Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 64

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 64
Fulltrúaró&sfundir Lagafrumvörpin afturköliuð Félagsmálaráðuneytið tilkynnti stjórn sambands- ins í bréfi hinn 18. maí að ríkisstjórnin hefði sam- þykkt hinn 11. maí að falla frá flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaga og að afturkalla lagafrum- vörp þess efnis.Á fundi hinn 25. maí samþykkti stjórn sambandsins svofellda ályktun um málið: „Stjórnin vísar til þess að mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning að yfirfærslu máleína fatlaðra frá ríki og sveitarfélaga á undanförnum misserum og að nú eru að störfum verkefnisstjórn og samn- inganefnd sem vinna eiga drög að samningi milli ríkis og sveitarfélaga um málið í heild sinni, þ. á m. um flutning tekna til sveitarfélaganna til að mæta kostnaði við verkefni sem þau yfirtaka. Fulltrúaráð sambandsins staðfesti samhljóða á fundi sínum 29. mars sl. vilja sveitarfélaganna til að færa málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga 1. janúar 2003. Jafnframt samþykkti fúlltrúaráðið að til að tryggja sem besta sátt um yfirfærsluna yrðu öll frumvörp um málið afgreidd á haustþingi og að á sama tima yrði gengið frá samningi milli ríkis og sveitarfélaga um árlega endurskoðun á tekj- um og gjöldum sveitarfélaga vegna málefna fatlaðra næstu þrjú árin. I ljósi ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að afturkalla frumvarp til laga um félagsþjónustu sveit- arfélaga og fylgifrumvörp á nýafstöðnu þingi og falla frá yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveit- arfélaga óskar stjórn sambandsins eftir viðræðum við félagsmálaráðherra um framhald málsins með hliðsjón af stefnumörkun fulltrúaráðs sambandsins 29. mars sl.“ Nýr varafulltrúi í launanefnd Meðal verkefna fulltrúaráðsfundarins 29. mars var að kjósa varafulltrúa í Launanefnd sveitarfélaga í stað Óla Jóns Gunnarssonar, bæjarstjóra í Stykkishólmi, sem beðist hafði undan endurkjöri. Stefán Kalmansson, bæjarstjóri í Borgarbyggð, var kosinn varafulltrúi í stað Óla Jóns. Fleiri og fleiri velja ELGO-Múrklœðningu Helðarskóli f Reykjanesba ELGO-múrklœðnlng hofur verið undir oftirtftf RB síðastliðln 10 ár og hefur hún farlð í gegnum ýmsar prófanlr, svo sem NORDEST NTBuild 66 og staðist þaar allar. ELGO-múrkkcðnlng var tekin út af Blml Marteinssyni verkfrœðingi hfá RB (Rannsóknast.Byggingariðnadarins) K»e»M»Bl'9‘ ,''-'*U»ílniii;|ii itðtii- an Jjn nhvaðiu nniHiá kðirtí) Ð ELGO-múrklœðning var valin á: Heiðarskóla Reykjanesbœ Stjórnsýsluhúsið Þorlákshöfn Endurmenntunarstofnun Háskóla fslands Grindavíkurskóla Grindavík Viðbygging Njarðvíkurskóla ■I steinprýöi Stangarhyl 7 - 567-2777 - www.elgo.is - sala<ielgo.is

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.