Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 58
FRA LAN DSHLUTASAMTOKUNUM
Stjórn SASS
I stjórn SASS hlutu kosningu
Olafía Jakobsdóttir, hrcppsnefndar-
fulltrúi í Skaftárhreppi, sem er for-
maður, bæjarfulltrúarnir Sigurður
Jónsson og Kristján Einarsson á
Selfossi, Bjarni Jónsson, oddviti
Ölfushrepps, Steinþór Ingvarsson,
oddviti Gnúpverjahrepps, Guð-
mundur Svavarsson, hreppsnefndar-
maður í Hvolhreppi, og Öli Már Ar-
onsson, oddviti Rangárvallahrepps,
sem er varaformaður.
Varamenn í stjórn SASS eru bæj-
arfulltrúarnir Björn Gíslason og
Guðmundur Búason á Selfossi,
Böðvar Pálsson. oddviti Grímsnes-
hrepps, Alda Andrésdóttir, bæjar-
fulltrúi í Hveragerði. Sveinbjörn
Jónsson, oddviti Vestur-Eyjafjalla-
hrepps, Valmundur Gíslason, odd-
viti Holta- og Landsveitar, og Haf-
steinn Jóhannesson, sveitarstjóri
Mýrdalshrepps.
Frœðsluráð
í fræðsluráð Suðurlands voru
kjörin séra Sigurjón Einarsson í
Skaftárhreppi, Margrét Einarsdóttir,
oddviti Austur-Eyjafjallahrepps,
Tómas Rasmus, varahreppsnefndar-
maður í Eyrarbakkahreppi, og Ing-
unn Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi á
Selfossi. Vestmannaeyjabær til-
nefndi Ragnar Óskarsson bæjarfull-
trúa í fræðsluráðið.
Fulltrúar á ársfund Landsvirkjun-
ar
Sem fulltrúar á ársfund Lands-
virkjunar fyrir SASS voru kjörnir
Arni Jón Elíasson, hreppsnefndar-
maður í Skaftárhreppi, Þorvarður
Hjaltason, formaður stjórnar Sel-
fossveitna, Isólfur Gylfi Pálmason,
sveitarstjóri Hvolhrcpps, og Loftur
Þorsteinsson, oddviti Hrunamanna-
hrepps.
Skoðunarmenn
Skoðunarmenn SASS voru kjöm-
ir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson,
sveitarstjóri Rangárvallahrepps, og
Kjartan Ágústsson, oddviti Skeiða-
hrepps.
25 ára afmælishóf SASS
Að kvöldi fyrri fundardagsins var
haldið afmælishóf sem SASS og
Skaftárhreppur stóðu að. Góðar
kveðjur og heillaóskir bárust frá
fyrsta formanni SASS, Sigurði Inga
Sigurðssyni á Selfossi, og frá Jóni
Eiríkssyni í Vorsabæ á Skeiðum,
fyrsta ritara SASS, og Jón Helgason
alþingismaður, sem einnig var í
fyrstu stjóm SASS, ávarpaði gesti.
Þá barst kveðja frá Fjórðungssam-
bandi Vestfirðinga ásamt þökk fyrir
gott samstarf.
Eyjólfur Torfi Geirsson, formaður
Samtaka sveitarfélaga í Vestur-
landskjördæmi, flutti kveðju fyrir
hönd landshlutasamtakanna allra og
færði SASS gjöf, slípaðan basalt-
stein með eftirfarandi áletrun:
25 ára SASS (12. ágúst) 1994
Þökkum samstarfið á liðnum
árum
Landshlutasamtökin
FV SSNV EYÞING SSA
SSS SSH SSV
Brynja Bjamadóttir og Guðmund-
ur Óli Sigurgeirsson fluttu verð-
launaljóð sín úr Ljóðakeppni
MENSA sl. vor.
Hj.Þ.
Steinþór Ingvarsson
látinn
Steinþór Ingv-
arsson, oddviti
Gnúpverja-
hrepps, lést hinn
16. febrúar sl. á
sjúkrahúsi í
Reykjavík, 62
ára að aldri.
Jafnframt oddvitastarfinu var
Steinþór bóndi í Þrándarlundi sem
var nýbýli við landnámsjörðina
Þrándarholt þar sem hann var fædd-
ur 23. júlí 1932.
Steinþór var kosinn í hreppsnefnd
Gnúpverjahrepps árið 1974 og á
fyrsta hreppsnefndarfundi sínum var
hann kosinn oddviti sveitarinnar.
Hann hafði því verið oddviti rúm-
lega tvo áratugi er hann féll frá.
Sem oddviti gegndi Steinþór
margvíslegum störfum í þágu
hreppsins, átti sæti í stjómamefnd-
um sameiginlegra stofnana hrepp-
anna í uppsveitum Ámessýslu, s.s.
heilsugæslustöðvar í Laugarási og