Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Page 53

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Page 53
STJÓRNSÝSLA Evrópusamstarfið, sveitaifélögin og lýðræðið Árni Páll Árnason, ráðgjafi utanríkisráðherra í Evrópumálum í þessari grein langar mig að fjalla nokkuð um sameiningu sveitarfélaga út frá þeirri þróun sem orðið hefur í þeim ntálaflokki í Evrópu og tengsl aukins valds sveitarfélaga við Evr- ópusamstarfið í heild. Þá verður vik- ið að því hvernig sveitarfélögin inn- an Evrópu hafa haldið fram ágæti sveitarfélaganna út frá lýðræðissjón- armiðum og litið stuttlega á raun- veruleg áhrif fbúa sveitarfélaga á stjórn þeirra. Almennt um samstarfiö innan Evrópubandalagsins Það er margþvæld tugga í umræðu um Evrópumál hér á landi sem ann- ars staðar að samrunaþróunin í Evr- ópu hafi minnkað lýðræði og komið valdi á fárra hendur. Að mínu viti byggir þetta álit einna helst á al- gengum misskilningi á eðli þeirrar samrunaþróunar sem átt hefur sér stað og á eðli og valdsviði Evrópu- bandalagsins og stofnana þess. Evrópubandalagið er aðeins að litlu leyti það skrifræðisveldi sem andstæðingar þess vilja vera láta. I evrópskri samvinnu hefur falist að sameiginlegar reglur hafa verið settar um flesta þætti milliríkjaviðskipta milli aðildarrfkjanna, sem hafa að markmiði að takmarka það vald sem ríki hafa til að hindra eða torvelda milliríkjaviðskipti. Ríkin hafa verið sammála um að frjáls og hindrunar- laus milliríkjaviðskipti væru æskileg og því sammælst um sameiginlegar reglur á því sviði sem takmarka möguleika ríkjanna til að beita heimildum sínum til að torvelda milliríkjaviðskipti. I þessu skyni hafa þau meira að segja fallist á að setja fullveldi sínu þær skorður að sam- eiginlegt dómsvald og framkvæmda- vald fari með eftirlit með fram- kvæmd þessara reglna og einnig gengið svo langt að heimila að þau kunni að vera borin atkvæðum á vissum sviðum en engu að síður vera skuldbundin til að fylgja niðurstöðu hinna nkjanna. Það er því ekki af einskærri ill- mennsku eða löngun til að ráða fyrir lífi borgaranna í stóru og smáu sem stofnanir Evrópubandalagsins hafa staðið í að setja reglur um rafmagns- klær og innstungur eða annað ámóta sem löngum hefur verið nefnt í dæmaskyni til að sýna fram á þær hörmungar sem yfir frjálsa menn hafa dunið með Evrópusamstarfinu. Þessar reglur eru settar til að tryggt sé að sameiginlegur markaður geti náð tilgangi sínum. Hvers virði er sameiginlegur markaður ef ríkin hafa mismunandi reglur um rafmagnsklær og innstungur? Mismunandi reglur á þessu sviði þjóna aðeins þeim eina tilgangi að gera milliríkjaviðskipti erfiðari og veita innlendri fram- leiðslu vernd. Ef slíkar viðskipta- hindranir sem og aðrar mikilvægari væru látnar óáreittar yrði niðurstaðan einfaldlega sú að sameiginlegur markaður ætti erfiðara uppdráttar og heimamarkaður evrópskra fyrirtækja yrði minni. Tæknilegar reglur af þessu tagi eru ekki teknar í heild upp í löggjöf aðildarríkjanna, heldur er setning reglugerða oftast nægileg og sameiginlegu reglurnar koma þá í stað þeirra ákvæða sem fyrir eru í reglugerðum hvers ríkis. Það er einnig rétt að hafa í huga að Evrópubandalagið er ekki rekið af sameiginlegri pólitískri stjórn. Framkvæmdastjórnin fer með stjórn bandalagsins og gegnir ákveðnu frumkvæðishlutverki en hefur ekki lagasetningarvald eða pólitískt for- ræði. Hið pólitíska forræði er í höndum aðildarríkjanna og mun vera þar um ófyrirséða framtíð. Kenning- ar áköfustu fylgismanna Evrópu- samrunans, sem byggja á stöðugri þróun Evrópubandalagsins til meira sjálfstæðis frá aðildarríkjunum í krafti stofnana eins og fram- kvæmdastjórnarinnar sem heyra ekki beint undir aðildarríkin, eru athygl- isverðar en, eins og títt er um kenn- ingar pólitískra heittrúarmanna, án umtalsverðra tengsla við veruleik- ann. Staðreyndin er sú að ekkert skref til nánara samstarfs aðildar- 299

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.