Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Qupperneq 57

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Qupperneq 57
STJÓRNSÝSLA mennara meðal smærri ríkja en stærri. Eins er oft gengið út frá því sem vísu að því meiri völd sem sveitarfélög hafi og því minni völd sem ríkið hafi, þeim mun nær ein- staklingunum sé ákvarðanatakan og áhrif þeirra á málatilbúnað allan. Það sem máli skiptir er hins vegar aðeins eitt: Hvert er það kjöt sem er á beinunum? Islensk stjómskipan verður seint talin með þeirri lýðræðislegustu sem þekkist í Evrópu. Löng og afar sterk hefð er fyrir einföldu meirihlutavaldi við meðferð allra mála. Stjómar- skráin veitir borgurunum litla vöm gagnvart ríkisvaldinu og í ofanálag hefur dómsvaldið um áratugaskeið verið með eindæmum valdhlýðið og túlkað mannréttindaákvæði stjómar- skrárinnar ríkisvaldinu í hag. Við allt þetta bætist að réttaröryggi borgar- anna gagnvart stjómvöldum er á engan hátt styrkt með stjómskipun- ardómstóli eða öðru slíku úrskurðar- valdi. Vinnubrögð lýðræðislega kjörinna fulltrúa mótuðust á tímum þegar fulltrúamir töldu nauðsynlegt að beita sem flestum brögðum til að fá vilja landsmanna framgengt gagn- vart erlendum yfirvöldum, sem oftast voru andsnúin afstöðu hinna þjóð- kjömu. Reynslan leiddi svo til þess að stjómmálamennimir skópu beinu lýðræði, almennum mannréttindum og aðhaldi þjóðkjörins forseta afar þröngan stakk. Athafnafrelsi stjóm- málamannanna gaf þeim takmarka- laust vald yfir stofnunum samfélags- ins, sem síðan voru í verulegum mæli nýttar til ábata fyrir þá hagsmuna- og gæðingahópa sem stjómmálamenn- imir töldu sig fulltrúa fyrir. Hin ís- lenska kraftahagstjóm og kraftalög- fræðin vom mættar til leiks og skópu þá umgjörð sem við þekkjum um samskipti borgara og stjómvalda. Ekki verður séð að sveitarstjómir hafi myndað neinar sérstakar hefðir um meðferð mála. Þvert á móti má leiða að því gild rök að sveitar- stjómarmálin hafi að þessu leyti dregið mjög dám af þeirri stjóm- málahefð sem myndaðist við lands- stjómina. I þeim sveitarstjómum þar sem íbúafjöldi gaf tilefni til raun- verulegra átaka um flokkapólitík eft- ir forskrift þingflokkanna varð sú raunin. Eftir minni bestu vitund hefur ekki verið gerður neinn samanburður á lýðræðislegum áhrifum borgaranna á þær ákvarðanir sem teknar eru í þeirra nánasta umhverfi eða fyrir landið sem heild. Eg ætla hins vegar að halda því fram að lýðræðisleg áhrif borgaranna í stærri sveitarfé- lögum á Islandi séu með því minnsta sem þekkist í vesturálfu. Mýmörg dæmi eru um mun almennara sveit- arstjómarlýðræði en hér þekkist, jafnt í Evrópu og Bandaríkjunum. Ákvarðanir sveitarstjórnarmanna um skipulag umhverfis og forgangsröð verkefna innan sveitarfélaga virðast oft í sáralitlum tengslum við vilja íbúa. Álits íbúa er sjaldnast leitað á markvissan hátt, þótt flestir þættir sveitarstjómarmála séu þess eðlis að afar hentugt og auðvelt er að leggja þá fyrir kjósendur í almennri at- kvæðagreiðslu. Hér má meðal annars nefna ýmsa þætti skipulagsmála og almenna forgangsröð verkefna. Það er von mín að sveitarstjómar- menn hafi það hugfast, nú þegar útlit er fyrir vemlega sameiningu sveitar- félaga, að í auknu lýðræði á sveitar- stjómarsviðinu felst aukinn styrkur sveitarfélaganna gagnvart ríkisvald- inu. Samsteypustjómir Islands hafa oft verið myndaðar á grunni hrossa- kaupa skúmaskotanna og sitja með umdeilanlegt umboð frá kjósendum flokkanna sem að þeim standa. Ef sveitarfélög geta byggt á sterku um- boði sínu og virku lýðræði gagnvart samsteypustjómum af þessum toga, getur það valdið straumhvörfum í valdahlutföllum milli ríkis og sveit- arfélaga. Skoðanakannanimar færa okkur heim sanninn um sífellt minnkandi traust almennings til stjórnmála- manna. Nú stendur fyrir dyrum fækkun sveitarfélaga sem þýðir að fleiri munu standa að baki hverri sveitarstjóm. Á tímum þegar aukins ábyrgðarleysis gætir í samfélaginu, á tímum þegar almenningur skynjar æ betur vanmátt sinn gagnvart stjómmálamönnum og þeim silki- húfum hagsmunasamtaka, sem í raun fara með landsstjómina, er það óðs manns æði að halda áfram kraftapólitík fyrri ára á sviði sveitar- stjórnarmála. Hér hefur verið rakið hvemig héraðs- og sveitarstjórnar- menn innan Evrópubandalagsins hafa gripið tækifæri til aukinna áhrifa með vísan til þess umboðs sem þeir hafa frá kjósendum sínum og þess beina lýðræðis sem þeim er í lófa lagið að beita. Islenskir sveitar- stjómarmenn geta fylgt þessu for- dæmi. Til þess þurfa þeir að láta það sjást að þeir hafi umboð frá sínum kjósendum sem er annað og meira en það umboð sem kjósendur veita landsstjórninni. Þeir þurfa í því skyni að efla áhrifavald borgaranna á sveitarstjórnarmálin og gefa fólki kost á að taka ábyrgð á mótun um- hverfis síns og aðstæðna. Höfundur er lögfrœðingur frá Há- skóla Islands, stundaði framhaldsnám í Evrópurétti við Collége d'Europe í Belgíu og starfar sem ráðgjafi í Evr- ópumálum í utanríkisráðuneytinu. Skoðanir þœr sem fram koma í greininni eru höfundar og eingöngu á ábyrgð hans. 303
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.