Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 32
VEITUR
Uppistö&ulón viö Katasta&i. Dæluhúsiö næst. Ljósm. Marinó Eggertsson.
Veitur í Öxarfirði
Ingunn St. Svavarsdóttir, sveitarstjóri Öxarjjarðarhrepps
Já, v(st er þetta lífsins lind,
svo Ijós og svöl og tcer.
Hvönn og votur víðirinn
á vörum hennar grcer.
Hún er öllum Ijóssins litum,
líka sálu gœdd.
Ain, seni í sandinn hvaif
er síuð - enduifcedd.
(höf: Olafur Jónsson)
Við nútímafólk á íslandi hugsum
oft ekki um hve dýrmætt vatnið er
okkur. Það er ekki fyrr en við verð-
um vatnslaus einhverra hluta vegna
eða þurfum að kaupa drykkjarvatn í
útlöndum að við áttum okkur á hví-
lík auðlind er fólgin í hreinu vatni
og ómenguðu.
I Öxarfjarðarhreppi eru þrjár
vatnsveitur á vegum hreppsins, þ.e.
í Leirhöfn, fyrir bæina á Leirhafnar-
torfunni, við Katastaði og Snartar-
staði fyrir Kópasker og nágrenni og
upp af Hafrafellstungu og við
Smjörhól fyrir Lund og nánasta um-
hverfi.
Sveitarfélagið hefur staðið í end-
2 6
urbótum á öllum þremur vatnsveit-
unum sl. tvö ár.
Leirhafnarveitan
Eftir Kópaskersskjálftann 13. jan-
úar 1976 komst sjór í alla neyslu-
vatnsbrunna bæjanna á Leirhafnar-
torfunni, en þeir eru 7 talsins. Sveit-
arfélagið kom þá til skjalanna og
voru grafnir tveir nýir brunnar í
landi Leirhafnar og nágrannabæimir
tengdir við. Brunnamir voru teknir
með um 100 metra millibili og
dæluhús byggt á milli þeirra. Miðl-