Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 9
FORUSTUGREIN
uppfylla lagaákvæði, þrátt fyrir að ríkið hafi borið
ábyrgð, annast framkvæmd og haft eftirlit með að lögun-
um sé framfylgt.
Aðstæður sveitarfélaganna eru ólíkar og þau búa að
skólum sínum með mismunandi hætti. Hins vegar er
óhætt að fullyrða að sveitarfélögin hafa almennt rækt
hlutverk sitt vel hvað varðar rekstur grunnskólans og að
metnaður sveitarstjómarmanna er mikill fyrir hönd skól-
ans. I opinberri umræðu hefur einnig komið skýrt fram
að áhugi þeirra á málefnum grunnskólans og áhersla á
betri grunnskóla hefur aukist á undanfömum ámm.
Staðreyndin er sú að sveitarfélögin greiða nú nokkur
hundruð milljónir króna umfram lögboðnar skyldur sín-
ar, m.a. í þeim tilgangi að fjölga kennslustundum, greiða
kennslu nemenda með sérþarfir og efla skólastarfið á
margvíslegan hátt.
Undirbúningur umræddrar yfirfærslu verður eitt ntikil-
vægasta viðfangsefni sveitarfélaganna, landshlutasam-
takanna og sambandsins á þessu ári. Meginmarkmið
verkefnatilfærslunnar á að vera betri grunnskóli, betri
menntun grunnskólabarna, aukin skilvirkni í starfsemi
skólanna og aukin ábyrgð sveitarstjómarstigsins.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
FRÁ STJÓRN SAMBANDSINS
Valgarður Hilmarsson varaformaður
Stjóm sambandsins hefur kosið Val-
garð Hilmarsson, oddvita Engihlíðar-
hrepps, varaformann sambandsins til
eins árs.
Valgarður hefur verið oddviti Engi-
hlíðarhrepps frá árinu 1974 og átt sæti í
stjóm sambandsins frá árinu 1990.
Ráðgjafarnefntl jöfnunarsjóðs
Stjóm sambandsins hefur tilnefnt fjóra af fimm aðal-
mönnum og jafnmarga varamenn þeirra í ráðgjafamefnd
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til fjögurra ára.
Aðalfulltrúar í ráðgjafarnefndinni eru Olafur Krist-
jánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík, Valgarður Hilmars-
son, oddviti Engihlíðarhrepps, Gísli Sverrir Arnason,
forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar, og Magnús Karel
Hannesson, oddviti Eyrarbakkahrepps.
Varamenn þeirra í sömu röð eru Páll Ingólfsson, for-
seti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, Arni K. Bjamason,
sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps, Amgrímur Blön-
dahl, bæjarstjóri á Eskifirði, og Jón Gunnar Stefánsson,
bæjarstjóri í Grindavík.
Félagsmálaráðherra hefur skipað Húnboga Þorsteins-
son, skrifstofustjóra í félagsmálaráðuneytinu, formann
nefndarinnar og Jónu Ósk Guðjónsdóttur, fyrrv. bæjar-
fulltúa í Hafnarfirði, varaformann.
Nefnd um framkvæmd átaksverkefna
Samkvæmt yfirlýsingu um fjárhagsleg samskipti ríkis
og sveitarfélaga frá 12. desember sl. skyldi komið á
samstarfsnefnd fjármálaráðuneytisins og félagsmála-
ráðuneytisins, stjómar Atvinnuleysistryggingasjóðs og
sambandsins til þess að stuðla að framkvæmd átaksverk-
efna sveitarfélaga í samstarfi við Atvinnuleysistrygg-
ingasjóð. Einnig skyldi nefndin stuðla að sérstökum að-
gerðum í þágu langtíma atvinnulausra og að fylgjast
með öðrum atvinnuskapandi aðgerðum sveitarfélaganna.
Stjóm sambandsins hefur tilnefnt í nefndina þau Sig-
ríði Stefánsdóttur, bæjarfulltrúa á Akureyri, og Ellert Ei-
ríksson, bæjarstjóra í Kellavík-Njarðvík-Höfnum, sem
aðalfulltrúa og Huldu Ólafsdóttur, fulltrúa í atvinnu-
málanefnd Reykjavíkur, og Magnús Gunnarsson, for-
mann bæjarráðs Hafnarfjarðar, sem varafulltrúa í nefnd-
ina.
Aðrir nefndarmenn eru Ingólfur Bender, hagfræðingur
í fjámiálaráðuneytinu, Einar Jón Ólafsson, hagfræðingur
í Landsbanka íslands, skipaður af félagsmálaráðherra,
og er hann formaður nefndarinnar.
Einnig er í nefndinni Margrét Tómasdóttir, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuleysistryggingasjóðs, og er hún
jafnframt starfsmaður nefndarinnar.
Nefndin fer yfir umsóknir sveitarfélaga um styrki til
átaksverkefna og gefur stjórn Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs umsögn um þær. Hún skal að öðru leyti undirbúa
afgreiðslu umsókna í hendur stjórnarinnar, sjá um að
afla viðbótarupplýsinga og gagna frá sveitarfélögum, ef
þörf er á, og getur beint tillögum og ábendingum til þeir-
ra, eins og segir í reglum sem settar hafa verið um út-
hlutun styrkja úr Atvinnuleysistryggingasjóði til átaks-
verkefna í ár.
I þeim segir einnig að hraða skuli umfjöllun og af-
greiðslu styrkumsókna svo sem kostur er. Frá reglunum
segir nánar í grein Margrétar Tómasdóttur, fram-
kvæmdastjóra Atvinnuleysistryggingasjóðs, sem birt er á
bls. 54 í þessu tölublaði.
3