Sveitarstjórnarmál - 01.03.1997, Qupperneq 27
FRÆÐSLUMÁL
HELIOS II - Gullverðlaun til
Lundarskóla á Akureyri ifyrir frá-
bært starf að blöndun fatlaðra
Trausti Þorsteinsson, bœjarfulltrúi í Dalvíkurbæ ogfv. frœðslustjóri
Þrátt fyrir að nú um stundir hafi blásið heldur kaldir
vindar um íslenskt skólastarf í ljósi niðurstaðna alþjóð-
Iegrar könnunar á kunnáttu nemenda í stærðfræði og
náttúrufræðum, bárust á haustdögum þær ánægjulegu
fréttir að íslenskir kennarar hefðu unnið til tvennra verð-
launa, gulls og silfurs, í evrópskri samkeppni um bestu
verkefni vegna kennslu fatlaðra nemenda í almennum
grunn- og framhaldsskólum. Samkeppnin var hluti af
HELIOS II sem var víðtæk samstarfsáætlun á vegum
Evrópusambandsins (ESB) um málefni fatlaðra. Mark-
miðið með áætluninni var að stuðla að blöndun í skóla-
starfi á öllum skólastigum. Gullverðlaun hlaut Ingibjörg
Haraldsdóttir fyrir hönd kennara við Lundarskóla á Ak-
ureyri og silfurverðlaun hlaut Agústa Gunnarsdóttir,
kennslustjóri við Menntaskólann í Hamrahlíð.
Samkeppninni var skipt niður í sex efnisflokka en alls
tóku 17 Evrópuþjóðir þátt. Lentu Islendingar í öðru sæti
í heildarflokki ásamt Svíum en Finnar urðu í fyrsta sæti.
Verðlaunaverkefnin eru nú til kynningar víða í Evrópu.
Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Brussel í
desember sl.
Blöndun í skólastarfi
Blöndun lýtur að þróun og umbótum í skólastarfi með
það að markmiði að veita bestu menntun öllum nemend-
um þar sem nemendur með sérþarfir eru jafnir þátttak-
endur í skólastarfinu í stað þess að þeim sé skákað í sér-
skóla eða sérdeildir. Allt frá 1974 hefur staðið óbreytt
það markmið grunnskólalaga að grunnskólinn skuli leit-
ast við að haga störfum sínum í sem fyllsta samræmi við
eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, heil-
brigði og menntun hvers og eins. Þrátt fyrir einstök
markverð verkefni á sviði blöndunar reynist markmiðið
torsótt leið og vandrötuð og enn er deilt hér á landi um
hversu langt sé hægt að ganga að þessu leyti þrátt fyrir
þátttöku Islands í yfirlýsingum eins og þeirri að:
„almennir skólar séu virkasta aflið til að sigrast á
hugarfari mismununar, móta umhverfi sem tekur fötluð-
um opnum örmum, móta þjóðfélag án aðgreiningar og
koma á menntun öllum til handa; enn fremur megni þeir
að veita þorra harna góða menntun og stuðli að skil-
virkni menntakerfisins í heild og hœti, þegar til lengdar
lœtur, nýtingu fjármuna“. (Salamancayfirlýsingin 1995,
8).
Verkefni Lundarskóla
Verkefni það sem lagt var til grundvallar verðlaunum
Lundarskóla var blöndun alvarlega fatlaðs drengs í al-
mennt skólastarf. Við fæðingu hafði hann hlotið alvar-
legan skaða sökum skorts á súrefnisflæði til höfuðs. Af-
leiðing þess er sú að hann er 100% öryrki, getur ekki
staðið uppréttur, hefur litla hreyfigetu og hefur alla tíð
verið bundinn hjólastóli. Hann getur ekki talað en hefur
öðlast allgóðan málskilning enda andlegur þroski talinn
vera við eðlileg mörk. Við tveggja ára aldur var hann
settur á leikskóla þar sem hann fékk þjónustu þar til
skyldunám hans hófst. Hann og foreldrar hans höfðu
notið þjónustu Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á
Akureyri og að frumkvæði skrifstofunnar var drengurinn
kynntur sérfræðingum fræðsluskrifstofunnar og óskað
eftir því að undirbúningur að skólagöngu hans yrði haf-
inn tímanlega. Þar sem ekki höfðu verið gerðar tilraunir
með blöndun svo alvarlega fatlaðs nemanda áður var
hvert skref sem tekið var íhugað af kostgæfni.
Sérskóli - aimennur skóli?
Við undirbúning skólagöngu drengsins kom til álita
hvort leita ætti skólavistar í sérskóla, eins og gjarnan
tíðkast með börn með svo miklar sérþarfir, ellegar búa
honum aðstæður í almennum grunnskóla. Af hálfu
fræðsluskrifstofu var markvisst unnið að því að öll böm
fengju nám í heimaskóla eins og sérkennslureglugerð
kvað á um og í starfi ráðgjafarþjónustu skrifstofunnar
var áhersla á þetta lögð. Beindist ráðgjöf að því að í öllu
skólastarfi væri tekið mið af mismunandi persónugerð,
þroska, hæfileikum, getu eða áhugasviðum nemenda
eins og grunnskólalög kváðu á um. Af hálfu foreldra,
Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra og Fræðsluskrif-
stofu Norðurlandsumdæmis eystra var farið yfir mögu-
leika á skólagöngu og foreldrum kynntir hvaða kostir
byðust. Að ósk foreldra var ákveðið að drengurinn sækti
sinn hverfisskóla sem er Lundarskóli á Akureyri. Var sú