SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Síða 18

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Síða 18
18 19. ágúst 2012 Milli Vestfjarðakjálkans ogSnæfellsness liggur stór oggrunnur fjörður, Breiða-fjörður. Fjörðurinn er um- kringdur voldugum fjöllum en í honum er aragrúi eyja. Lífríkið er fjölskrúðugt, kannski það líflegasta á landinu, en þar má finna háhyrninga, hnísur og seli í sjó en lunda, erni og toppskarfa í lofti, svo eitt- hvað sé nefnt. Skipið Baldur flytur fólk og farangur milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í eyjunni Flatey. Eyjarnar í Breiðafirði hafa verið í byggð frá landnámi en þar nam land Þrándur mjóbein. Í byrj- un 20. aldarinnar var fólksfjöldinn mestur en þá var búið í sjö eyjum. Þegar leið á öldina fóru bændur að bregða búi og flytja til meginlandsins. Af þeim eyjum sem áð- ur voru í byggð er í dag einungis búið allt árið í Flatey. Þar er bú á bæjunum Kráku- vör, bú Magnúsar Arnar Jónssonar og Svanhildar Jónsdóttur, og í Læknishúsi, bú Hafsteins Guðmundssonar og Ólínu Jónsdóttur. Hið fullkomna sveitaheimili Skipið Baldur skilar hópi ferðalanga í höfnina í Flatey. Eftir gömlum malarvegi tölta ferðalangarnir af stað í átt að þorp- inu. Eitt af fyrstu húsunum er hvítt og girt af með rauðri trégirðingu. Við veginn situr fjórtán ára drengur við sölubás. Á borðinu eru miklar gersemar; hálsfestar úr hvala- hrygg, hnappar úr kindahornum og se- laskinn ásamt öðru góssi sem orðið hefur á vegi hans. Það ískrar í rauða hliðinu þegar gengið er inn á lóðina. Á fallegu útskornu skilti stendur Læknishús. Hjónin Haf- steinn og Lína koma út á hlað og taka hlý- lega á móti blaðamanni. Þau kynna unga sölumanninn, Hilmar, en hann er dótt- ursonur þeirra hjóna og býr hjá þeim í Flatey á sumrin. Hjónin bjóða blaðamanni inn og leiða veginn að hjarta heimilisins, eldhúsinu. Á borðið raðar húsfreyjan alls konar kræs- ingum. Læknishús er hið dæmigerða ís- lenska sveitaheimili, ómögulegt verður að sleppa héðan svöng. Gutti í selalögnum Hafsteinn sem er fæddur árið 1935, var á tíunda ári þegar hann fluttist til Skáleyja í Breiðafirði. Lína, konan hans, er tveimur árum eldri en hún ólst upp í eyjunni Hval- látrum. Á þeim tíma bjuggu tvær fjöl- skyldur í báðum eyjunum. Hjónin hafa fróðlega sögu að segja eftir rúmlega hálfrar aldar búsetu í firðinum. „Það var ágætt að alast hér upp. Það var hópur af krökkum í Skáleyjum. Við vorum sex systkinin en á hinu heimilinu voru sjö börn. Krakkar fundu sér alltaf eitthvað að gera,“ segir Hafsteinn. „Við vorum alltaf eitthvað að prakkarast,“ bætir Lína við. „Strákarnir að slást eins og gengur og svo var spilað og lesið á kvöldin. Oft lásu margir sömu bókina og svo var rætt um hana.“ Hjónin segja að eyjabúar hafi reynt að koma saman eins oft og mögulegt var. „Mig minnir að um jólaleytið hafi alltaf verið farið einu sinni til Skáleyja og þau komu einu sinni yfir til okkar í Hval- látrum. Þá var dansað í kringum jólatréð, mikið sungið og auðvitað borðað,“ segir húsfreyjan. Hjónin gengu bæði í barnaskóla. Kenn- ari ferðaðist milli eyjanna og kenndi börn- unum. Krakkarnir hófu nám níu ára gamlir og lærðu í þrjá mánuði á ári. Þegar nemendurnir luku fullnaðarprófi um fermingaraldur tóku þeir afstöðu til þess hvort þeir hygðu á framhaldsnám en þá urðu þeir að flytjast annað. „Krakkarnir fóru svo að hjálpa til strax og þeir gátu. Ég hef sennilega verið svolít- ið bráðþroska en tíu ára var ég farinn að hjálpa til við selalagnir. Við sigldum á ára- bát fjórir saman. Ég fór þó ekki ef það var verra veður því ég var ekki nógu sterkur á árinni,“ segir Hafsteinn. Selalagnir er þeg- ar net er lagt fyrir seli, en skinnið var mikil markaðsvara og kjötið gott til matar. Jafnframt hjálpuðu krakkarnir til við búskapinn. „Það þurfti að safna fénu sam- an á vorin og flytja það til meginlandsins í sumarbeit. Síðan voru eyjarnar heyjaðar. Í lok september voru kindurnar fluttar til baka,“ segir húsbóndinn. Í dag eru kindur í eyjunum en hestar og kýr heyra sögunni til. Eftir sauðburð á vorin tóku leitir við. Leitir er þegar æðardúnn er tíndur. Lína segir æðarvarpið hafa verið grunnstoð í lifibrauði eyjaskeggja. „Kollunum líkar að láta dútla við sig. Þær finna til öryggis í nærveru mannsins.“ Húsfreyjan útskýrir verklag í leitum og hvernig gengið er í röðum til þess að finna örugglega öll hreiðrin. „Það verður að passa upp á að hreiðrin séu ekki blaut og að eggin séu á lífi. Egg eru skyggnd móti sólu til þess að sjá hvort það sé lifandi, dautt eða fúlegg. Ef kollan liggur lengi á dauðu eggi getur það sprungið og þá yf- irgefur hún hreiðrið.“ Eftir leitir skiptu bændur dúninum á milli sín, verkuðu hann og seldu til útlanda. Síðasti barnaskólinn Hafsteinn og Lína fluttust frá Breiðafirð- inum árið 1955 til Grundafjarðar en þar gerðist Hafsteinn sjómaður. Eftir tíu ára fjarveru var leitað til þeirra og þau beðin að snúa aftur í Breiðafjörðinn. Þá fluttust þau í Læknishús í Flatey. „Það vantaði mann á flutningabát. Það var áður en vegagerðin var komin með vegi, stór svæði á meginlandinu voru ekki í neinu Drauga- þorp og sæskrímsli Fyrir rúmum hundrað árum var blómlegt líf í Flatey á Breiðafirði en þá bjuggu rúmlega tvö hundruð manns í eyjunni. Í dag standa tvö bú eftir, þar á meðal bú Hafsteins og Línu í Lækn- ishúsi. Í viðtali segja þau Sunnudagsmogganum frá draugaþorpinu á veturna, barnæskunni í Breiðafirðinum og heimsóknum furðuvera. Ingibjörg Friðriksdóttir if@mbl.is Hafsteinn Guðmundsson og Ólína Jónsdóttir í Læknishúsi í Flatey. Læknishús að vetri til.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.