Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Blaðsíða 47
FÉLAGSMÁL
þú vakir og hvemig þú ert ef þú sefur, og hvort
þú sért yfirleitt til. Það langar mig að vita.
Það er um þetta og ekkert annað sem framtíð félags-
þjónustunnar snýst. Hver emm við? Eða réttara sagt:
Hver ert þú og hvar ertu? Því án þín er ég ekkert. Ég er
einungis ég andspænis þér. Og ef þú ert ekki hér, hvar í
ósköpunum er ég sjálfur? Ég er auðvitað staddur í sal í
Kópavogi og stend á sviði andspænis ykkur sem sitjið
þögul í myrkrinu og hlustið á ffamandi rödd, fmnið hana
þrýsta sér inn í hlustir ykkar. En hver emð þið? Og hvað
veit ég um ykkur? í sannleika sagt veit ég ekki einu sinni
hvort þið emð héma. Þið getið verið í huganum víðs
fjarri þessum sal, þessum stað og þessari stund. Verið
djúpt sokkin í áhyggjur yfir aðstandendum eða skjól-
stæðingum. Verið á fjöllum eða fjarlægum sólarströnd-
um. Og hvort sem þið emð hér eða þar veit ég ekkert
hvemig ykkur líður, hvað ykkur dreymir eða hvort þið
sofið draumlausum svefni. En ég neita því ekki: Þetta
langar mig til að vita.
Eg trúi því, en mér kann að skjátlast, að þessi löngun
til að vita, sem skáldið tjáir og ég túlka af veikum mætti,
sé eina skilyrði skapandi og gefandi samskipta okkar
sem hugsandi vera. Því það er það sem við erum:
„Hugsandi vemr“ og ekkert annað. Allt annað em hlut-
verk sem við leikum eða okkur er kastað inn í af örlög-
um eða aðstæðum sem við ráðum litlu eða engu um og
enginn veit með vissu hvemig til em komin. Þess vegna
eigum við allt hvert undir öðm og þess vegna veltur lika
allt á þeirri samstöðu sem við sýnum hvert öðru sem
hugsandi vemm, vemm sem em til með því að fara í
huganum um heiminn og em í rauninni ósýnilegar nema
þegar þær hittast og finna sér samastað i skilningi á því
sem gefur lífinu gildi.
Eigi félagsþjónusta framtíð fyrir sér er það vegna þess
að hún verður tákn þeirrar samstöðu sem við, sem hugs-
andi vemr, verðum að sýna ef við eigum yfirleitt að vera
sýnileg hvert öðm. Sú samstaða er ekki fólgin í því að
vera i stöðu gefenda eða þiggjenda, heldur hinu að upp-
götva hvert annað, uppgötva sjálfan sig andspænis
annarri vem og aðra vem eins og sjálfan sig.
Þetta er tilgangur félagsþjónustunnar og ekkert annað.
Hann er sá að skapa öllum manneskjum, sem misst hafa
fótanna í lifinu og vilja standa á fætur, skilyrði til að
sýna sig eins og þær sjálfar vilja andspænis öðmm. Og
gera með því mennsku okkar sýnilega mitt í tilgangs-
lausum hamagangi framboðsins sem aldrei svarar effir-
spuminni.
Gerið verðsamanburð
Kf AUSTURSTF NN
^ott úrval af hellum og steinum.
Margbreytilegir samsetningar-
og mynsturmöguteikar.
s0r
Fjölbreyttir notkunarmöguleikar
Innkeyrslur • Stéttar • Garðstígar • Sólpallar • Bíla-
stæði *Götur*Hringtorg • Umferðareyjur- o.m.fl.
Skrúðgarðyrkjumeistarinn Jón Hákon Bjamason aðstoðar
við val á efni og útfærslur hugmynda.
17 • 112 Reykjavík • Si'mi 587 2222 • Fax 587 2223
1 09