Morgunblaðið - 10.12.2011, Side 4

Morgunblaðið - 10.12.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ísland hefur staðið undir nafni undanfarið og landsmenn hafa ekki farið varhluta af því. Frost og kuldi stoppar fólk samt ekki í undirbúningi jólanna. Að sögn kaupmanna í miðbæ Reykjavíkur og Akureyrar hefur kuldinn ekki hægt á jólaversluninni. Fólk klæð- ir hann bara af sér og sækir í jóla- stemninguna. Rok og rigning sé miklu verra veðurfar fyrir verslun en frost og stilla. Frank Michelsen, úrsmiður á Laugavegi, segir jólaverslunina hjá sér hafa farið snemma af stað í ár, fólk virðist hagsýnt og skipu- lagt. „Auðvitað hefur kuldinn ein- hver áhrif en desember er rétt að byrja, nægur tími eftir og mikið opið. Fólk klæðir sig annars vel og nýtur þess að rölta um bæinn sem er orðinn svo fallega skreytt- ur. Þetta er ekki eins slæmt núna og kuldakastið sem gerði í desember í fyrra þegar það var svo mikill blástur með, nú er bara fallegt og gott vetrarveður,“ segir Frank. Fleiri kaupmenn sem blaða- maður ræddi við voru á einu máli um það að kuldinn hefði ekki áhrif á aðsókn í verslanir, fólk virtist al- mennt frekar jákvætt, Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Um þúsund manns heimsækja verslunina Nettó í Mjódd frá klukk- an hálfátta á kvöldin til tíu á morgnana hvern dag, síðan farið var að hafa þar opið allan sólar- hringinn 2. desember síðastliðinn. Með þessum afgreiðslutíma dembdi Nettó sér í jólabókastríðið og hóf að bjóða vænan afslátt af völdum bókum. „Við erum með afslátt af öllum bókum allan sólarhringinn og síðan erum við með sértilboð yf- ir ákveðinn tíma hvort sem er um nótt eða dag. Næturtilboðin gilda frá miðnætti til klukkan átta að morgni,“ segir Stefán Guðjónsson, forstöðumaður innkaupa- & mark- aðssviðs hjá Samkaupum sem reka Nettó verslanirnar. Næturtilboðin á bókunum eru meðal annars til að lokka fólk í búðina á þeim tíma. „Við erum að reyna að fá fólk til að skoða þann möguleika að versla hjá okkur á öðrum tímum en yfir daginn. Það hefur gengið mjög vel og þessi næturtilboð hafa fengið mjög góð- ar viðtökur. Fólk kemur í versl- unina á nóttunni til að fá ákveðnar bækur á tilboði. Bækur seljast upp hjá okkur á nóttunni og við höfum þurft að endurpanta á daginn til að eiga fyrir næsta næturtilboð en til- boðin gilda yfirleitt þrjár nætur í röð.“ Viðtökurnar við nýjum af- greiðslutíma hafa farið langt fram úr væntingum að sögn Stefáns. „Það koma ótrúlegt margir inn frá átta á kvöldin til níu á morgnana og það er ekki bara góð sala í bók- um, heldur líka í geisladiskum, leikföngum og matvöru.“ Stefán segir sólarhringsafgreiðslu vera tilraunaverkefni fram að jólum og verði svo skoðað í framhaldi af því. „Ef viðtökurnar verða svona áfram út mánuðinn má leiða líkum að því að við höldum þessu áfram eftir áramót.“ Bækur seljast upp á nóttunni  Tilboð á bókum lokka fólk í Nettó á nóttunni  Viðtökurnar komu á óvart Morgunblaðið/Ómar Jólabækurnar Seljast stundum upp í Nettó í Mjódd á nóttunni. Guðrún Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Kokku á Laugavegi, segir nóv- embermánuð hafa verið rólegan enda þá verið svo hlýtt í veðri að fólk hafi ekki áttað sig á að jólin væru að nálgast. En desember hafi farið vel af stað og sölutölur eftir fyrstu vikuna séu á pari við sama tíma í fyrra. „Það er stemning að ganga um miðbæinn í svona kulda. Kaup- menn eru líka ánægðir með nýju jólaskreytingarnar í miðborginni sem upphefja íslenskar jólahefðir. Við erum núna að berjast fyrir því að Laugavegurinn verði gerður að göngugötu helgina 17. til 18. desember ef veður verður gott. Það þarf ekki að loka nema fjörutíu bílastæðum og það myndi skapast skemmtileg jólastemning í anda Þorláksmessu. Þetta er stærsta verslunarhelgi ársins og það þarf að gefa gangandi vegfarendum forgang á Laugaveginum,“ segir Guðrún. Kuldinn skapar stemningu LAUGAVEGURINN komið í jólaskap og klæddi sig eft- ir veðri. Notalegur norðlenskur kuldi Á Akureyri var sömu sögu að segja, þar hefur verið kaldara en í höfuðborginni en bjart og fallegt þrátt fyrir mikið frost. Guðrún Karítas Garðarsdóttir, versl- unarstjóri Eymundsson við Hafn- arstræti, segir kuldann ekki hafa stoppað Norðlendinga í að sækja í miðbæinn. „Enda yndislegt veður og gaman að spóka sig úti. Það eru líka margar uppákomur í mið- bænum fram að jólum sem laða að,“ segir Guðrún. Sömu sögu var að segja í hönn- unarversluninni Sirku við Skipa- götu, þar var full búð í gærmorg- un þegar blaðamaður hringdi þrátt fyrir að úti væri tíu gráðu frost og fjúk. Afgreiðslustúlkan gaf sér þó smátíma til að tala í símann og sagði fólk ekki láta kuldann stoppa sig. Því þætti huggulegt að fara í miðbæinn í svo jólalegu veðri, þangað kæmi bæði innan- og utanbæjarfólk og al- menn bjartsýni ríkti í bænum. Morgunblaðið/Golli Miðborgin heillar Fólk lætur kuldann ekki á sig fá heldur klæðir sig vel vegna innkaupa í miðborg Reykjavíkur. Frost og stilla betri en rok og rigning  Kuldinn hefur ekki haft mikil áhrif á verslun í miðbænum Guðrún Jóhannesdóttir Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Ráðgert er að kostnaður við emb- ætti umboðsmanns skuldara árið 2012 verði 1.050 milljónir króna en það er tæp 30% hækkun frá núver- andi áætlun fyrir árið 2011. Enn fremur má gera ráð fyrir að starfsemi embættisins taki nokkr- um breytingum; hún hefur hingað til að megninu til verið fólgin í úr- vinnslu umsókna en mun í auknum mæli snúa að eftirfylgni við gerða samninga. Þetta er meðal þess sem kemur fram í athugasemdum við frumvarp til laga um greiðslu kostn- aðar við rekstur umboðsmanns skuldara. Þar kemur einnig fram að 1.605 mál séu nú í vinnslu hjá embættinu og 1.595 mál í vinnslu hjá umsjón- armönnum en samkvæmt Ástu Sig- rúnu Helgadóttur, umboðsmanni skuldara, hafa embættinu nú borist 3.787 umsóknir um greiðsluaðlögun. Vinnslu er lokið við um 600 mál, þar af rétt yfir 200 með samningi um greiðsluaðlögun. Til stendur að ráða fjóra umsjón- armenn til starfa hjá embættinu á næsta ári, sem hver um sig mun hafa fjóra fulltrúa og skrifstofu- mann. Umsjónarmennirnir hafa það hlutverk að ná samningum við kröfuhafa fyrir hönd skuldara en alls sinna nú 140 lögmenn úti í bæ því hlutverki fyrir embættið. Vinna úr miklum málastafla „Kostnaður við umsjónarmenn er langstærsti útgjaldaliðurinn okkar og það er ódýrara fyrir embættið að þjálfa umsjónarmenn hér innanhúss sem sinna þessu þá í fullu starfi,“ út- skýrir Ásta. Gert er ráð fyrir að um- sjónarmenn innan embættisins ljúki 1.000 málum á næsta ári en umsjón- armenn utan þess 1.250. Ásta segir unnið að því alla daga að vinna úr þeim mikla málastafla sem liggi á borði embættisins en verkefni þess séu mörg. Alls hafi embættið fengið fleiri en 7.000 heimsóknir og því hafi borist um 1.150 erindi. Hún segir þörf fyrir embættið og það sé komið til að vera. „Í dag eru hérna 82 starfsmenn en ef maður horfir til framtíðar þá mun þetta minnka og verkefnin breytast. En þetta embætti er kom- ið til að vera í íslensku samfélagi, það liggur alveg fyrir,“ segir Ásta. Umsjónarmenn stærsti útgjaldaliðurinn  140 lögmenn vinna fyrir umboðsmann skuldara  Kostnaður hækkar um 30% Tímafrekt » Talsverðan tíma tekur að vinna úr málunum sem ber- ast inn á borð umboðsmanns en eftir að umsóknir hafa verið samþykktar þarf að semja við kröfuhafa, sem oft eru margir. » Gert er ráð fyrir að bið eftir afgreiðslu umsókna um greiðsluaðlögun verði tveir til þrír mánuðir haustið 2012 en það er mun styttri bið en haustið 2011. 3 2fyrir af öllu jóla- skrauti 30-60 Opið til kl. 20 lau. og sun. á Korputorgi og Smáratorgi! af pappír, borðum, púðum og kertum Jólapúðar verð frá 1490.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.