Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 62

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 62
HEILBRIGÐISMÁL Heilsuefling hefst hjá þér Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfrœðingur og verkefnisstjóri heilsueflingar Snemma árs 1994 hófst undirbún- ingur að verkefni sem hlaut yfir- skriftina heilsuefling hefst hjá þér, eins og frá var skýrt í 4. tbl. Sveitar- stjórnarmála 1994. Verkefnið er samstarf heilbrigðisráðuneytis og landlæknisembættis. Verkefnis- stjórn er skipuð sex fulltrúum sem eru frá heilbrigðisráðuneyti, land- lækni, heilsugæslu og fleiri aðilum. Ráðinn var verkefnisstjóri til að stýra framkvæmdum. Tilgangurinn er að auka þátt heilsueflingar í heilsugæslu og að styrkja samstarf heilsugæslu og ann- arra sem vinna á þessu sviði. MarkmiÖ verkefnisins eru að: • Vekja almenning til ábyrgðar og umhugsunar um heilbrigða lífshætti. • Bæta þekkingu almennings á áhættuþáttum langvinnra sjúkdóma og slysa. • Auka vilja og möguleika almenn- ings til að lifa heilsusamlegu lífi. • Samhæfa starfskrafta og við- fangsefni eins og kostur er. Markmið verkefnisins koma heim og saman við íslenska heilbrigðisá- ætlun sem áður var minnst á, eink- um 6. kaflann um heilbrigða lífs- hætti þar sem lýst er leiðum til að efla heilbrigði meðal Islendinga. Heilsubæir Efnt var til samstarfs við fjögur bæjarfélög. - Fyrirmynd að slíku samstarfi er meðal annars verkefnið um heilbrigði í borgum sem er lýst hér að framan. - Samkomulag er um samstarf við heimamenn til að minnsta kosti tveggja ára. Bæirnir eru nefndir heilsubæir og eru Hafn- arfjörður, Hornafjörður, Húsavík og Hveragerði. A hverjum stað eru tveggja til þriggja manna fram- kvæmdanefndir með fulltrúum heilsugæslu, bæjarfélags og íþrótta- félaga. Framkvæmdanefndir skipu- leggja og leiða aðgerðir í samvinnu við verkefnisstjóm og fulltrúa skóla, félaga og fyrirtækja eftir því sem við á. Könnun Að loknu samráði við heimamenn og áður en til framkvæmda kom var gerð könnun á lífsháttum og líðan meðal fbúa í bæjunum fjórum. Fé- lagsvísindastofnun Háskóla Islands framkvæmdi könnunina í apríl 1994. Spurt var 10 spurninga um lífshætti og líðan. Stuðst var við slembiúrtak úr þjóðskrá sem náði til 1500 manna á aldrinum 18 til 75 ára. Auk þess var gerð könnun með- al íbúa heilsubæjanna fjögurra þar sem einnig var stuðst við slembiúr- tak úr þjóðskrá. Niðurstöður verða lagðar til grundvallar við mat á árangri verk- efnanna í bæjunum fjórum. I könnuninni kemur fram meðal annars munur sem er á lífsstíl fólks, til dæmis þegar tekið er tillit til lengdar skólagöngu, stéttar, kyns og búsetu. Lífsstíll og lengd skólagöngu Lengd skólagöngu hefur áhrif á líðan og lífshætti fólks. Háskóla- menntuðum líður betur andlega og líkamlega miðað við þá sem hafa skemmri menntun. Þeir reykja minna og taka frekar mið af hollustu matar en þeir sem hafa skemmri menntun. Hins vegar finna háskóla- menntaðir oftar fyrir streitu og drekka oftar áfengi en þeir sem hafa grunnskólapróf eða próf úr fram- haldsskóla. Háskólamenntaðir sýna meiri árvekni varðandi heilsuna, láta mæla blóðþrýsting oftar og nota oftar bílbelti en þeir sem hafa skemmri menntun. Lífsstíll og líðan karla og kvenna Konur temja sér fremur heilsu- samlegt líferni en karlar. Þær taka oftar mið af hollustu við val á mat og við matargerð, neyta sjaldnar áfengis, nota oftar bílbelti og láta oftar mæla blóðþrýsting. Líkamleg og andleg líðan karla og kvenna er nokkuð svipuð. Lífsstíll og líðan í höfuðborg og á landsbyggð Ekki er mikill munur á lífsstíl og líðan þegar borin eru saman svör frá íbúum á höfuðborgarsvæði annars vegar og frá íbúum á landsbyggð hins vegar. Þó sést að íbúar á höfuð- borgarsvæði spenna oftar bflbelti og taka oftar mið af hollustu matar en þeir sem búa á landsbyggð. Verkefni í heilsubæjum Við undirbúning verkefna í bæj- unum voru kynntar hugmyndir og ræddar leiðir. Leitað var fyrirmynda í þeim verkefnum sem lýst var hér að framan auk annarra verkefna. 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.