Morgunblaðið - 10.12.2011, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 10.12.2011, Qupperneq 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011 ✝ IngólfurGuðnason fæddist að Eyjum I í Kjós 27. októ- ber 1919. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Grund í Reykjavík 28. nóvember síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Guðni Guðnason og Guð- rún Hansdóttir Stephensen. Ingólfur átti 5 systkin. Eft- irlifandi er bróðirinn Guðni, búsettur á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík. Ingólfur ólst upp að Eyjum I, í Kjós. Kynntist hann þar eiginkonu sinni Helgu Pálsdóttir sem fædd var í Lübeck í Þýska- landi, hún kom sem vinnukona að Eyjum. Þau Helga gengu í hjónaband þann 11. júni 1950. Helga lést 15. febrúar 2008. Börn þeirra : 1) Guðni Günter f. 10.6. 1951, d. 16.9. 2002. 2) Anna Pálína f. 14.2. 1953, d.18.4. 1955. 3) Anna Guðfinna f. 4.4. 1955, búsett að Árbakka í Kjós, maður hennar er Krist- inn Helgason, eiga þau þrjú börn og sex barnabörn. 4) Hermann Ingi f. 24.3. 1956 bú- settur að Hjalla í Kjós, kona hans er Aðalheiður Birna Einarsdóttir, eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn. 5) Páll Heimir f. 1.12. 1958, búsett- ur að Eyjum I í Kjós. Kona hans er Marta Karls- dóttir og eiga þau þrjú börn. 6) Guð- rún Lilja f. 30.12. 1959, búsett í Kópavogi.Á hún fjögur börn og fimm barnabörn, 7) Val- borg Erna f. 8.2. 1965 búsett í Mosfellsbæ. Maður hennar er Ómar Ásgrímsson og eiga þau tvo syni. Ingólfur starfaði sem bóndi á Eyjum allan sinn starfsferil þar sem hann bjó ásamt konu sinni til ársins 1994 er þau byggðu hús í túninu heima, sem þau nefndu Borgarhól. Þaðan lá leið þeirra svo í Gull- smára 7 í Kópavogi. Síðustu æviárunum eyddu þau á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík. Útför Ingólfs verður gerð frá Reynivallakirkju í dag, laugardaginn 10. desember 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Elsku pabbi minn, núna ertu búinn að fá þá hvíld sem þú þráð- ir svo mikið. Ég veit að mamma hefur tekið vel á móti þér, þú saknaðir hennar mikið. Ég man svo margt gott úr sveitinni okkar, þar sem þú og mamma bjugguð mest alla tíð. Alltaf til staðar fyrir okkur systkinin þegar eitthvað bjátaði á. Það er svo margt sem mig langar að skrifa um, en ég ætla að eiga það með sjálfri mér. Við eigum minningar um brosið bjarta, lífsgleði og marga góða stund, um mann sem átti gott og göfugt hjarta sem gengið hefur á guðs síns fund. (Guðrún Vagnsdóttir.) Sólbrúnir vangar, silfurgrátt hár, sálin geislandi af hlýju. Þannig ég minnist þín ókomin ár, þar til við hittumst að nýju. (Höf. ók.) Elsku pabbi, með þessum vís- um kveð ég þig. Þín dóttir, Anna. Elsku pabbi, nú ertu búinn að kveðja og kominn á æðra tilveru- stig þar sem ég veit að þér mun líða vel með mömmu. Minning- arnar sem koma upp í hug minn eru svo margar. Þegar við vorum saman í fjós- inu að mjólka beljurnar. Þú pass- aðir upp á að allt væri í röð og reglu hjá þér þar og ef það var eitthvað sem ég gerði ekki rétt sagðir þú alltaf Vala mín, við skulum gera þetta svona (en það kallaðir þú mig alltaf) og í þess- um blíða tón en þannig varst þú alltaf, með góða og ljúfa skapið. Á kvöldin þegar við komum úr fjósinu sagðir þú mér hvað stjörnurnar heita og svo þegar þú leyfðir mér að sofna á öxlinni þinni á kvöldin yfir sjónvarpinu. Þegar ég var að læra ljóðin úr skólaljóðum þá söngst þú þau alltaf fyrir mig og ég var svo fljót að læra þau þannig. Já þær eru svo margar minningarnar um þig sem ég mun alltaf hafa í huga mínum. Betri pabba gat ég ekki fengið. Eftir dimma daga og sára, gaf mér draumur von eitt sinn. Þá ég hitti þig á himnum hálfa nótt Gegnum móðu gleðitára, sá ég glitta í vangann þinn. Þig ég hitti, elsku hjartans pabbi minn. Ég um tilurð sálar spyr nú. Sofnar hún um leið og við? Eða lifum við í ljósi lengri tíð Veitir styrk að velja guðstrú? Velja að lifa slíkan sið. Skyld’ það hjálpa til að finna innri frið? Rætist kannski þessi draumurminn? Vonin róar huga minn um sinn. Kvöldið kennir mér að hlúa að þeim kærleik sem ég finn Það að þakka fyrir allt sem áttum við Því ég verð að vona og trúa að við sjáumst eitthvert sinn, að ég hitti þig á himnum, pabbi minn (Friðrik Karlsson / Þórunn Lárusd.) Takk fyrir allt, elsku pabbi minn. Þín dóttir, Valborg. Ingólfur Guðnason, tengdafað- ir minn, hefur kvatt þennan heim 92 ára að aldri á vistheimilinu Grund. Mín fyrstu kynni af Ing- ólfi voru í maí 1975 er ég var að koma af vertíð frá Ólafsvík á leið til Reykjavíkur. Ákvað ég að banka upp að Eyjum 1 í Kjós kl. 5 að nóttu til að spyrjast fyrir um Önnu Ingólfsdóttur sem ég hafði kynnst árið áður á Súgandafirði. Til dyra kom reffilegur maður og sagði: Nei, Anna mín er á Hornafirði, því miður. Þetta voru mín fyrstu kynni af Ingólfi tengdaföður mín- um sem var ekki að æsa sig þó að nóttu væri bankað. Sá ég hann aldrei skipta skapi, nema helst í fjósinu þegar hann var í bláa sloppnum og háu stíg- vélunum að sparka í beljur sem þráuðust við að fara í eða úr bás. Ég man góðu stundirnar með þér, sérstaklega þegar við feng- um okkur í glas (í hófi.) Þú varst mikið fyrir að syngja, sérstaklega gömlu lögin, og það að syngja með þér þó þú værir á undan í laginu, var bara betra, – meira sánd. Til dæmis lagið Halló, halló, nú látum skella á skeið. Blessuð sértu sveitin mín! sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, áin þín yndislega sveitin mín! – ... (Sigurður Jónsson frá Arnarvatni.) Elsku, yndislegi Ingólfur minn, það voru forréttindi að eiga þig sem tengdaföður. Nú lætur þú skella á skeið yfir móðuna miklu, það verður tekið vel á móti þér í draumalandinu sem ég vona svo sannarlega að sé til. Þinn tengdasonur, Kristinn Geir Helgason. Nú þegar við horfum á eftir þér yfir móðuna, rifjast upp okk- ar fyrstu kynni. Það var um vorið 1986 þegar við Vala vorum að byrja að slá okkur upp og hún vildi að ég kæmi með henni í sveitina með sér. Var ákveðið að við Vala færum með bílinn hans Guðna upp í Kjós vegna þess að hann ætlaði að ríða með Sand- skörlum úr bænum um Svína- skarð í Kjósina. Þegar við vorum komin uppeftir ákváðu Palli og Vala að fara ríðandi á móti hesta- mönnunum sem voru á leiðinni úr bænum, en þá spurði Helga heit- in hver ætti að fara í fjós með pabba (þér), og Vala svaraði um hæl „Nú, Ómar fer bara, er það ekki, Ómar?“ og ég stundi upp hálf vandræðalega „Ekkert mál,“ reyndar minnir mig að hún hafi notið fulls stuðnings Gunnu. Svona voru fyrstu kynni mín af þér og Helgu. Svo þegar hesta- menn voru komnir heim, spurði Guðni heitinn þannig að allir heyrðu hvort ég hefði nokkuð mjólkað nautið, þá var hlegið mikið. Síðan hefur margt á dagana drifið, og er mér ofarlega í huga þegar þú og Helga heimsóttuð okkur til Ísafjarðar og áttum þar yndislegar stundir, þá sagðir þú mér að þig hefði langað að læra trésmíðar þegar þú varst ungur maður, en svo fór sem fór að þú varðst bóndi á Eyjum. Ég hefði ekki viljað missa af einu augnabliki með þér í þessari vist. Og nú þar sem þú ert kom- inn til Helgu, Guðna og Önnu Pálínu veit ég að þér líður vel. Þín er sárt saknað. Kveðja, Ómar. Þá er elsku besti afi minn fall- inn frá. Eins sárt og það er að þurfa kveðja hann þá er ekki ann- að hægt en að minnast hans með hlýju og gleði í hjarta. Ingólfur afi minn er eiginlega eini afinn sem ég hef þekkt frá blautu barnsbeini og betri afa er ekki hægt að hugsa sér. Hann var allt- af ljúfur og góður og aldrei nokk- urn tímann man ég eftir að hann skammaði okkur krakkana. Ég dvaldist mörgum stundum uppi í sveit á Eyjum 1 hjá þeim ömmu og afa. Það eru yndislegar og dýrmætar minningar sem ég eignaðist þar. Amma var dugnað- arforkur, alltaf með matinn á réttum tíma, rösk, ákveðin, hjartahlý og umhyggjusöm kona. Afi var vinnusamur og duglegur, rólegur, blíður og góður maður. Við krakkarnir brölluðum margt og mikið og nutum okkar í sveitasælunni í örygginu hjá ömmu og afa. Sérstaklega gaman var að sitja aftan á heyvagninum á sumrin eða hjálpa afa að mjólka í fjósinu. Afi, þessi duglegi, ynd- islegi maður, alltaf var hann mættur í fjósið, sama hvað var. Þegar þau hjónin fluttu á Borg- arhól þá fór afi samt alltaf í fjósið að hjálpa Palla og þótt fæturnir voru orðnir lélegir þá lét hann það ekki á sig fá heldur arkaði þetta meðan fæturnir báru hann. Fyrstu gamlárskvöldin í hús- inu sem við Rúnar byggðum okk- ur voru Helga amma og Ingólfur afi hjá okkur ásamt fleirum og eru þær stundir okkur mjög dýr- mætar. Pabbi spilaði á harmon- ikku, Inga systir ömmu á munn- hörpu og við Rúnar, mamma, amma og afi og strákarnir mínir sungum með. Lagið Kvöldið var fagurt, fannst okkur afa sérstak- lega gaman að syngja og mun það alltaf minna mig á elsku afa minn. Það var svo yndislegt að sjá hvað ömmu og afa var alltaf annt um hvort annað og nú veit ég að einhvers staðar á hlýjum, góðum stað hafa amma og Gunni frændi tekið á móti afa opnum örmum. Elsku besti afi minn, þú ert eitt mesta gæðaskinn sem ég hef á ævi minni kynnst. Við Rúnar og strákarnir eigum eftir að sakna þín mikið. Rúnar hafði alltaf miklar mætur á þér og finnst afar leiðinlegt að komast ekki heim í jarðarförina en sama dag verður hann að syngja í norskri kirkju og ég veit að sá söngur verður til þín, elsku afi minn. Kærleiksríkar þakkir fyrir allt frá Stínu, Rúnari, Eyþóri, Haf- steini, Loga Geir og Brimari Inga, nafna þínum. Guð blessi þig og varðveiti, yndislegi afi minn. Kristín Þórunn Kristinsdóttir. Elsku Ingi afi, ég kveð þig með söknuði. Þegar ég hugsa um þig þá kemur upp í huga minn hvað þú varst alltaf góður, blíður og rólegur. Sama hversu mikil læti voru í okkur barnabörnunum og sama hversu mikið við náðum að fá ömmu upp á háa c-ið, þá heyrð- ist aldrei neitt í þér. Sast bara og hristir hausinn yfir okkur eða sagðir í mesta lagi: „sei sei“. Enda kölluðum við barnabörnin þig stundum „sei sei-afa“. Mínar helstu minningar af þér eru þegar þú og amma bjugguð á Borgarhólnum. Þegar þú labbað- ir á hverjum degi niður að Eyjum til að mjólka beljurnar. Þú varst alltaf svo duglegur og kvartaðir aldrei. Fórst í fjósið sama hvað tautaði og raulaði. Mér fannst þú alltaf algjör harðjaxl. Þú og amma voruð svo náin og það tók mikið á þig þegar amma lést. Ég man alltaf þegar amma bjó í Gullsmáranum og þú varst komin á Grund og þið voruð að kveðjast eitt kvöldið. Þið kysst- ust bless og amma sagði með tár- votum augum „Ég elska þig“. Núna sé ég ykkur fyrir mér sam- an, fullkomna hvort annað á ný. Elsku afi, það er erfitt að kveðja þig og erfitt að hugsa til þess að við Hermann Ingi mun- um aldrei koma aftur til þín á Grund að borða trúðaís. En mikið er ég þakklát og glöð að hann hafi fengið að kynnast langafa sínum. Honum fannst alltaf svo gaman að koma til þín, skoða gullfiskana og borða ís á meðan við töluðum saman um sveitina. Já við töluð- um mikið um sveitina því þar var þinn hugur og þitt hjarta. Blessuð sértu sveitin mín! sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, áin þín Ingólfur Guðnason ✝ Halldóra Hall-dórsdóttir fæddist í Dagvarð- arnesi í Rangár- vallasýslu 6. júlí 1910. Hún andaðist á dvalarheimilinu Lundi á Hellu 4. desember sl. Foreldrar: Þur- íður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. maí 1887, d. 24. júní 1978, Halldór Þorleifsson bóndi og smiður, f. 29. október 1875, d. 4. desember 1953. Systkini: Ingibjörg, f. 2. maí 1909, d. 19. apríl 1992, Sig- urður f. 14. desem- ber 1926, d. 5. des- ember 2011, uppeldissystir Sig- ríður Þorgríms- dóttir f. 29. október 1921, d. 3. maí 1993. Halldóra var gift Ingvari Guðmunds- syni frá Þjóðólfshaga, Rang- árvallasýslu, f. 23. apríl 1904, d. 7. janúar 1988. Þau giftu sig 27. júní 1932. Þau bjuggu fyrst á Gaddstöðum í Rangárvallasýslu en fóru til Reykjavíkur ári seinna, þar sem þau áttu heima til 1953. Þá fóru þau til Keflavík- ur og byggðu hús á Sunnubraut 8, en síðan lá leið þeirra austur að Hellu árið 1970 þar sem þau bjuggu til æviloka. Þau áttu einn son, Lúðvík Vigni, f. 3. nóvember 1939. Börn hans eru: Halldór Ingi, Brynjar, Hörður, Ingvar, Lindberg og Halldóra Margrét. Uppeldisdóttir er Hrafnhildur. Barnabörnin eru 13 og 1 barna- barnabarn. Halldóra Halldórsdóttir kennd við Gaddsstaði verður jarðsungin frá Oddakirkju á Rangárvöllum í dag, laugardag- inn 10. desember 2011, kl. 14. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson) Þetta er ein af mörgum bæn- um sem hún amma mín kenndi mér þegar ég var lítill. Nú er komið að kveðjustund og á ég og mín fjölskylda eftir að sakna hennar en jafnfram þakka henni fyrir allar samverustundirnar. Það var fastur liður í tilverunni að heimsækja hana þegar við fór- um í bústaðinn hvort sem hún bjó á Freyvangi eða á dvalarheim- ilinu Lundi. Það var ávallt gott að vera í návist hennar og vildi hún að öllum í kringum sig liði vel. Hún var ekki ánægð nema maður þægi köku eða brauðbita hjá sér eða nammi eftir að hún fór á Lund, það þýddi ekki að bera fyr- ir sig aðhald, því þá kom frá henni að maður væri bara „skemmtilega feitur“. Það eru margar minningarnar sem koma upp í kollinn þegar maður hugsar til baka. Sem dæmi má nefna ferðirnar með henni og Ingvari afa í bústaðinn þegar við Binni bróðir vorum litlir. Eins þegar ég var smástrákur og plokkaði síld- arhreistur af höndunum á henni þegar hún kom heim eftir að vera búin að vinna í síldarverkuninni hjá afa og Helga Eyjólfs. Og svo verð ég að rifja eina í viðbót, en það var þegar hún eyddi heilli helgi með okkur á sölubás sem við vorum með á töðugjöldunum á Hellu fyrir 15 árum síðan, það fannst henni gaman, vera í innsta hring í margmenninu og hitta gamla sveitunga. Þessar minn- ingar og margar fleiri geymi ég í hjarta mínu og tel mig hafa verið heppinn að hafa átt hana fyrir ömmu. Ég er einnig mjög ánægð- ur að hún skyldi lifa það að sjá afastrákinn minn, því ég var ömmustrákurinn hennar. Ég veit að hún er komin á góð- an stað, en það er langt síðan hún var tilbúin að fara þangað. Hún lagði þó ekki ein upp í ferðalagið því hún var samferða Sigga bróð- ur sínum. Núna eru þau búin að hitta allt það fólk sem fór á undan þeim. Um leið og ég þakka ömmu fyrir allt á lífsleiðinni vil ég þakka starfsfólkinu á Lundi fyrir frá- bæra umönnun. Halldór Lúðvíksson og fjölskylda. Elsku Halla frænka mín er lát- in, þegar ég hugsa til baka þá á ég margar fallegar minningar um þig. Það var ávallt mikill sam- gangur með okkar fjölskyldum. Meðan Halla átti heima í Kefla- vík bjuggu fjölskyldurnar á Sunnubraut, vorum við saman öll jól og áramót og ekki voru fáar morgunferðirnar hjá okkur Gunnu systur í te og ristað brauð. Halla var alltaf mjög vel til höfð og flott kona, pússaði sig alltaf upp eftir hádegi og gekk í bæinn. Halla, Ingibjörg og pabbi byggðu sér sumarhús að Gadd- stöðum á Rangárvöllum árið 1964 og eru margar minningar tengd- ar þeim stað, síðan fluttust þær systur á Hellu og þar var alltaf fullt hús kræsinga. Mikill kær- leikur var á milli þeirra systkina, og er það ótrúleg tilviljun að Halla og pabbi hafi látist á sama sólarhring, hef ég þá trú að hún hafi tekið litla bróður með sér, þar sem hann var orðinn mikið veikur. Ljúfar voru stundir er áttum við saman. Þakka ber Drottni allt það gaman. Skiljast nú leiðir og farin ert þú. Við hittast munum aftur, það er mín trú. Hvíl þú í friði í ljósinu bjarta. Ég kveð þig að sinni af öllu mínu hjarta. (Maren Jakobsdóttir) Megir þú hvíla friði. Hrefna Sigurðardóttir. Ég sé eins og í sjónhendingu sólina rísa. Ung stúlka í sveitinni um tveggja ára gömul er inni í bænum með ömmu sinni. Jörðin skelfur, það er jarðskjálfti. Árið er 1912. Bærinn fellur saman. Þær skríða út um brotinn bað- stofugluggann. Barnið og amman lifa af. Annað heimilisfólk er útivið og sér öldur jarðarinnar bylgjast um tún og engi. Á jörðinni var ekki búið eftir hamfarirnar. Nú er þar minnismerki um Dagverðar- nes, fæðingarstað stúlkunnar, undir rótum Hekluhrauns. Fal- legur staður. Unga stúlkan var líka falleg, hún var alltaf falleg öll sín æviár. Við vorum æskuvinkonur, það var aðeins 30 ára aldursmunur. Við vorum samt alltaf jafnöldrur. Hún var Reykjavíkurmærin mín. Átti heima á Brávallagötunni. Það var framandi og flott fyrir sveitastúlku að koma til hennar. Úr fjarlægð sé ég Halldóru mína í svörtum kjól með hvíta svuntu og kappa á höfði. Hún er að þjóna til borðs á Hótel Borg. Hvað annað, á flottasta stað í bænum. Foreldrar mínir áttu vini þar sem Halldóra og Ingvar voru. Hvort sem þau bjuggu í Holtun- um, Reykjavík eða Keflavík. Seinna fluttu þau hjónin að Hellu á Rangárvöllum, nærri hennar æskustöðvum sem voru Dagverðarnes og Gaddstaðir. Áð- ur höfðu þau reist sér sumarbú- stað við Varmadalslæk. Þar hófst seinni kafli vináttu okkar Halldóru. Mörg spor lágu á milli heimila okkar á Freyvangin- um. Það var sönn vinátta milli allra, sérstaklega kvenna. Það var hægt að tala um öll hjartans mál. Alltaf jafnar, bara 30 ár á milli. Við vorum alltaf glaðar á okkar sam- fundum. Jafnvel á Dvalarheim- ilinu Lundi sem var hennar síð- asta heimili var okkar vinátta innsigluð og sönn. Nú er sólin hnigin til viðar, sól- arlagið er fallegt. Það slær gulln- um roða á höf og lönd. Ég þakka Halldóru minni fyrir öll hennar bros. Hún var glæsileg alla tíð. Hin síðari ár með sitt fal- lega bláhvíta hár. Fötin sem hún klæddist voru í stíl. Séð var um að ekkert skorti. Drottningin var alltaf smart. Guð gefi henni góða ferð til bláma himinsins, henni fór blátt vel. Sjöfn Árnadóttir. Halldóra Halldórsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.