Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 69
KYNNING SVEITARSTJÓRNARMANNA
garðyrkjumeistara með náminu við
Garðyrkjuskólann. Sambýlismaður
Elínar er Hermann Stefánsson frá
Höfn.
Regína Ásvaldsdóttir
nýr félagsmálastjóri
á Sauðárkróki
Regína As-
valdsdóttir fé-
lagsráðgjafi hef-
ur verið ráðin fé-
lagsmálastjóri á
Sauðárkróki frá
1. janúar sl. Tek-
ur hún við starf-
inu af Matthíasi Viktorssyni sem
var félagsmálastjóri Sauðárkróks í
12 ár. Matthías er nú búsettur í Nor-
egi.
Regína er fædd 30. júní 1960,
dóttir hjónanna Ernu M. Jóhanns-
dóttur skrifstofumanns og Asvaldar
Andréssonar bifreiðasmiðs. Regína
ólst upp í Kópavogi og lauk stúd-
entsprófi af málasviði Menntaskól-
ans í Kópavogi árið 1981.
Á árunum 1982 til 1983 stundaði
Regína nám í afbrotafræði við Há-
skólann í Osló og nám í félagsráð-
gjöf á árunum 1984 til 1987.
Regína starfaði við fósturmál og
ættleiðingar á Barnaverndarskrif-
stofu Óslóarborgar 1987 til 1988 og
í fjölskyldudeild Félagsmálastofn-
unar Kópavogs árið 1988 til 1989.
Hún starfaði hjá Félagsmálastofn-
un Reykjavíkurborgar árin 1989 til
1993, lengst af sem forstöðumaður
vistunarsviðs en einnig við könnun
og skýrslugerð varðandi málefni
vegalausra barna og sem forstöðu-
maður unglingaathvarfs.
Síðastliðið ár starfaði Regína við
foreldraráðgjöf á göngudeild bama-
og unglingageðdeildar við sjúkra-
húsið í Askim í Noregi.
Regína tók virkan þátt í starfsemi
Kvennaráðgjafarinnar á árunum
1989 til 1993, sat í stjóm Stéttarfé-
lags íslenskra félagsráðgjafa 1990
til 1992 og í ritstjóm norræna tíma-
ritsins Nordisk sosialt arbeid í tæp
tvö ár.
Regína á tvær dætur, Emu Maríu
og Ýr Þrastardætur fæddar 1981 og
1984.
Vænn kostur þar sem tími og peningar skipta máli
Frábær hitaeinangrun, steinull frá 25 cm
þykkt.
Frábær hljóðeinangrun, Rw gildi frá 50 DB.
Burðarhaf eininganna er allt að 12
metrum.
Þyngd eininga er aðeins 45 kg hver
fermetri.
Ytri klæðning getur verið Sarnafil dúkur
eða bárujárn.
Mjög hagstætt verð.
fagtún hf
Póstmiðstöð Jönköping
Simi 621370 Fax 621365
Verslunarmiðstöð í Karlstad
Einingarnar koma á byggingarstað tilbúnar
að utan og innan. Uppsetningin er eftir því
fljótleg eða 500-1000 m2 á dag.
Lett-tak er vinsælasta þakeiningin í Noregi.
Þar hafa Lett-tak einingar verið notaðar á
þök póstþjónustunnar, á flugskýli SAS og
á fjölmörg íþrótta- og verslunarhús, að
ógleymdum þúsundum fermetra í
Lillehammer.
63