SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Síða 17

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Síða 17
19. ágúst 2012 17 hluta í eigu erlends fjárfestingafélags? „Nei, alls ekki. Það var í tengslum við sölu eigna sem þetta öfluga, bandaríska fjárfestingafélag kom til sögunnar en þeir keyptu frystigeymslurekstur Versacold Atlas sem á hvíldi stærsti hluti skulda Eimskips. Þeir komu jafnframt inn með nýtt hlutafé og urðu að lokum annar stærsti hluthafi félagsins, á eftir gamla Landsbankanum sem var stærsti kröfu- hafinn. Með aðkomu þeirra varð til nýr blær á félaginu og það hefur verið bæði lærdómsríkt og ánægjulegt að vinna með þeim í stjórn Eimskips. Þeir hafa lagt áherslu á að styrkja kjarnastarfsemi fé- lagsins og skapa félaginu festu og sterkan efnahag. Við erum nú með yfir 60% eig- infjárhlutfall og höfum lagt áherslu á að minnka skuldir og styrkja sjóðsstöðu. Ég er stoltur af að hafa fengið að taka þátt í endurreisn þessa frábæra fyrirtækis sem Eimskip er og er sannfærður um að það muni eftir sem áður sinna mikilvægu hlutverki í þjóðarbúskap Íslendinga.“ Umdeildir kaupréttarsamningar Mig langar aðeins, í framhaldi af þessu, að ræða um kaupréttarsamninga félags- ins sem hafa verið í fréttum. „Markmiðið með þeim er að tengja saman hagsmuni hluthafa og lykilstjórn- enda og tryggja með þeim hætti starfs- krafta þeirra til lengri tíma,“ segir Bragi. Í samræmi við það ákvað stjórnin að leggja til við hluthafa að gerðir yrðu kaupréttarsamningar við helstu stjórn- endur félagsins og var áætlun þar að lút- andi samþykkt á aðalfundi félagsins í mars 2010. Kaupréttina skyldi veita á næstu fjórum árum og innlausn fara fram á næstu þremur árum frá veitingu, að því tilskildu að kaupréttarhafar væru enn við störf hjá félaginu yfir sjö ára tímabil. Innlausnarverð hlutanna hefur verið ákveðið á þeim tíma þegar kaupréttirnir hafa verið veittir og taka mið af mark- aðsverði hlutanna á hverjum tíma. Jafn- framt er ákveðið að félagið mun ekki að- stoða kaupréttarhafa við fjármögnun kaupanna eins og tíðkaðist áður. Braga þykir miður sú neikvæða um- ræða sem átt hefur sér stað um þessi mál og um kaupréttarsamninga almennt. „Vissulega er hægt er að benda á dæmi þess að slíkir samningar hafi farið úr böndum, leitt til óeðlilegrar áhættusækni eða markaðsmisnotkunar. En það þýðir ekki að slíkir samningar geti ekki átt rétt á sér, enda hafa þeir tíðkast um langa hríð og í langflestum tilfellum skilað því sem að var stefnt, traustum og hag- kvæmum rekstri, þar sem langtímahags- muna allra hluthafa er gætt. Í fréttum hefur jafnvel verið ýjað að því að við- komandi stjórnendur muni geta eignast hluti í Eimskip án nokkurrar greiðslu. Því fer víðs fjarri, stjórnendurnir verða að greiða það verð sem upphaflega var ákveðið við veitingu kaupréttanna og sjá sjálfir um fjármögnun þeirra kaupa. Jafnframt þurfa þeir að standa skil á sköttum af ábatanum, sem samkvæmt núgildandi skattalögum er skattlagður sem launatekjur.“ En hvað finnst þér um erlenda fjár- mögnun í íslensku atvinnulífi? „Mér finnst bara eðlilegt að erlendir aðilar og fjárfestar sýni íslenskum fyr- irtækjum áhuga og séu þátttakendur í ís- lensku atvinnulífi. Það er að mörgu leyti áhugavert að vinna með þessum aðilum eins og Yucapia. Það er meiri ögun og önnur sýn á hlutina heldur en við erum oft með. Það er hugsað lengra fram í tímann.“ Þá komum við að því því að þið eruð að undirbúa skráningu Eimskips í ís- lensku Kauphöllina. Hafið þið næga trú á Eimskip og íslensku Kauphöllinni til þess? „Já, við höfum það. Félagið er mjög rekstrarhæft og skilar hagnaði og ég vona að fjárfestar og almenningur sjái tækifæri í að fjárfesta í fyrirtækinu. Það er ljóst að það er fullt af fjármagni í land- inu sem er að leita eftir tækifærum til ávöxtunar. Þau fyrirtæki sem hafa verið að fara á markað hafa gengið ágætlega. Þannig að ég hef fulla trú á því að Eim- skip verði vel tekið þar.“ Hvernig líst þér svo á framtíðina í ís- lensku samfélagi? „Það er góð spurning,“ segir Bragi og brosir. „Það er náttúrlega ljóst að það er ýmislegt sem hefur gengið okkur í hag- inn og umhverfið er að mörgu leyti fullt af tækifærum. En það sem ég hef áhyggj- ur af er að við nýtum þessi tækifæri ekki nægjanlega vel. Mörg erlend fyrirtæki hafa t.d. áhuga á að fjárfesta hérna, það eru tækifæri í vatnsafls- og jarð- varmageiranum svo dæmi séu tekin en umræðan í kringum þau er afskaplega neikvæð. Ég er nú náttúruverndarsinni en ég tel að þar eigum við þó ýmsa möguleika og í rammaáætlun um nýt- ingu auðlindanna eru nefndir nokkrir áhugaverðir kostir. En það er eins og ef einn lítill hópur byrjar að mótmæla þá sé hægt að stöðva sjálfsagðar framkvæmdir og ekki verður neitt úr neinu. Það má ýmislegt tína til; það er mín skoðun að of varlega hafi verið farið í að auka þorskkvótann og um leið finnst mér að svokallaðar strandveiðar mættu missa sig. Margir þeirra sem þær stunda eru búnir að selja frá sér kvótann og fá þarna gjafakvóta á silfurfati. Þetta eru „ólympískar“ veiðar, þannig að mest berst að fyrstu daga hvers mánaðar, verðfall verður á markaði og lítið fram- boð þegar líður á hvert tímabil. Það eru hátt í þúsund bátar sem stunda þetta og þetta er mjög óhagkvæmt. En margt hef- ur verið vel gert og víða áhugaverð tæki- færi, t.d. í upplýsingaiðnaði, móttöku ferðamanna og þjónustu við þá og ef rétt er haldið á spilunum hef ég engar áhyggjur af framtíðinni. En ég hef áhyggjur af því að margir virðast ekki gera sér grein fyrir því að velferð okkar byggist á verðmætasköpun, án hennar verður ekki haldið uppi velferðarkerfi og þeirri samfélagsþjónustu sem flestir kalla eftir.“ Morgunblaðið/Eggert ’ Ég hef líka gaman af annarri útivist og fjallaferðum og stofn- að í því skyni eigin ferða- skrifstofu árið 2006, BR To- urs sem sinnir móttöku erlendra ferðamanna og þjónustu við þá á Íslandi.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.