SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Qupperneq 12

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Qupperneq 12
12 19. ágúst 2012 Miðvikudagur Steinþór Helgi Arn- steinsson Í gær fór ég á mína fyrstu kúluvarpsæfingu. Það var mjög erfitt og í dag er mér illt í olnboganum og með harðsperrur á skrýtnum stöðum. Ég fékk í raun engin svör við helstu spurningunum mínum, og þess vegna ekki neitun heldur. Leiðin á Ríó 2016 er allavega haf- in … Bragi Valdimar Skúlason Af hverju er þessum stjórn- endalufsum aldrei boðið í hvalveiði, er þetta laxasprikl ekki frekar veim- iltítulegt? Fimmtudagur Örn Úlfar Sævarsson Las Lars aldrei Tinnabækurnar? Hversu fyndið væri það að gera Kolbein að fyrirliða? Sigrún Inga Hrólfs- dóttir hvað er tumblr? hvað gerist þar? hvað gerir það? Fésbók vikunnar flett Sviðsljósið sem var á bragðarefnum Flavor Flaver orðið heldur daufara en það var. Almenn-ingsóvinurinn hefur þó haft í ýmsu að snúastog hefur hann meðal annars snúið sér mikið að sjónvarpi. William Jonathan Drayton jr. fæddist hinn 16. mars árið 1959 í New York. Hann tók ungur ástfóstri við tónlist og varð sjálflærður á mörg hljóðfæri; hann gat spilað á 15 hljóðfæri. Fljótt fór þó að halla undan fæti hjá kauða og sat hann um nokkra stund í fangelsi fyrir innbrot og þjófnað. Hann kveikti einnig óvart í húsi þegar hann var lítill strákur en að sögn var það óvart. Hann útskrifaðist úr matreiðsluskóla árið 1978 og hóf vinnu sem kokkur. Flavor Flav hitti komandi hljómsveitarmeðlim sinn, Chuck D, í Adelphi-háskólanum á Long Island. Þeir fóru fljótt að búa til tónlist saman og úr varð rapp- sveitin Public Enemy. Chuck D sá þá aðallega um að rappa en Flavor tók við kefli svokallaðs stuðnings- manns, eða „hype man“. Hann rappaði því lítið en veitti Chuck þann stuðning sem hann þurfti á að halda. Def Jam Records fékk þá til að skrifa undir hjá sér árið 1986 og vildi upphaflega bara fá Chuck D vegna þess að stjórnendur þar á bæ skildu ekki alveg hlutverk Flavors. Chuck þráaðist þó við og neitaði að skrifa undir nema Flavor fengi að vera með og sú varð raunin. Sveitin sló í gegn og varð mjög vinsæl í lok níunda áratugarins. Hún hvarf þó af sjónarsviðinu þegar tók að líða á tíunda áratuginn og lítið spurðist til þeirra félaga. Flavor var í sífelldum vandræðum og var meðal annars kærður fyrir að ráðast á fyrrverandi kærustu sína. Árið 1993 var honum einnig stungið í fangelsi fyrir tilraun til manndráps en hann skaut úr byssu í átt að nágranna sínum. Hann barðist við mikla eitur- lyfja- og áfengisfíkn. Upp úr aldarmótunum fór Flavor Flav þó að end- urheimta forna frægð í gegnum raunveruleikasjónvarp. Hann tók þátt í sjónvarpsþættinum The Surreal Life sem einblínir á stjörnur sem voru eitt sinn frægar. Í þeim þætti komst hann í kynni við Brigitte Nielsen og með þeim tókust ástir. Í kjölfar þess fengu þau sinn eigin þátt sem bar nafnið Strange Love. Þar var sýnt frá sambandi þeirra skötuhjúa sem endaði því miður ekkert alltof vel. Sambandið entist ekki lengi og slitu þau sambúð innan árs með því að Brigitte ákvað að taka saman við fyrrverandi eiginmann sinn. Flavor fékk þá sinn eigin þátt sem hét Flavor of Love. Sá þáttur gekk út á leit Flavors að ástinni. Hún varð á vegi hans og eignaðist hann barn með konu sem hann hitti reyndar á meðan ekki var verið að taka upp. Síðan þá hefur hann komið fram í nokkrum þáttum. Auk þess gaf hann út sólóplötu árið 2006. Flavor hefur alltaf vitað hvað klukkan slær en enn þann dag í dag ber hann einkennismerki sitt um hálsinn, risastórt klukkuhálsmen. Flavor lætur sér ekki að nægja að vera með fasta dagskrá í sjónvarpi heldur hefur hann rekið nokkra veitingastaði. Sá nýjasti, Flavor Flav’s Chicken & Ribs, var opnaður nú í sumar. davidmar@mbl.is Hvað varð um … Flavor Flav? Flavor Flav er hér til vinstri með klukkuhálsmenið fræga. Með honum á myndinni er félagi hans úr Public Enemy, Chuck D. Hér er kappinn með þátttakendum í raunveruleikaþættinum Flavor of Love. Kjafturinn á Flavor er rándýr.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.