Morgunblaðið - 10.12.2011, Page 14
ÚR BÆJARLÍFINU
Albert Eymundsson
Hornafjörður
Aðventan heilsaði með blíðu og
mildu veðri eins og haustið hefur
verið lengst af en vetur konungur
minnti svo vel á sig með kuldakast-
inu í vikunni. Mikið framboð er á af-
þreyingu m.a. með landsfrægu tón-
listarfólki og rithöfundum. Jóla- og
heimamarkaðir með áhugaverðu
framboði varnings og matvæla sem
framleidd eru í héraðinu eru jafn-
framt fastir liðir á þessum tíma.
Kvikmyndagerðarfólk er tíðir
gestir í Austur-Skaftafellssýslu og
má segja að sérstakt umhverfi og
einstök náttúra geri héraðið að eft-
irsóknarverðu kvikmyndaveri.
Margar vinsælar kvikmyndir hafa
að hluta verið teknar hér og nú í vik-
unni kvaddi héraðið stór hópur kvik-
myndagerðafólks sem var við upp-
tökur á sjónvarpsþáttunum Game of
Thrones. Mikil ánægja var meðal
þeirra sem komu að upptöku þátt-
anna með aðbúnað og þjónustu
heimamanna.
Myndlistasýningar í húsnæði
Ráðhússins eru ánægjuleg viðbót í
menningarlífið. Nú er í aðalsal mál-
verk eftir Jón Þorleifsson frá Hólum
og í fremra rými áhugaverð sýning á
verkum eftir Elínborgu Pálsdóttur
sem hún málar á rekavið og tunnu-
fjalir.
Glæsilegur árangur nemenda
Grunnskólans í First Lego-
keppninni hefur vakið athygli. Skól-
inn hefur sigrað í þessari keppni
fjórum sinnum sl. fimm ár og var í
öðru sæti eitt árið. Árangurinn er
ekki síst athyglisverður þar sem
skólinn sendir á hverju ári nýtt lið
skipað 12 ára nemendum. Eiríkur
Hansson hefur verið leiðbeinandi
krakkanna öll árin og heldur hóp-
urinn til Þýskalands á vordögum í
aðalkeppnina.
Atvinnuástand hefur verið
gott, ferðaþjónustuaðilar sáttir við
sinn hlut og helsta sjávarútvegsfyr-
irtækið, Skinney-Þinganes, skipu-
leggur veiðar og vinnslu á þann hátt
að starfsfólkið hafi vinnu og laun allt
árið.
Bæjarfélagið er í góðum málum
og stendur vel hvað varðar nýjar
fjármálareglur sveitarfélaga. Í vik-
unni afgreiddi bæjarstjórn fjárhags-
áætlun næsta árs. Framlegð af
rekstri bæjarsjóðs er um 85 m. kr.
og 125 m. kr. af öllum rekstri svo
svigrúm er til framkvæmda um leið
og skuldir eru greiddar niður.
Hornfirðingar
í góðum málum
Ljósmynd/ Maríus Sævarsson
Menning Sýning myndlistarmannsins Elínborgar Pálsdóttur í Ráðhúsinu.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við höfum verið að rannsaka Ísa-
fjarðardjúp, bæði þau svæði sem við
höfum verið á og önnur, og meta
hvar aðstæður eru hagkvæmar fyrir
stækkun,“ segir Kristján G. Jóa-
kimsson, vinnslu- og markaðsstjóri
Hraðfrystihússins-Gunnvarar á Ísa-
firði. Fyrirtækið hefur sótt um
stækkun á leyfum til þorskeldis og
jafnframt um leyfi til eldis á laxi og
regnbogasilungi.
HG hefur leyfi til framleiðslu á
2.000 tonnum af þorski í sjókvíum í
Ísafjarðardjúpi. Kvíarnar eru í
Álftafirði og Seyðisfirði og ein tilrau-
nakví í Skötufirði. Þá er félagið með
seiðaeldisstöð á Nauteyri en önnur
aðstaða í landi, svo sem fóður-
geymsla og sláturhús, er í Súðavík.
Nú hefur umsókn um aukningu og
útvíkkun eldisleyfisins verið send
Skipulagsstofnun. Þar er miðað við
eldi á samtals 7.000 tonnum af fiski
og þar megi rækta lax og regnboga-
silung, auk þorsks. Kristján segir að
sú þekking sem starfsmenn fyrir-
tækisins hafi aflað sér á undanförn-
um árum nýtist við laxeldi, ef hag-
kvæmara reynist að ala laxfiska en
þorsk. Þar sé meðal annars horft til
batnandi aðstöðu með hlýrra veður-
fari.
Hann segir að fylgst sé með stór-
huga uppbyggingu á suðurfjörðum
Vestfjarða og hafi HG flutt seiði fyr-
ir Fjarðalax og Dýrfisk með brunn-
báti sínum. „Það styrkir alla grunn-
gerð í sjókvíaeldi ef fleiri aðilar eru í
þessu og styrkir ákvarðanir okkur
um næstu skref,“ segir Kristján.
„Ekki er tímabært að gefa út stór-
ar yfirlýsingar á þessu stigi málsins.
Efnahagsástandið í heiminum er
ótryggt og blikur á lofti um þróun á
matvælaverði og mikil verðlækkun
hefur orðið á laxi. Við verðum að fara
varlega,“ segir Kristján um áform
næstu ára.
Ef leyfi fæst og eldið verður aukið
stórlega skapast tugir eða hundruð
nýrra starfa við eldi og þjónustu.
HG sækir um leyfi til laxeldis
Hraðfrystihúsið-Gunnvör sækir um leyfi til aukins fiskeldis í Ísafjarðardjúpi Vilja eiga möguleika
á eldi á laxi og silungi auk þorsks Þekking starfsmanna og aðstaða nýtist við eldi fleiri tegunda
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fiskeldi Fóðrið er gefið á jötuna í kvínni í Álftafirði og þorskurinn sækir grimmt í sílið.
HG hefur byggt upp fiskeldi í
tæpan áratug, einkum þorsk-
eldi. Eldið er tvíþætt, annars
vegar eldi á seiðum í slát-
urstærð og hins vegar áframeldi
á villtum smáþorski.
Slátrað var rúmlega 700
tonnum af þorski í Súðavík á
síðasta ári. Heldur hefur dregið
úr síðan. 100 tonn komu úr
slátrun í haust og nú er slátrun
hafin af krafti á ný. Slátrað er
15-20 tonnum á dag fram yfir
áramót. Reiknar Kristján G. Jóa-
kimsson með að framleiðslan í
ár verði 400-500 tonn.
Uppbygging þorskeldis hefur
ekki orðið eins hröð og áætlað
var, hvorki hér né í Noregi. Eldið
hefur ekki skilað hagnaði og
hefur fyrirtækjunum sem það
stunda hér á landi heldur verið
að fækka.
Slátra 15-20
tonnum á dag
HÁÖNN Í ÞORSKELDINU
*1080p HD myndbandsupptaka
*11 Megapixla l jósmyndir
*Wi-Fi tenging( iPhone)
*Vatnsheld hús: 60m dýpi
*170°Gleiðl insa
GoPro HERO HD 2
facebook.com/
goproiceland
frábær ti lboð á vefverslun
Frí heimsending
fram
að jólum
J ó l a g j ö f ú t i v i s t a r m a n n s i n n s
Ein fjölhæfasta háskerpu myndbandsupptökuvél í heimi
sem notuð er fyrir bílasport, vélsleða, jetski, báta,
brimbretti, klifur, skotveiði, hjólreiðar, fallhlífastökk,
hlaup, skíði, snjóbretti, hjólabretti, köfun, flug, o.fl.