SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Page 30

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Page 30
30 19. ágúst 2012 H vað þýðir sá titringur innan Vinstri grænna, sem birtzt hefur að undanförnu, aðal- lega í fréttum RÚV og á síðum Morgunblaðsins vegna aðildarumsókn- arinnar að Evrópusambandinu? Það eru meiri líkur en minni á því að nánast samhljóma umsagnir ráðherranna tveggja, Katrínar Jakobsdóttur, sem jafn- framt er varaformaður VG, og Svandísar Svavarsdóttur, endurspegli einhvers kon- ar umræður í innsta hring flokksins, með- al ráðherra og nánustu samverkamanna þeirra í þingflokki. Það sem styður þessa skoðun er annars vegar, að Árni Þór Sig- urðsson, formaður utanríkismálanefndar, talar í mjög svipuðum dúr og þær tvær og hins vegar að ólíklegt er að þær Katrín og Svandís, sem hafa stutt formann flokks- ins, Steingrím J. Sigfússon, samvizku- samlega, mundu hætta sér út á þennan hála ís, ef þær hefðu ekki beint eða óbeint samþykki formanns flokksins fyrir því. Hvað hafa þau sagt? Þau hafa sagt að eðlilegt væri í ljósi breyttra aðstæðna að viðræður hefjist milli stjórnarflokkanna um stöðuna. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur að vísu svarað því á þann veg, að um ekkert væri að tala en auðvitað er ljóst að forystumenn Samfylkingar geta ekki neit- að að tala við samstarfsflokk sinn í rík- isstjórn um málið. Þess vegna verður að teljast líklegt að á næstu vikum fari fram einhvers konar samtöl milli stjórn- arflokkanna um aðildarumsóknina og stöðu hennar. Hvað getur komið út úr slíkum viðræðum? Það er flóknara mál. Samfylkingin hefur forræði á málinu, þar sem það er vistað í utanríkisráðuneytinu eins og vera ber og eina beina aðkoma Vinstri grænna er í tengslum við makríldeiluna. Hluti VG hefur gert sér vonir um að Steingrímur J. Sigfússon muni nota þá stöðu til þess að sprengja aðildarumsóknina í loft upp, svo að notuð séu sterk orð, með því að standa fast á hagsmunum Íslendinga í makríl- deilunni. Það mundi án frekari aðgerða VG eða Steingríms J. setja keng í aðild- arviðræðurnar, vegna þess að sum aðild- arríki ESB eru æf út af viðhorfi okkar til makrílveiðanna. Þar eru Írar fremstir í flokki og samkvæmt heimildum er ekki ofmælt að írski sjávarútvegsráðherrann sé trylltur í málinu. En einmitt vegna þess hve flókin staðan er innan ESB eru aðrir hópar innan VG þeirrar skoðunar að Steingrímur J. eigi að semja um makrílinn og hafa hugmyndir um að það eigi bara að mætast á miðri leið. Þeir sem þannig hugsa gera sér ekki grein fyrir því, að af hálfu þeirra ríkja innan ESB, sem eiga hagsmuna að gæta er slík lausn ekki til umræðu af því að þau telja, að hún væri of hagstæð Íslendingum en hún mundi þar að auki valda mikilli ólgu hér heima fyrir. En það væri jafnframt mjög vondur kostur frá pólitísku sjónarmiði fyrir Stein- grím J. og VG að gefast bæði upp í við- ræðum við ESB um makrílinn og líka að játa sig sigraðan í viðræðum við Samfylk- inguna um aðildarumsóknina. Hann hefur að vísu sýnt að hann hefur getað teygt flokkinn með sér mjög langt í samskiptum við Samfylkinguna vegna aðildarumsókn- arinnar en nú er komið svo nærri kosn- ingum að þingmenn VG hljóta að vera farnir að huga mjög að stöðu sinni í ein- stökum kjördæmum og hið sama hlýtur að eiga við um virka flokksmenn. Steingrímur J. getur auðvitað ákveðið að láta slag standa og segja við Samfylk- inguna hingað og ekki lengra: aðildar- viðræðunum verður hvort sem er ekki lokið fyrir kosningar og þar af leiðandi engu tapað fyrir ykkur með því að skjóta þeim á frest fram yfir kosningar. Að sumu leyti væri þó sjálfsagt betra fyrir hann að hleypa viðræðunum í loft upp með makrílinn að vopni en í beinni störu- keppni við Samfylkinguna. Gæti þessi staða leitt til haustkosninga? Sagan sýnir að stjórnarflokkar eru alltaf tregir til haustkosninga, þegar horft er fram til þingkosninga að vori. Alþýðu- flokkurinn kom í veg fyrir haustkosningar 1970 og Framsóknarflokkurinn haustið 1977. Hins vegar gæti Steingrímur J. átt ann- an leik, sem yrði til þess að fara mundi um Samfylkinguna. Hann gæti sagt sem svo: ef þið fallizt ekki á að leggja aðildar- viðræðurnar til hliðar með einum eða öðrum hætti mun ég leita eftir því við stjórnarandstöðuna, að hún verji minni- hlutastjórn undir mínu forsæti falli fram að kosningum næsta vor. Slík minni- hlutastjórn mundi í fyrsta umgangi setja aðildarumsóknina ofan í skúffu. Fyrir VG væri þetta góður kostur að því leyti til að Steingrímur J. gæti gefið fleiri þingmönn- um sínum færi á að prófa sig í ráðherra- störfum, sem mundi styrkja þá í sínum kjördæmum fyrir kosningar. Jafnframt mundi forsæti hans í slíkri stjórn undir- strika stöðu hans, sem hins raunverulega forystumanns í íslenzkum þjóðmálum um þessar mundir. Annað mál er hvort Sjálfstæðisflokk- urinn gæti hugsað sér að gefa „komm- unum“ slíkt tækifæri. Rökin fyrir því væru þau að ýmsu væri hægt að fórna til þess að koma aðildarumsókninni út úr myndinni. Að auki gæti Sjálfstæðisflokk- urinn krafizt þess að hafa eitthvað um það að segja hver yrði utanríkisráherra í slíkri stjórn. Þeir menn eru til í röðum VG, sem sjálfstæðismenn gætu treyst fyrir því ráðuneyti. Rétt er að taka fram, að þetta eru eigin hugleiðingar, sem tengjast á engan hátt umræðum meðal stjórnmálamanna. Þær eru hins vegar settar hér fram til að varpa ljósi á þá flóknu stöðu, sem nú er komin upp á hinum pólitíska vettvangi. Og kannski ekki úr vegi að minna á, að árið 1972 hafði forystusveit Sjálfstæð- isflokksins óformlega gefið fyrirheit um að verja minnihlutastjórn Hannibals Valdemarssonar falli, en einn nánasti samstarfsmaður hans þá var Björn Jóns- son, sem lengi var virkur flokksmaður í Sameiningarflokki alþýðu-Sósíal- istaflokki. Hverjir eru valkostir Vinstri grænna? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Forsíða Morgunblaðsins sætti miklum tíðindum áþessum degi fyrir 53 árum en þá birtust í fyrstaskipti símsendar fréttaljósmyndir í dagblaðihérlendis. Myndirnar voru teknar síðdegis dag- inn áður á landsleik Dana og Íslendinga í knattspyrnu á Idrætsparken í Kaupmannahöfn. Landssímastöðin var þarna nýbúin að taka í notkun nýtt og vandað tæki sem gat tekið á móti ljósmyndum símleiðis. Tækið sem fyrir var og stöðin hafði að láni gat aðeins sent myndir en ekki tekið við þeim. Höfðu fréttamyndir fyrir vikið áður verið sendar úr landi, fyrst er sænsku konungshjónin voru stödd hér á landi í opinberri heimsókn. Mikil spenna var í loftinu í herbúðum Morgunblaðsins og Landsímstöðvarinnar kvöldið áður enda loftskeyta- samband ekki verulega gott fram eftir kvöldi. „... það var ekki fyrr en laust fyrir miðnætti í nótt að góð mynd kom í móttakarann, eftir langt og strangt strit þeirra, sem að móttökunni unnu,“ sagði í frétt Morgunblaðins 19. ágúst 1959. Harðsnúið lið stóð vaktina og fagnaði innilega er myndirnar voru í höfn. Úr því að að þessum tímamótum var stefnt hefðu það orðið mikil vonbrigði hefðu mynd- irnar ekki skilað sér í ásættanlegum gæðum. Myndirnar úr landsleiknum á forsíðunni voru tvær og vöktu mikla athygli og lukku enda nýmæli að íslenskur fréttamiðill gæti birt ljósmyndir frá svo nýlegum viðburði á erlendri grundu. Á efri myndinni sést Friðrik Danakon- ungur heilsa upp á leikmenn íslenska liðsins í fylgd Björg- vins Schram, formanns Knattspyrnusambands Íslands. Leikmennirnir á myndinni eru Örn Steinsen (sem kon- ungur er að heilsa), Þórður Jónsson, Sveinn Teitsson og Sveinn Jónsson. Á neðri myndinni hefur Helgi Daníelsson, markvörður íslenska liðsins, hlaupið út og gripið knöttinn. Aðrir á myndinni eru Hreiðar Ársælsson, Árni Njálsson, danski sóknarmaðurinn Ole Madsen og Sveinn Teitsson. Mörgum þótti skemmtilegt að þessar merku ljósmyndir skyldu vera úr landsleik gegn gömlu herraþjóðinni, Dön- um, og ekki spillti fyrir að Ísland náði jafntefli, 1:1. Þóttu það óvænt úrslit. Danir og Íslendingar höfðu mæst sex sinnum á sparkvellinum fram að þessu og þeir fyrrnefndu jafnan haft betur. Sveinn Teitsson skoraði mark Íslands í leiknum, kom liðinu yfir í fyrri hálfleik, eftir undibúning Þórólfs Beck. Það var þó samdóma álit manna að maður leiksins hefði verið Helgi Daníelsson markvörður. „Þetta er bezti markmaður sem ég hef séð,“ sagði Erik Jensen, einn reyndasti leikmaður Dana. Enda þótt Danir réðu ferðinni lengst af var marktæki- færum nokkuð jafnt skipt og fyrirliði Dana, Paul Petersen, hafði á orði við Morgunblaðið eftir leikinn að það hefðu verið erfiðustu mínútur lífs hans þegar Íslendingar skor- uðu og hefði hann vart getað hreyft sig fyrst á eftir. Henning Enoksen, sem jafnaði leikinn og tryggði Dön- um þar með rétt til þátttöku í aðalkeppni Ólympíu- leikanna í Róm árið eftir, var himinlifandi að leik loknum. „Þetta er mikilvægasta mark, sem ég hef skorað – gerði það með mínum síðustu kröftum.“ Dómarinn, sem kom frá Hollandi, hafði líka skoðun á gangi mála. „Ég bjóst við engu af Íslendingum – og varð hissa.“ orri@mbl.is Fyrstu símsendu myndirnar Forsíða Morgunblaðsins 19. ágúst 1959. ’ Mikil spenna var í loftinu í her- búðum Morgunblaðsins og Landssímstöðvarinnar kvöldið áður enda loftskeytasamband ekki verulega gott fram eftir kvöldi. Ríkarður Sumarliðason, fulltrúi á Radíótæknideild símans, Valdemar Einarsson varðstjóri og Karl Eiríksson verkfræð- ingur bíða eftir myndunum góðu. Á þessum degi 19. ágúst 1959

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.