Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Qupperneq 96
Umhverfismál
Stefán Gíslason, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 á íslandi, og
Jóhanna B. Magnúsdóttir, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 í Mosfellsbœ:
Staðardagskrárráðstefna í Mosfellsbæ
2. apríl 2001
Fjórða íslenska landsráðstefnan um Staðardag-
skrá 21 var haldin í Hlégarði í Mosfellsbæ mánu-
daginn 2. apríl 2001. Ráðstefnuna sátu alls 79
manns, þar á meðal 53 fulltrúar frá 21 sveitar-
félagi. Á ráðstefnunni voru flutt ijölmörg fram-
söguerindi og auk þess unnið í sex vinnuhópum.
Á ráðstefnunni voru fulltrúum Mosfellsbæjar og
Hveragerðisbæjar veittar sérstakar viðurkenningar
fyrir góðan árangur í Staðardagskrárstarfinu sið-
ustu 12 mánuði. Aðalviðurkenningin, Staðardag-
skrárverðlaunin 2001, kom í hlut Mosfellsbæjar, en
þar hafði bæjarstjórn samþykkt fyrstu útgáfuna af
Staðardagskrá 21 fyrir bæjarfélagið þann 31. janú-
ar 2001. Það sem einkennt hefúr Staðardagskrár-
starfið í Mosfellsbæ öðru fremur er sú mikla
áhersla sem lögð hefur verið á miðlun upplýsinga
til almennings og á þátttöku almennings á öllum
stigum starfsins. Útgáfa fréttabréfsins Sólargeisl-
ans hefur verið mikilvægur þáttur í því að treysta
tengslin við almenning, en 3. tölublað Sólargeisl-
ans kom einmitt út skömmu fyrir ráðstefnuna.
Frá ráðstefnunni. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Bryndís Bjarn-
arson, fulltrúi í stýrihópi Staðardagskrár 21 í Mosfellsbæ, Jó-
hanna B. Magnúsdóttir, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 í
Mosfellsbae, Stefán Gíslason, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21
á (slandi, og Herdís Sigurjónsdóttir, bæjarfulltrúi og fulltrúi í
stýrihópi Staðardagskrár 21 í Mosfellsbæ. Myndina tók Unnar
Stefánsson.
Hvatningarverðlaun íslenska Staðardagskrár-
verkefnisins 2001 voru á hinn bóginn veitt Hvera-
gerðisbæ fyrir öflugt starf og markvisst samstarf
við skóla og stofnanir. Þar voru drög að fram-
kvæmdaáætlun Staðardagskrár 21 tilbúin til af-
greiðslu í bæjarstjórn í marsmánuði 2001. Drögin
voru síðar samþykkt á hátíðarfúndi bæjarstjórnar á
degi umhverfisins 25. apríl.
Við veitingu Staðardagskrárverðlaunanna 2001
var reynt að meta árangur sveitarfélaganna í Stað-
ardagskrárstarfinu út frá svörum við spurningalista
sem öll sveitarfélögin fengu senda í ársbyrjun. Þau
atriði sem þar var reynt að leggja mat á voru:
• framvinda starfsins (hvaða áföngum er lokið)
• Qölbreytileiki málaflokka sem Staðardagskráin
nær til
• þátttaka hinna ýmsu hópa samfélagsins í áætlun-
argerðinni
• og fleira.
Einnig var það gert að skilyrði við verðlaunaveit-
inguna að viðkomandi sveitarfélag hefði samþykkt
Ólafsvikuryfirlýsinguna.
Meðal fyrirlestra á ráðstefnunni í Mosfellsbæ má
nefna fyrirlestur um vistvænar byggingar, sem
Floyd Kenneth Stein, arkitekt og sérfræðingur í
vistvænni hönnun, flutti. Þá hélt Duncan Priddle,
landvörður i Edinborg, fyrirlestur um náttúru-
fræðslu i þéttbýli, Auður Sveinsdóttir landslags-
arkitekt fjallaði um Staðardagskrá 21 og skipulags-
áætlanir, María Hildur Maack umhverfisstjórnun-
arfræðingur hélt erindi um Staðardagskrá 21 og
menningartengda ferðaþjónusta og loks fjallaði
Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vottun-
arstofunnar Túns ehf., um lífræna framleiðslu og
nýsköpun atvinnulífs.
Að loknum fýrirlestrum skiptust þátttakendur á
ráðstefnunni í sex vinnuhópa, þar sem fjallað var
um eftirtalin viðfangsefni: