SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Qupperneq 15

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Qupperneq 15
19. ágúst 2012 15 ekki þá, sá það bara eftir á, hvernig þvarr móður og inn- blástur og ég er svo þakklátur fyrir það að hafa látið gott heita með þessa gerð tónlistar á þeim tíma. Ég hætti þó ekki að spila djass, en önnur músík yfirgnæfði hann um tíma. Þegar ég bjó í Bretlandi frá 1991 fór ég aftur að mús- ísera á þessum nótum, tók upp slatta og spilaði reglu- bundið. Lógíska framhaldið var svo Made In Reykjavík með nokkuð stórborgarlegum elecktrónískum töktum sem kom út 2001. Inn í þessar pælingar mínar fellur verkefni eins og Human Body Orchestra sem við Ragn- hildur Gísladóttir gerðum þar sem hljóðheimurinn er ísóleraður við mannslíkamann. Í beinu framhaldi af því var hljóðheimurinn takmarkaður við ramma slaghörp- unnar á Piano sem kom út 2005. Síðan er ný músík í fæð- ingu þar sem slagharpan og önnur instrúment koma við sögu og þéttriðnar harmóníur í fjölrödduðum söng eru dálítið einkennismerki.“ Paradísarheimt, en ekki -missir Alls var Jakob sjö vetur úti í Los Angeles, því sumrunum eyddi hann alltaf á Íslandi. Snar þáttur í því að hann sneri aftur til Íslands var að kvikmyndin Með allt á hreinu varð til þess að Stuðmenn náðu áður óþekktri velgengni í ís- lenska hljómsveitabransanum sem Jakob segir að hafi verið erfitt að fúlsa við. Eins og Jakob lýsir árunum ytra voru þau para- dísarheimt, en hann er ekki á því að það hafi verið para- dísarmissir að halda heim til Íslands. „Ég hefði örugglega verið miklu lengur í Ameríku og væri þar kannski enn ef bíóbakterían hefði ekki orðið til þess að með Allt á hreinu varð til og Stuðmenn urðu svo dómínerandi í mínu lífi og Ragnhildur þar með. Ég hef aldrei horft til baka til Los Angeles því innst inni leiddist mér þar. Víst var dásam- legt að búa þarna, yndislegt líf og tækifæri til að gera allt en þessi undiralda sem er í íslenskum mannssálum, húmorinn og dirfskan, ferskleiki andans og kúltúrinn yf- ir höfuð var svo skammt á veg kominn þarna í borg sem var nýbyggð í eyðimörkinni. Hún er allt öðruvísi í dag og ég elska að koma til Los Angeles. Ég hugsa til þessara sjö vetra eingöngu með hlýju og gleði og glaður yfir að hafa átt þennan tíma. Það sem ég lærði þar og kynntist og það sem ég gerði er nesti sem ég er enn að nærast á og rækta. Mér mun alltaf finnast óskaplega skemmtilegt að semja og fást við sönglög og lög sem fólk elskar að hlusta á og læra að syngja með, en mesta svölunin músíklega er í þessari tónlist, þessum, getum við sagt, kraumandi heimi rafdjassins sem er mér núna innblásinn að nýju.“ Ljósmynd: Saga Sigurðardóttir, hár: Magni Þorsteinsson, stílisti: Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir, förðun Ísak Freyr Helgason. Jack Magnet, 1981. Made in Reykjavik, 2001. Piano, 2005. Horft í roðann, 1976. Special Treatment, 1979.Jobbi Maggadon, 1978.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.