Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Síða 69

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Síða 69
KYNNING SVEITARSTJÓRNARMANNA garðyrkjumeistara með náminu við Garðyrkjuskólann. Sambýlismaður Elínar er Hermann Stefánsson frá Höfn. Regína Ásvaldsdóttir nýr félagsmálastjóri á Sauðárkróki Regína As- valdsdóttir fé- lagsráðgjafi hef- ur verið ráðin fé- lagsmálastjóri á Sauðárkróki frá 1. janúar sl. Tek- ur hún við starf- inu af Matthíasi Viktorssyni sem var félagsmálastjóri Sauðárkróks í 12 ár. Matthías er nú búsettur í Nor- egi. Regína er fædd 30. júní 1960, dóttir hjónanna Ernu M. Jóhanns- dóttur skrifstofumanns og Asvaldar Andréssonar bifreiðasmiðs. Regína ólst upp í Kópavogi og lauk stúd- entsprófi af málasviði Menntaskól- ans í Kópavogi árið 1981. Á árunum 1982 til 1983 stundaði Regína nám í afbrotafræði við Há- skólann í Osló og nám í félagsráð- gjöf á árunum 1984 til 1987. Regína starfaði við fósturmál og ættleiðingar á Barnaverndarskrif- stofu Óslóarborgar 1987 til 1988 og í fjölskyldudeild Félagsmálastofn- unar Kópavogs árið 1988 til 1989. Hún starfaði hjá Félagsmálastofn- un Reykjavíkurborgar árin 1989 til 1993, lengst af sem forstöðumaður vistunarsviðs en einnig við könnun og skýrslugerð varðandi málefni vegalausra barna og sem forstöðu- maður unglingaathvarfs. Síðastliðið ár starfaði Regína við foreldraráðgjöf á göngudeild bama- og unglingageðdeildar við sjúkra- húsið í Askim í Noregi. Regína tók virkan þátt í starfsemi Kvennaráðgjafarinnar á árunum 1989 til 1993, sat í stjóm Stéttarfé- lags íslenskra félagsráðgjafa 1990 til 1992 og í ritstjóm norræna tíma- ritsins Nordisk sosialt arbeid í tæp tvö ár. Regína á tvær dætur, Emu Maríu og Ýr Þrastardætur fæddar 1981 og 1984. Vænn kostur þar sem tími og peningar skipta máli Frábær hitaeinangrun, steinull frá 25 cm þykkt. Frábær hljóðeinangrun, Rw gildi frá 50 DB. Burðarhaf eininganna er allt að 12 metrum. Þyngd eininga er aðeins 45 kg hver fermetri. Ytri klæðning getur verið Sarnafil dúkur eða bárujárn. Mjög hagstætt verð. fagtún hf Póstmiðstöð Jönköping Simi 621370 Fax 621365 Verslunarmiðstöð í Karlstad Einingarnar koma á byggingarstað tilbúnar að utan og innan. Uppsetningin er eftir því fljótleg eða 500-1000 m2 á dag. Lett-tak er vinsælasta þakeiningin í Noregi. Þar hafa Lett-tak einingar verið notaðar á þök póstþjónustunnar, á flugskýli SAS og á fjölmörg íþrótta- og verslunarhús, að ógleymdum þúsundum fermetra í Lillehammer. 63

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.