Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 42
ÍPRÓTTIR OG ÚTIVIST
verksamningar við heimamenn og
að auki 3 samningar við aðra aðila.
Segja má að þctta fyrirkomulag hafi
gefist vel og framkvæmdaáætlun
stóðst ágætlega.
Hönnuðir
Eins og áður hefur komið fram,
teiknaði Gísli Gíslason arkitekt,
Pósthússtræti 9, húsið. Hönnun hf.,
Síðumúla 1, sá um verkfræðiteikn-
ingar ogVerkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen hf. (VST hf.), Armúla
4, sá um teikningar á rafmagni. Þá
sá verkfræðistofan Hönnun og ráð-
gjöf hf. á Reyðarfirði unt eftirlit
með framkvæmdum.
íþróttasalur
Salur hússins er 442 m: eða
15x29,5 m leiksvæðið. Brúttó fer-
metrastærð salarins er 569 m:.
Veggir salarins eru steyptir upp í
þriggja metra hæð ásamt kjallara
undir baðhús og baðhús er einnig
steypt. Ofan á salinn er síðan komið
fyrir límtrésbitum og utan á þá kem-
ur Planja-stálklæðning. Húsið er
einangrað með 100 mm steinull og
klætt innan með spónaplötum. I lofti
salarins er 200 mm þykk steinull og
Frá vígslu íþróttahússins 1. desember sl.
loftið klætt með hljóðdempandi
Planjaplötum. A salargólfi er I4
mm dúkur með 2 mm yfirlagi frá
Pulastik, sem Vélsmiðjan Oðinn sf.
í Keflavík sá um frágang á. Segja
má að efnisval á salargólfið hafi
verið erfiðasta ákvörðunin, enda ein
af þeim mikilvægustu í byggingu
svona húss. Aður en ákvörðun var
tekin fóru sveitarstjórnarmenn og
skoðuðu nokkuð mörg hús og í
framhaldi af því var þremur aðilum
gefinn kostur á að gera tilboð í gólf-
dúkinn og var Pulastik ódýrast. Þeg-
ar velja á efni á gólf íþróttahúsa þarf
að taka tillit til sjónarmiða bolta-
manna og frjálsíþróttamanna. Við
teljum að við höfum farið leið sem
er ásættanleg fyrir boltamenn, en
uppfyllir þó ströngustu kröfur
þýskra Din-staðla um iðkun annarra
íþrótta.
Barnakór Tónskóla Djúpavogs söng viö vígsluna. Á miöri mynd er stjórnandi kórsins,
Erika Jaszayi, kennari viö Tónskólann, og lengst til vinstri á myndinni skólastjórinn,
Laszló Juhász, sem annaöist undirleik á gítar ásamt tveimur nemendum. Pau eru bæöi
ungversk. Myndirnar meö greininni tók Jónas Pór Jóhannsson.
Þjónustukjarni og tengi-
bygging
Þjónustu- og tengibyggingar eru
samtals 365 nr með kjallara. Þar af
er kjallari 128 m:. I honum er kom-
ið fyrir tækjaklefa, þreksal og
saunabaði ásamt Ijósabekk. A efri
hæð eru böð, móttaka og kaffistofa.
Tónskólinn hefur aðstöðu þar og þá
var ákveðið að láta Ungmennafélag-
ið Neista hafa herbergi fyrir aðstöðu
sína. Verktakar buðu út innréttingar
í þjónustukjarnann. Tekið var til-
boðum frá trésmiðjunni Ymi sf. á
Akureyri í skápa og innréttingar.
Hurðir eru frá Birkitré sf. á Egils-
stöðum, handrið og stálsmíði frá
Vélsmiðjunni Kofra í Hafnarfirði.
Þá sá Malland hf. á Djúpavogi um
36