Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 75

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 75
Frá landshlutasamtökunum 201 bendir á þá staðreynd að eftirspurn eftir fjarnámi er langt umfram það sem skólar hafa getað sinnt og því sé brýnt að hraða uppbyggingu þessa verkefnis framhaldsskólanna. Félagslega íbúðakerfið Þingið mótmælir harðlega fyrirhugaðri hækkun vaxta á lánum félagslegra leiguíbúða sveitarfélaga. Það bendir á að vaxtahækkunin verður hvorki leiðrétt með vaxtabótum né húsaleigubótum gagn- vart sveitarfélögum sem sitja uppi með íbúðir sem þau geta ekki leigt né selt. Jafnframt telur þingið einsýnt að vaxtahækkunin verði ekki leiðrétt með húsaleigubótum að fullu gagnvart leigjendum og muni því koma sem útgjaldaauki á láglaunafjöl- skyldur. Þá gerði þingið ályktun um endurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga og á samningi um flutning grunnskólans. Loks var samþykkt að fela stjórn SSNV að beita sér fyrir málþingi um aukin tengsl menntastofnana og atvinnulífs á Norður- landi vestra. Til stjórnar SSNV var vísað erindi frá stjórn Far- skóla Norðurlands vestra - miðstöð símenntunar þar sem stjórn farskólans óskar eftir því að SSNV gerist eignaraðili að farskólanum fyrir hönd og í umboði sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra. Jafnframt að erindið verði tekið fyrir á ársþingi samtakanna árið 2001. S^jórn SSNV Formaður SSNV var kosin Elín R. Líndal, Sameining sveitarfélaga Samþykkt að sameina Blönduósbæ og Engihlíðarhrepp Flinn 7. apríl sl. voru í Blönduósbæ og Engi- hlíðarhreppi i Austur-Flúnavatnssýslu greidd atkvæði um það hvort sameina ætti sveitarfélögin. Á Blönduósi voru 660 manns á kjörskrá. Atkvæði greiddu 329 eða 49,85%. Sameininguna samþykkti 301 eða 91,49% en andvigir voru 23. Fimm atkvæðaseðlar voru auðir eða ógildir. Nýkjörinn formaður SSNV, Elín R. Líndal, slítur 8. ársþingi SSNV. Við borðið sitja Ágúst Þór Bragason, fráfarandi formaður SSNV, og forseti þingsins, Gísli Gunnarsson, forseti sveitarstjórnar í Sveitarfélaginu Skagafirði. oddviti Húnaþings vestra, og aðrir í stjórn Árni Egilsson sveitarstjórnarfulltrúi og Einar Gíslason, varamaður í sveitarstjórn í Skagafirði, Björn Magnússon, oddviti Sveinsstaðahrepps, og Ólafur Jónsson, bæjarfúlltrúi á Siglufirði. Einnig voru kosnir tveir skoðunarmenn og íjórir fulltrúar á samráðsfúnd Landsvirkjunar árið 2001 ásamt varamönnum. Næsta ársþing 31. ágúst og 1. september Nýkjörinn formaður, Elín R. Lindal, þakkaði það traust sem sér væri sýnt með því að velja sig til formanns SSNV, þakkaði fráfarandi formanni ágæt störf, heimamönnum móttökurnar og bauð til næsta þings samtakanna sem haldið verður að Stað í Hrútafirði dagana 31. ágúst og l. september. í Engihlíðarhreppi voru 52 á kjörskrá og neyttu 50 þeirra atkvæðisréttar síns. Sammála sameiningu voru 29 eða 58%, 19 voru á móti og tveir seðlar auðir eða ógildir. Gert er ráð fyrir að þessi tvö sveitarfélög sam- einist frá og með næstu sveitarstjórnarkosningum. Hinn l. desember sl. voru ibúar sveitarfélaganna 999, þar af 929 í Blönduósbæ og 70 í Engihlíðar- hreppi.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.