Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 56

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 56
Afmæli Birgir Þórðarson, fyrrv. oddviti: Eyjafjarðarsveit 10 ára Laugardaginn 7. júlí sl. var þess minnst með mannfagnaði í Eyjafjarðarsveit að tíu ár voru liðin síðan sveitarfélagið var stofnað, en það var gert með sameiningu þriggja sveitarfélaga í Eyjafirði, sem voru Hrafnagilshreppur, Saurbæjarhreppur og Öngul sstaðahreppur. Fyrir hönd sveitarstjórnar voru það menningar- málanefnd og íþrótta- og tómstundanefnd sveitar- félagsins sem af þessu tilefni efndu til hátíðahalda með myndarlegum hætti. Hófust þau með fjöl- skyldusamkomu við Hrafnagilsskóla eftir hádegið þar sem boðið var upp á ýmis skemmtiatriði fyrir unga og gamla, þar á meðal var sungið lag og ljóð sem á sínum tíma var samið í tilefni af stofnun sveitarfélagsins. Um kvöldið var síðan dagskrá í hátíðartjaldi við blómaskálann Vín, með kvöldverði, ávörpum, söng og öðrum skemmtiatriðum. Þar fluttu ávörp og ræður Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráð- herra svo og núverandi og fyrrverandi sveitar- stjórnarmenn. Þótt tíu ára afmælisins væri minnst þennan dag, 7. júlí, var sveitarfélagið þá komið nokkuð á ellefta árið, en sameining gömlu hreppanna tók gildi 1. janúar 1991 og er sá dagur talinn stofndagur Eyjafjarðarsveitar, en hentugra þótti að minnast ■ Greinarhöfundur var síðasti oddviti Önguls- staðahrepps og hafði verið oddviti frá 1984 til 1990, er hreppurinn sameinaðist Hrafnagilshreppi og Saurbœjarhreppi, og varð síðan fyrsti oddviti Eyja- fjarðarveitar 1990 og var oddviti til 1998. Hann hafði þá verið 24 ár í sveitarstjórn. A afmœlis- hátíðinni sagði Birgir Þórðarson frá undirbún- ingi sameiningarinnarfyrir 10 árum. afmælisins að sumarlagi frekar en um hávetur þegar allra veðra er von. Fyrsti fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar var hins vegar haldinn laugardaginn 12. janúar 1991 og hafði þá raunar verið frestað um nokkra daga vegna ófærðar. Fundurinn var haldinn í íþróttahúsi Hrafnagilsskóla og var boðið til hans öllum íbúum sveitarfélagsins. Kom þar til fundar- ins nokkuð á ijórða hundrað manns og var öllum viðstöddum boðið til kaffisamsætis. Eftir að störfum þessa fyrsta fúndar sveitar- stjórnar lauk, þar sem fór fram kosning oddvita og varaoddvita, ásamt samþykkt nokkurra fram- borinna tillagna, fluttu nokkrir boðsgestir ávörp, þar á meðal Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi félagsmálaráðherra, sem lét í ljós ánægju með þá sameiningu sveitarfélaga sem hér hafði átt sér stað og árnaði nýkjörinni sveitarstjórn og íbúum sveit- arfélagsins heilla í því sambandi. Segja má að með þessari sameiningu sveitar- félaga i Eyjafirði, sem var sú stærsta sem hafði átt sér stað á þeim tíma, hafi að ýmsu leyti verið rudd brautin fýrir frekari sameiningum sveitarfélaga, sem gerðar voru á næstu árum, og þó einkum effir að lauk störfum svokallaðra sveitarfélaganefnda sem skipaðar voru af félagsmálaráðuneyti til að fjalla um sameiningu sveitarfélaga. Leiddi starf þeirra nefnda til atkvæðagreiðslna um sameiningu víðs vegar um land í byrjun vetrar 1993. Sú þróun hefur þó að ýmsu leyti gengið hægar en stefnt var að af stjórnvöldum. Rétt er að taka fram að sameiningin sem leiddi til stofnunar Eyjafjarðarsveitar var alfarið gerð að frumkvæði heimamanna, án þess að til kæmi nokkur þrýstingur af hálfú stjómvalda. Hér var um að ræða þrjú sveitarfélög sem öll voru meðal stærri dreifbýlissveitarfélaga á landinu og voru öll allvel stæð ljárhagslega. Hitt er líka rétt að hér voru aðstæður til samein- ingar góðar þegar litið er til landfræðilegra aðstæðna og mikillar samvinnu sveitarfélagnna á íyrri árum.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.