Morgunblaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011
Sjálfstæðismenn í borgarstjórnhafa látið reikna út fyrir sig
áhrif skatta- og gjaldhækkana meiri-
hluta Samfylkingar og Besta flokks-
ins á fjölskyldur í borginni.
Útreikningarnirstaðfestu að
hækkanirnar hafa
verið óhóflegar. Þær
samsvara á ári ríf-
lega einum útborg-
uðum mánaðar-
launum meðalmanns.
Hanna BirnaKristjáns-
dóttir, oddviti sjálf-
stæðismanna, sagði
þá vilja lækka skatta
og spara meira í mið-
lægri stjórnsýslu. Brandarinn væri
hættur að vera fyndinn og orðinn af-
ar dýr.
Dagur B. Eggertsson, varafor-maður Samfylkingarinnar,
brást illa við og hélt því fram að út-
reikningarnir væru rangir, auk þess
sem útsvarstillögur Sjálfstæð-
isflokksins væru „gamaldags lýð-
skrum sem engin innistæða er fyrir“.
Tveimur dögum síðar tjáði aðstoð-armaður borgarstjóra sig um
útreikninga sjálfstæðismanna og
sagði enga rangfærslu í þeim.
Rangfærslan var með öðrum orð-um í fullyrðingu Dags um að
útreikningarnir væru rangir.
Hvernig stendur á því að Dagurgrípur til þess bragðs að fara
rangt með staðreyndir?
Er runnið upp fyrir Degi að efkjósendur fá rétta mynd af
stöðunni fær Samfylkingin litlar
þakkir í næstu kosningum?
Dagur B.
Eggertsson
Besti staðfestir
rangfærslur Dags
STAKSTEINAR
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Andri Karl
andri@mbl.is
„Ég hef verið talsvert ánægð með
frammistöðu sveitarfélaga,“ segir
Lára Björnsdóttir, formaður Vel-
ferðarvaktarinnar, um fjárhagsáætl-
anagerð sveitarfélaga fyrir þetta ár
og það næsta. Velferðarvaktin sendi
sveitarfélögum landsins áskorun í
síðasta mánuði þar sem þau voru
hvött til að sýna aðgát við gerð fjár-
hagsáætlana vegna ársins 2012. Þar
voru fulltrúar sveitarstjórna beðnir
að standa vörð um grunnþjónustuna
sem ekki megi draga úr gagnvart
viðkvæmustu hópunum.
Lára segist hafa fengið jákvæð
viðbrögð sveitarfélaga við áskorun-
inni og svo virðist sem hún hafi áhrif.
„Við erum náttúrlega ekki með vönd
heldur fyrst og fremst að benda
sveitarfélögunum á nokkur atriði,
þannig að sveitarstjórnarfulltrúar
viti að við erum að fylgjast með. Þó-
nokkur sveitarfélög hafa sent okkur
orðsendingar eða tekið málið form-
lega fyrir í bæjarstjórnum og sum
sérstaklega þakkað fyrir ábend-
inguna. Önnur láta vita að ekki verði
snert á þeim þáttum sem eru nefndir,
s.s. heimili og börnum.“
Verða að nýta möguleikana
Spurð um stöðu mála segir Lára
augljóst að efnahagsástandið hafi
verið þannig að ekki sé undan því vik-
ist að skera niður eða hækka gjöld,
einhvers staðar verði menn varir við
erfiðleika sveitarfélaga. „Ég hef lagt
áherslu á að þótt allur þorri barna á
landinu hafi það gott þola þeir sem
verst standa niðurskurð illa og gjald-
skrárhækkanir. Þá eru möguleikar
og sveitarfélögin eiga að nýta þá.“
Lára tekur Reykjavík sem dæmi um
að þar sé komið til móts við fátæk-
ustu fjölskyldurnar með viðbótar-
stuðningi.
Hún segir mikilvægt að gera sér
grein fyrir því að gjaldskrárhækkan-
ir komi ekki jafnt niður á öllum. „Því
höfum við bent á að beita ekki flötum
niðurskurði en forgangsraða í þágu
þeirra hópa sem verst standa. Og
sveitarfélögin standa sig nokkuð vel.
Við gerðum könnun í fyrra á þjón-
ustu sveitarfélaga við barnafjöl-
skyldur og börn og það kom í ljós að
þjónustan var umfram lagaskyldu.
Þá kom í ljós að víða leggja sveit-
arfélögin sig fram við að standa vörð
um þá hópa.“
Ákvarðanir í fullu samráði
Meðal þess sem bent er á í áskorun
Velferðarvaktarinnar til sveitarfé-
laga er að fullnægjandi upplýsingar
veðri að vera fyrir hendi um áhrif og
afleiðingar ákvörðunar á íbúa. „Í því
felst að ákvörðunina er best að taka í
anda opins lýðræðis í fullu samráði
við þá sem hún snertir.“ Þá megi
hagræðing og sparnaður á einum
stað ekki leiða til aukinna útgjalda og
álags á öðrum sviðum hins opinbera.
„Ánægð með
frammistöðu
sveitarfélaga“
Fylgst vel með fjárhagsáætlanagerð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fylgist með Lára Björnsdóttir for-
maður Velferðarvaktarinnar.
Veður víða um heim 9.12., kl. 18.00
Reykjavík -10 léttskýjað
Bolungarvík -9 skýjað
Akureyri -10 skýjað
Kirkjubæjarkl. -10 léttskýjað
Vestmannaeyjar -9 heiðskírt
Nuuk -3 skýjað
Þórshöfn -2 skýjað
Ósló 1 skýjað
Kaupmannahöfn 6 léttskýjað
Stokkhólmur 5 skýjað
Helsinki 2 slydda
Lúxemborg 3 léttskýjað
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 2 léttskýjað
Glasgow 1 léttskýjað
London 7 léttskýjað
París 7 skýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 2 skúrir
Berlín 7 skýjað
Vín 6 skýjað
Moskva -1 snjókoma
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 10 heiðskírt
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 17 skýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 8 heiðskírt
Winnipeg -20 heiðskírt
Montreal 1 snjóél
New York 5 heiðskírt
Chicago -4 skýjað
Orlando 21 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:07 15:34
ÍSAFJÖRÐUR 11:50 15:02
SIGLUFJÖRÐUR 11:34 14:44
DJÚPIVOGUR 10:45 14:55
OSTABÚÐIN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00
Gjafavörur
Ostabúðarinnar
f yr ir sælkerann