SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Side 21

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Side 21
19. ágúst 2012 21 einu sinni hver gjaldmiðillinn var. Veðrið er að sjálfsögðu ekki endilega eins og best verður á kosið en það er bara hluti af staðsetningu landsins. Borgin er dýr, en þú býst við því þegar þú kemur. Það er þekkt að Ísland sé dýrt land,“ segir L’chelle. Stöllurnar eru þó sammála um að Reykvíkingar séu almennt viðkunn- anlegir. „Mér finnst fólkið í Reykjavík ekki vera frábrugðið fólkinu í smærri bæj- unum úti á landi. Það eru allir vinalegir og þægilegt andrúmsloft alls staðar. Ég er náttúrulega búinn að vera hér í fjórtán mánuði og mér líkar mjög vel við borg- ina. Ef ég á að vera hreinskilin þá held ég held að það sé ekkert mikið dýrara að búa hérna heldur en í Suður-Englandi,“ segir Siobhan. Vinkonurnar hafa einnig fundið fyrir erfiðleikum þegar kemur að því að bóka gistingu en að sögn endaði L’chelle á því að gista í íbúð Siobhan. „Við þurftum að finna hótelherbergi fyrir einstakling fyrir skemmstu og það var nánast ómögulegt,“ segir Siobhan að lokum. Austurríska parið Alexander og Bar- bara eru aðallega hrifin af verslunar- möguleikunum sem Reykjavík hefur upp á að bjóða. „Við erum bara á ferðalagi. Við höfum verið hérna í tvær og hálfa viku og ferðast í kringum landið. Reykjavík var ekki að- alástæða ferðar okkar, við erum aðallega að skoða náttúruna og litlu sveitaþorpin. Reykjavík er lítil og ung á austurrískan mælikvarða, hún er engu að síður við- kunnanleg. Við erum vön dýru verði frá Austurríki. Við erum bara að versla í dag og á morgun munum við fara í Bláa lónið. Búðirnar hér eru mjög góðar, aðallega fatabúðirnar,“ segir Alexander. Náttúrufegurðin er ókeypis Parið Fabio og Susanna ferðaðist til Reykjavíkur frá Róma á Ítalíu ásamt syn- inum Damian og höfðu þau margt að segja. „Við erum bara hérna í fríi. Við leigð- um bíl og ferðuðumst um allt landið. Við erum ekki á Íslandi til að heimsækja Reykjavík, það er bara millistopp á leið- inni um landið,“ segir Susanna. Reykjavík er mjög frábrugðin Róm. Borgin er ágætlega stór en engu að síður mjög hljóðlát og róleg. Þögul og þægileg borg,“ segir Fabio. „Við urðum líka agn- dofa yfir þeirri fegurð sem mætti okkur þegar við komum hingað, og það á við um allt. Fólkið hér er til dæmis einkar fagurt,“ bætir hann við. Parið sammæltist um hátt verð í höfuðborginni. „Reykjavík er mjög dýr borg. Það góða er hinsvegar að náttúran á Íslandi, sem við kynntumst á ferð okkar um landið, er ókeypis. Það þarf ekki að greiða aðgangs- eyri til að fá að sjá fossana og fjöllin,“ seg- ir Susanna. Aðspurð út í ferðaáætlanir þeirra segjast þau reyna að vera eins mik- ið á eigin vegum og hægt er. „Við erum hér á okkar eigin vegum. Við útbjuggum okkar eigin ferðaáætlun og höfum því verið nánast laus við alla ferðaþjónustu. Við gerum bara það sem við viljum,“ segir Susanna. „Ferðaþjónustan og leiðsögumennirnir eru alltof yfirþyrmandi. Þeir eru alls stað- ar og skipa manni nánast að ganga í ein- faldri röð hvert sem maður fer. Þeir eru nánast eins og herstjórar að stjórna her- mönnum sínum, alltof skipulagt. Þetta er í mikilli andstöðu við villta náttúruna,“ segir Fabio. „Við höfum aðallega verið að ferðast um litlu sveitaþorpin og þegar við kom- um til Reykjavíkur þá var okkur frekar brugðið yfir öllum bílunum og stóru byggingunum, samanber aðra bæi á land- inu. Ef maður ber borgina saman við Róm þá er hún hinsvegar eins og áður segir mjög róleg og falleg. Það er örugglega mjög fínt að búa hérna,“ segir Susanna að lokum. Hallgrímskirkja hefur ætíð verið vinsæll viðkomu- staður ferðamanna. ’ Það góða er hins- vegar að náttúran á Íslandi, sem við kynntumst á ferð okkar um landið, er ókeypis. Það þarf ekki að greiða aðgangseyri til að fá að sjá fossana og fjöllin. Vinsælt er meðal ferðamanna að fara í hvalaskoðun. Að sögn rápa ferðamenn mikið um Reykjavík, þ.á m. um Austurvöll. Veitingahúsin við gömlu bryggjuna í Reykjavík eru mjög vinsæl.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.