Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Page 59

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Page 59
FÉLAGSMÁL Fötluðum börnum ber að búa sem eðlilegast líf hjá fjölskyldu sinni. Ljósm. Halldóra Sigurgeirsdóttir. aðrar hindranir og taka til- lit til mannlegra sjónar- miða. Fagfólk viðurkennir það sem mikilvægan þátt í uppeldi og kennslu fatl- aðra bama að þau sæki skóla með öðrum ófötluð- um börnum, en þegar til á að taka er þeim oftar en ekki vísað í sérskóla ríkis- ins. „Hvað ve!dur?“ spyrja foreldramir og segja: „Við viljum eiga þess kost að hafa líf okkar og barnanna sem eðlilegast. Við viljum sjálf fara með bamið okkar í leikskólann eða skólann í stað þess að kveðja það við skólabílinn. Við viljum kynnast foreldrum annarra barna með daglegu sam- neyti í stað þess að þekkja þá aðeins sem nöfn á lista. Við viljum tala við þá um flensur, magakveisur eða annað sem er okkur ofar- lega í huga hverju sinni. Við viljum fá tækifæri til að búa bömin okkar í af- mæli vinanna í hverfinu. Við viljum vera með þegar foreldrar hittast til að ræða róluvell- ina í hverfinu eða ferð fótboltafé- lagsins. Það er þátttaka af þessu tagi sem segir okkur að við tilheyrum rétt eins og aðrir.“ En þegar leitað er eftir stuðningi í sveitarfélaginu eru svörin oftar en ekki: „Þetta eru ekki okkar böm - það er ríkið sem á að sjá um þau.“ Þáttur laganna Þjónusta við fatlaða í dag grand- vallast á lögum um málefni fatlaðra sem öðluðust gildi 1. september 1992. Fyrstu lögin voru lög um að- stoð við þroskahefta frá 1979 og þar var í fyrsta sinn gerð tilraun til að koma á heildstæðri þjónustu við þennan þjóðfélagshóp. Þar áður voru ekki nein lög sem tryggðu fötluðum félagslega þjónustu og vísuðu sveit- arfélög fötluðum nær undantekning- arlaust á ríkisreknar stofnanir sem oftast voru langt frá alfaraleið. Þegar þetta er haft í huga skal engan undra þótt það hafi ríkt og ríki enn ákveðin tortryggni í garð sveitarfélaganna, því séð í sögulegu samhengi hafa þau ekki veitt fötluðum sambærilega þjónustu og öðrum. Allir voru sammála um að nauð- synlegt væri á þeim tíma að setja sérlög til að færa fötluðum ákveðin gmndvallarmannréttindi. En síðan hefur mikið áunnist. Nú- gildandi lög eru að vísu enn sértæk, en styrkja þó rétt fatlaðra til al- mennrar þjónustu. Ýmsar greinar laganna gera ráð fyrir aukinni þátt- töku sveitarfélaganna í þjónustu við fatlaða. I dag era þau viðhorf ríkjandi innan Landssamtakanna Þroska- hjálpar að vinna eigi markvisst að því með framkvæmd laganna að það skili þeim árangri að þau verði óþörf. Það er að segja að almenn lög gildi jafnt fyrir fatlaða og aðra þegna þjóðfé- lagsins. Það er til mikilla bóta að í nýju lögunum er gert ráð fyrir því að skipta megi starfssvæðum í þjón- ustusvæði sem miðist við einstök sveitarfélög, héraðsnefnd eða byggðasamlög. Þá er gert ráð fyrir að svæðisráð geti stuðlað að gerð samnings milli ríkis og sveitarfélaga um að þau taki að sér að annast þjónustuna að hluta til eða að öllu leyti, en ríkissjóður greiði kostnað- inn. Bæði þessi ákvæði geta haft veralega þýðingu, ekki eingöngu í stærstu sveitarfélögunum, heldur líka þar sem landfræðileg einangrun 305

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.