Morgunblaðið - 10.12.2011, Side 33

Morgunblaðið - 10.12.2011, Side 33
FRÉTTIR 33Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011 Að minnsta kosti 89 manns biðu bana þegar eldur blossaði upp í sjúkrahúsi í borginni Kal- kútta á Indlandi. Langflestir þeirra sem létu lífið voru sjúklingar sem gátu enga björg sér veitt þegar eldurinn breiddist um gangana. Indverskir embættismenn gagnrýndu við- brögð stjórnenda sjúkrahússins við eldsvoð- anum. Einn þeirra sagði að svo virtist sem hátt settir starfsmenn sjúkrahússins hefðu flúið út úr byggingunni um leið og eldurinn blossaði upp og skilið sjúklingana eftir, en margir þeirra voru aldraðir og rúmfastir. „Það er hræðilegt að stjórnendur sjúkrahússins skyldu ekki gera neitt til að bjarga sjúkling- unum,“ sagði hann. Sjúkrahúsið er einkarekið og um 160 sjúk- lingar voru í byggingunni sem er fimm hæða. Þetta er annar eldsvoðinn á þremur árum í byggingunni. Yfirvöld í Kalkútta hétu því að rannsaka eldsvoðann og refsa þeim sem bæru ábyrgð á manntjóninu. Nokkur hundruð reiðra ættingja sjúkling- anna söfnuðust saman fyrir utan sjúkrahúsið og kröfðust þess að stjórnendur þess yrðu handteknir þegar í stað. Að sögn BBC voru eldsupptökin í fyrrinótt að staðartíma í kjallara sjúkrahússins, þar sem eldfim efni voru geymd. Slökkviliðsmenn börð- ust við eldana í fimm klukkustundir. bogi@mbl.is Tugir sjúklinga skildir eftir í brennandi húsi og fórust Reuters Björgun Slökkviliðsmenn bjarga sjúklingi úr brennandi sjúkrahúsi í Kalkútta. 50 var bjargað. Mannréttindi breiddust mjög út í heiminum á árinu sem er að líða, þökk sé stóraukinni notkun sam- skiptasíðna á netinu. Þetta segir mannrétt- indafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Navi Pillay. „2011 hefur verið ótrúlegt ár þegar kemur að mannréttindum, þökk sé kraftmikilli og óstöðv- andi útbreiðslu samskiptamiðla,“ sagði Pillay í tilefni af alþjóðlega mannréttindadeginum í dag. „Þótt við syrgjum mörg líf sem glötuðust, þá er líka ástæða til að fagna.“ Pillay nefndi lönd á borð við Túnis, Egyptaland og Líbíu í þessu sambandi. „2011 hefur verið ótrúlegt mannréttindaár“ Navi Pillay Yfirkjörstjórn Austur-Kongó lýsti því yfir í gær að Joseph Kabila, for- seti landsins, hefði sigrað í forseta- kosningum sem fóru fram í lok nóv- ember. Yfirkjörstjórnin sagði að Kabila hefði fengið 49% atkvæða en Etienne Tshisekedi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, 32,3%. Tshisekedi kvaðst hafna þessari niðurstöðu og líta á sig sem rétt- kjörinn forseta landsins. Óttast er að deilan leiði til nýs stríðs í land- inu. Óttast stríð vegna kosningadeilu Reuters Forsetaefni Etienne Tshisekedi. Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa komist að því að rottur eru mannúðlegar. Þegar tilrauna- rottur gátu valið á milli þess að gæða sér á súkkulaði og þess að bjarga annarri rottu úr gildru völdu margar þeirra þann kost að sýna miskunnsemi og frelsa rottuna úr nauðum. Vísindamenn við Chicago-háskóla gerðu tilraun- irnar og niðurstöður þeirra voru birtar í tímaritinu Science. Þeir sögðu þetta í fyrsta skipti sem rannsókn benti til þess að rottur hjálpuðu með þessum hætti vegna samúðar með öðrum í bágindum. Rottur eru mannúðlegar Miskunnsöm rotta í búri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.