarhald á fasteignum Þingið samþykkti og að beina þeim tilmælum til stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga að taka upp viðræður við stjórnvöld um að löguni um eignarhald á fasteignum verði breytt á þann veg að séu eigendur þrír eða fleiri skuli þeir tilnefna forsvars- mann fyrir eignina og sé hann ábyrgur fyrir sköttum og skyldum eignarinnar gagnvart sveitarstjórn. Málefni Fjölbrautaskólans Svofelld ályktun var gerð um inálefni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra : „Þing SSNV 1993 beinir þeim til- mælum til stjórnvalda að þau hlutist til um að á fjárlögum ársins 1994 verði veitt fé til að standa straum af kostnaði vegna: 1. Reksturs framhaldsdeilda á Blönduósi og á Siglufirði. 2. Skólaaksturs. 3. Stækkunar heimavistar fjöl- brautaskólans. Auk þess leggur þingið áherslu á að námsbraut fyrir þroskahefta verði formlega stofnuð við skólann og fé veitt til hennar. Þingið fagnar því að starfsemi framhaldsdeilda á Blöndu- ósi og Siglufirði verði í vetur.“ Fjármál SSNV I fjárhagsáætlun SSNV fyrir árið 1994, sem samþykkt var á þinginu, er gert ráð fyrir að tekjur og gjöld nemi um 6 millj. kr. og að árgjöld sveitarfélaga til sambandsins verði 100 kr. á hvern íbúa. Kosningar Fimin fulltrúar voru á þinginu kosnir í umdæmanefnd landshlutans og var skýrt frá skipan hennar í 3. tbl. Sveitarstjórnarmála í ár. Þá voru kjörnir tveir skoðunarmenn reikn- inga SSNV og fjórir fulltrúar á aðal- fund Landsvirkjunar. Vísur Framkvæmdastjóri SASS, Hjörtur Þórarinsson, kvaddi sér hljóðs áður en þinginu var slitið og mælti fram tvær vísur. Sú fyrri var tileinkuð Jóni Guðmundssyni frá Óslandi, oddvita Hofshrepps: Gengur hœgt um gólf í sal grípur vœgt til orða. Hvergi lœgð þótt hljótt sé tal og hér er gnœgð að borða. Hin síðari var í tilefni kvöldverðar, sem efnt var til á Hótel Læk að kvöldi fyrri dagsins: Næmleiki á fundum nettari ef nálgumst um stund hér saman. „Senn verður lundin léttari" og lífið svo undiir gattian. Næsta ársþing á Blönduósi Loks kvaddi sér hljóðs Ófeigur Gestsson, bæjarstjóri á Blönduósi, og bauð að næsta ársþing SSNV yrði haldið á Blönduósi. Arsþingið sátu 33 kjörnir fulltrúar og nokkrir gestir, auk framsögu- manna, alþingismenn kjördæmisins, Bragi Guðbrandsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, Húnbogi Þor- steinsson, settur ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu, og Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. /<^>\ \HBE9F11U Sími 68 55 22 ÞJÓNU^TA í 50 AR fclV 05 ! viönNord 85 SS 89 ILU'S n llá f*i3 Iti ti\ 288
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.