Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 11
UMH VERFISMAL
hverfisráðuneytið. Nefndina skipa, auk for-
mannsins:
Guðmundur Þ Jónsson, tilnefndur af Al-
þýðusambandi Islands, Guðni Gíslason, til-
nefndur af Bandalagi íslenskra skáta, Hulda
Valtýsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, Katrín Gunnarsdóttir, tilnefnd
af Iþróttasambandi Islands, Olafur R. Dýr-
mundsson, tilnefndur af Búnaðarfélagi Is-
lands, Oskar Maríusson, tilnefndur af Vinnu-
veitendasambandi Islands, Ragnheiður Jóns-
dóttir, tilnefnd af Kennarasambandi Islands,
Sigrún Helgadóttir, tilnefnd af Náttúruvemd-
arráði, Svanhildur Skaftadóttir, tilnefnd af
Landvernd, Sigurður A. Þráinsson, tilnefnd-
ur af umhverfisráðuneytinu.
Tilgangur umhverfisráðuneytisins með
þátttöku í náttúruverndarárinu er að stuðla
að:
• aukinni þátttöku almennings í náttúru-
vemd,
• almennri vitundarvakningu, ekki síst
meðal bama, um mikilvægi náttúru- og um-
hverfisvemdar,
• aukinni náttúruvernd og útivist í nágrenni
þéttbýlis,
• aukinni áherslu skipulagsyfirvalda og
sveitarstjóma á vemdun náttúrulegra svæða í
nágrenni byggðar.
Markmiðið er að opna augu fólks fyrir
þýðingu og mikilvægi náttúrulegra svæða og
benda stjórnvöldum, landnotendum, skipu-
lagsyfirvöldum og fleirum á nauðsyn þess að
taka tillit til náttúrunnar og náttúrulegra
svæða við skipulagningu landnýtingar, þró-
un byggðar og atvinnuuppbyggingu.
„Peir komu og þeir fóru“. Mynd Sigrúnar Stefánsdóttur sem hlaut 1. verölaun í
Ijósmyndasamkeppni Evrópuráösins í tilefni Náttúruverndarárs Evrópu.
Setning ársins
Náttúruvemdarár Evrópu 1995 var sett í Strasborg
þann 31. janúar síðastliðinn að viðstöddum þingmönn-
um aðildarríkjanna á Evrópuráðsþinginu og fulltrúum
undirbúningsnefnda allra þátttökulanda í árinu. Hér á
landi var náttúruvemdarárið hins vegar sett formlega í
Ráðhúsi Reykjavíkur þann 4. febrúar. Við það tækifæri
var opnuð farandsýning á 33 verðlaunamyndum úr ljós-
myndasamkeppni sem Evrópuráðið efndi til á síðasta ári
í tilefni Náttúruvemdarársins. Alls bámst 2.200 myndir í
keppnina frá 33 löndum. Einn íslendingur tók þátt í
þessari samkeppni, þ.e. Sigrún Stefánsdóttir fréttamaður
og vann hún til fyrstu verðlauna fyrir ljósmynd sem hún
tók á Grænlandi. Þrjú eintök af sýningunni verða á
flakki milli Evrópulandanna á þessu ári.
Ákveðið var að setja árið fomilega hér á landi 4. febr-
úar í tengslum við opnun ljósmyndasýningarinnar, þrátt
fyrir að dagskrá ársins liggi ekki fyrir, til þess að kynna
náttúruvemdarárið og hvetja sem flesta til þátttöku. Það
er von umhverfisráðuneytisins að góð samvinna takist
við sveitarfélög, stofnanir, félög, áhugamannasamtök,
fyrirtæki og klúbba um þátttöku í Náttúruvemdarári Evr-
ópu 1995 og að á næstu vikum verði sett upp dagskrá
með þátttöku sem Uestra aðila.
Merki ársins
Við setningu ársins var
kynnt merki og einkunn-
arorð ársins hér á landi. Náttúruverndarár Evrópu 1995
Hið íslenska merki Nátt Hyggjum að framtíðinni - Hlúum að náttúrunni
úruverndarárs Evrópu
1995 er útfærsla Áslaugar Jónsdóttur myndlistarmanns á
hugmyndinni um þjóðarbióm fslendinga, holtasóley.
Einkunnarorð náttúruverndarársins eru: Hyggjum að
framtíðinni - Hlúum að náttúrunni.
5