SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Síða 11

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Síða 11
19. ágúst 2012 11 10.00 Vakna á þunnri dýnu á gólfi í svefn- poka í sumarhúsi á Djúpavogi með slefandi Border Collie að nafni Tinna standandi yfir mér. Ekki dæmigerð byrjun á degi i lífi mínu. Ég klappa hundinum og fer á fætur. Borða múslí, flatköku og drekk kaffi ásamt frændfólki og vinum. Daginn áður fór ég á hreindýraveiðar ásamt þeim í Fossárdal á Austfjörðum. Það var svartaþoka svo við dorguðum í höfninni á Djúpavogi og grýttum máva í staðinn. Eitthvað þurfti að drepa. 11.00 Legg af stað á Höfn þar sem ég á pantað flug í bæinn. Nenni ekki að keyra. 14.00 Fer í loftið. Flugvélin er lítil og stendur sig vel. Flugmaðurinn er ungur en fyrir aftan hann situr snoðaður, feitlaginn maður með krumpaðan hnakka og headphones. Þeir virka á mig sem traust teymi svo ég halla mér aftur og les bókina Engan þarf að öfunda eftir Barbara Demick sem fjallar um Norður-Kóreu. Frábær bók um stórmerkilega sturlun. 15.00 Lentur í bænum og um leið er hringt í mig þar sem ég er beðinn um að mæta á æf- ingu fyrir barnasögutónverkið Fjörkálfur sem verður flutt á Menningarnótt í Norræna húsinu. Ég játa því og stekk upp í strætó númer 19. Hann er troðfullur af krökkum á aldrinum 7-9 ára. 16.00 Búinn að henda af mér töskunum heima, skelli mér í sturtu og borða gúllassúpu úr dós ásamt hrökkbrauði með hnetusmjöri og hunangi. Fæ í magann og ég gruna gúllasið. Ætla að drífa mig niður í bæ og skella mér á kaffihús og sitja við tölvuna í smá tíma. Sé ekki hjólið í geymslunni en finn það svo standandi í svefnherberginu mínu. Það er eitthvað bogið við þennan dag. 18.00 Ég tala í símann við Þór, bekkj- arbróður minn í leikaranáminu í Listaháskól- anum. Hann er í vinnunni. Ræðum um tilfinn- ingar, tónlist og hvað við hlökkum til að byrja í skólanum á mánudaginn. Kemst að því í lok samtalsins að hann er búinn að vera að lyfta 20 tonna gámi á gríðarstórum lyftara á meðan við töluðum saman. Ég er snortinn og heiti því að fara aldrei aftur á trúnó nema að lyfta ein- hverju þungu á meðan. Það fær allt miklu meira vægi. 18.15 Hitti slóvenskan vin minn, Jure og kærustuna hans. Fáum okkur núðlusúpu á No- odle Station. Við skellum okkur í Bíó Paradís þar sem við hittum hljómsveitarmeðlimi mína í The Heavy Experience. Jure er ljósmyndari og myndatökumaður og við ræðum við hann um að taka upp myndband við lag af nýju plötunni okkar, Slowscope, sem kemur í búðir á næstu dögum. Ég fæ fyrsta eintakið mitt í hendurnar og klappa því blíðlega og kyssi. Loksins! Loks- ins! hrópa ég. 20.00 Jure og kærastan kveðja okkur og við sannfærðir um að sigra listina með þessu myndbandi. Við tekur skipulagning á næstu tónleikum hjá okkur á Menningarnótt. Þá ætl- um við að opna æfingahúsnæðið okkar á Hólmaslóð 2 úti á Granda ásamt öðrum vin- ahljómsveitum okkar, bjóða upp á súpu, spila músík og sýna myndlist. Held að þetta verði safarík stund. 21.37 Sambýliskona mín hringir. Hún hefur gist hjá foreldrum sínum síðustu vikur og segist ekki ætla að koma aftur heim nema ég játi ást mína á henni. Ég skelli á. 22.00 Fer á létt pöbbarölt með sænskum vinkonum mínum. Sitjum á Bakkusi með einn bjór og látum það duga. Fylgi þeim heim og fer sjálfur heim í rúmið og horfi á Apocolypse Now: directors cut. Ég næ að heyra Lieutenent Kilgore segja „I love the smell of Napalm in the morning“ áður en ég játa mig sigraðan og sofna með bros á vör og annað augað opið. Og auð- vitað með nýju plötuna mína í fanginu. Dagur í lífi Odds Júlíussonar, leiklistarnema Morgunblaðið/Styrmir Kári Dómsdagur í lífi Odds N K M L Æ Ó K A D E Q Í A Ö L Á B N K M Í A Ö L Á B N K M L Æ Z I F Q Í A Ö L Á B N R S U C X Ð G H P O J N R M Z I F Q Í A Ö B N K M L Æ Ó K A D D E W Ý R S U C X Ð Q Í A Ö L Á W Ý R S U Z I F Q Í A Ö L Á B N S U C X Ð G H P O É K A D E W Ý R S U C A D E W Ý R S U C X L Æ Ó K A D E W Ý R Á B N K M L Æ Ó K A X Ð G H P O É J N R M K M L Æ Ó K A D E W Ð G H P O É M L Æ Ó C X Ð G H P O É J N M Z I F Q Í A Ö L Á B G H P O J N R M Z I F C X Ð G H P O É J N R K M L Æ Ó K A D E W Ý R S U C X Ð G H P N R M Z I F Q Í A Ö www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu FJÖLSKRÚÐUGT ÍSLENSKT MÁL • Uppfærð útgáfa • Um 48 þúsund uppf lettiorð Ómissandi hjálpargagn hverjum þeim sem skrifa vill auðugt og blæbrigðaríkt mál LOKSINS FÁANLEG Á NÝ! Rússneska óeirðalögreglan tek- ur mótmælanda hálstaki í mót- mælunum gegn sakfellingu meðlima rússnesku pönksveit- arinnar Pussy Riot. Mótmælt hefur verið víða um heim. Veröld Mótmæli í Rússlandi AFP

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.