SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Qupperneq 29

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Qupperneq 29
19. ágúst 2012 29 ir allt þetta hvort ég vildi verða óp- erusöngvari,“ segir hann. „Einkanámið í Berlín var síðan til að sjá hvort ég hefði allt í það, fyrir mig að komast að því. Annars hefði ég alltaf verið í músík þó ég hefði ekki gerst óperusöngvari. Ég gæti vel hugsað mér að gera eitthvað annað innan músíkur en óperusöngur var alltaf það sem ég þekkti. Þetta var svona leiðin heim. Stundum hugsa ég: Hvernig endaði ég hér? Óperusöngvari í Stralsund!“ Bláeygur tenór frá Íslandi Hann segir gott að hafa reynslubrunn foreldranna til að leita í. „Ég er alltaf að spyrja þau ráða: Hvernig var þetta hjá ykkur? Þau þekkja þennan heim mjög vel, sérstaklega í sambandi við umboðs- menn og slíkt. Það eru alltaf allir að reyna að græða á öllum. Það getur verið auðvelt að nýta sér svona bláeygan ten- ór frá Íslandi! Þó ég vilji nú ekki meina að ég sé eitthvað einfaldur. Maður þarf einfaldlega að læra trixin.“ Fyrir Braga er tónlist ekki aðeins starf hans heldur líka lífsnauðsynleg andleg næring. „Tónlist er andleg næring. Þú þarft ekki síður að næra andlegu hliðina en líkamlegu hliðina, sama hvernig þú gerir það, hvort sem þú lest bók eða starir á málverk. Ég er allavega þannig.“ Hlustarðu mikið á tónlist? „Ég hlusta mikið á allskyns tónlist. Þegar ég er eitthvað niðurdreginn er ekkert betra en að setja góða ljóða- tónlist á fóninn.“ Er gott eða slæmt að hlusta á aðra syngja sömu hlutverk og þú? „Það er misjafnt. Oft finnst mér gott að hlusta hvernig aðrir eru að gera hluti tæknilega en mér finnst pínu erfitt að hlusta á túlkun, það er að vissu leyti truflandi. Ég myndi ekki segja að það eyðileggi fyrir en þá tekur það kannski lengri tíma að finna sitt eigið, hvernig maður sjálfur ætlar að gera þetta. Túlk- unin skiptir miklu máli, þetta er tvennt aðskilið, nóturnar og svo listin. Það er ekki alltaf hægt að segja af hverju þessi er frægur söngvari en hinn ekki, sem er kannski með miklu betri rödd. En annar nær til fólks en þú getur ekki sagt af hverju,“ segir hann. „Fólk heldur stundum að maður standi bara upp og syngi, gerir sér ekki grein fyrir þessari skiptingu á nótunum og öllu hinu. Þú ert ekki bara að lesa nótur, það getur verið tilfinningalegur rússíbani að æfa eitthvað stykki. Það getur falið sér andlega tiltekt og lætur mann horfast í augu við eitthvað í sjálf- um sér. Það er sagt að öll áföll í lífinu og reynsla sem þú gengur í gegnum geri þig að betri listamanni. Þá bætist bara í sarpinn. Það er algjörlega eitthvað til í því, þá skilurðu ef til vill eitthvað ljóð betur og getur sýnt þína hlið,“ segir Bragi sem greinilega á mikið inni. Ljósmynd/Júlía Mogensen Bragi á sviði í óperunni Der Wildschütz eftir Albert Lortzing. Ljósmynd/Vincent Leifer Sú ímynd er oft af óperusöngvurum að þeir séu miklir matgæðingar sem hafi gaman af því að borða og er Bragi þar engin undantekning. Hjá honum er þó ekki bumbunni fyrir að fara en hann tók mataræðið í gegn og breytti um lífsstíl fyrir þremur árum og grenntist um þrjátíu kíló í kjölfarið. Líkaminn er hans vinnutæki og hann finnur mikinn mun á heilsunni eftir lífsstílsbreytinguna. Tók út dýraafurðir og missti 30 kíló „Ég áttaði mig á því að mig vantaði meiri trefjar í mataræðið. Þá sagði einhver við mig. Þú getur farið út í apótek og keypt svona trefjar sem þú setur út í vatn og drekkur. Þá hringdu einhverjar bjöllur í hausnum á mér. Af hverju ætti ég að fara út í apótek og kaupa eitthvað til að fá trefjar?“ segir Bragi sem fór í kjölfarið að lesa sér til um þessi fræði. „Ég áttaði mig þá á því að í kjöti er ekki snefill af trefjum en trefjar eru í grænmeti og ávöxtum. Eitt leiddi af öðru, ég las margar bækur og sá svart á hvítu hvað mig langaði til að gera. Ég vildi ekki breytingu til skamms tíma, ég vildi breyta hér og nú og til framtíðar. Ég tók út allar dýraafurðir, gerði ekkert annað, og hef aldrei borðað jafn mikið á ævinni. Það hurfu þrjátíu kíló og mér hafði aldrei liðið svona vel,“ segir Bragi sem sagðist reyndar í upphafi ætla að gefa þessu þrjá mánuði, fram að jólum, „svona til að venja fólk við“. Gat sjaldnast sungið fyrir hádegi Hann segir misskilning að þetta sé einhver meinlætalifnaður. „Fólk lítur á þetta þannig að ég sé að fórna einhverju með því að borða öðruvísi en áður. En ég skildi ekki hvað það var að breyta um lífsstíl fyrr en ég raunverulega gerði það. Það þýðir að mig langar ekki að vera eins og ég var. Ég tapaði fullt af vigt og svo hefur mér aldrei liðið svona vel. Ég var veikur kannski sjö, átta sinnum á ári, alltaf með einhverja kvefdrullu. Núna vakna ég og er bara til í slaginn. Það var ekki sjálfsagt fyrir mig að fara á æfingu klukkan tíu og byrja að syngja. Það var stressvaldur þegar ég var í skóla. Röddin var bara ekki endi- lega komin fyrir hádegi.“ Hann er enginn öfgamaður í þessu. „Reglan er að ég fæ mér bara það sem mig langar í. En punkturinn er að mig langar ekkert í það sem ég var að borða. Mig langar af og til í ost eða ís og þá læt ég það eftir mér. Mér finnst það heil- brigðara en að neita mér um. Þetta er auðvitað einstaklingsbundið en þetta virkaði fyrir mig,“ segir Bragi og bætir við að fólk hafi vorkennt honum í fyrstu því hann væri svo mikill mataráhugamaður. „En ég hef aldrei á ævinni fundið eins fjölbreytt bragð af mat,“ segir maðurinn sem fyrir lífsstílbreytinguna fannst grænmeti aðeins vera meðlæti. „Ég veit ekki um neitt betra en græn- meti og hlakka til að borða. Ég er jafnvel meiri mataráhugamaður en áður.“ Breytti um lífsstíl

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.