SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Side 33

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Side 33
19. ágúst 2012 33 dæmi um gervigreind eru andlits- skynjun í stafrænum mynda- vélum, sem stillir fókusinn eftir því hvað er langt í næsta andlit og ýmiss konar árekstrabúnaður í bílum sem grípur jafnvel inn þeg- ar stefnir í óefni. „Við erum að leita að almennum aðferðum til að gera vélar sveigjanlegri og leita að möguleikum til að gera fleiri ferla sjálfvirkari.“ Að kenna tölvunni að tala Eitt af rannsóknarverkefnum Kristins, og rannsóknarsvið sem vitvísindamenn telja mikilvægt greindum vélum framtíðarinnar, eru kerfi sem hafa til að bera til- finningu fyrir eigin tilvist og um- hverfi. Slíkt kerfi gæti hugsanlega lært tungumál og myndi því auka sjálfstæði sitt gífurlega. „Við höf- um unnið að því í mörg ár að kenna tölvum að tala en það er langt í land. Þær aðferðir sem við erum að þróa eru enn of einfaldar og slaga ekkert í mannlega færni hvað varðar nám tungumáls,“ segir Kristinn en að hans mati eru miklir hagkvæmir möguleikar fólgnir í því að tölvur geti skilið tungumál betur. „Þetta snýst ekki bara um að breyta hljóði í orð því skilningurinn liggur ekki í orð- unum heldur hvernig við tengjum þau við umhverfið og markmið þess sem talar þau og þar liggur hundurinn grafinn.“ Kristinn hefur þó verið að vinna að þróun öflugra kerfis þar sem tölvan lærir m.a. út frá sýnidæmum. „Við munum sjá verulegar framfarir vegna kerfisins sem er í þróun hjá okkur núna, á næstu árum en það er rétt að skríða núna út úr gervi- greindarsetrinu. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu og telur sex háskóla og fyrirtæki víðsvegar í Evrópu. Hlutverk sumarskólans er meðal annars að kynna niðurstöður þess. Þar sem kerfið og aðferðafræðin sem við höfum þróað er mjög ólíkt því sem aðrir eru að beita og mun það taka að minnsta kosti tvö ár að koma út vísindaefni sem lýsir þessu verkefni í kjölinn,“ segir Kristinn að lokum. Morgunblaðið/Ómar ’ Áhyggj- ur af gervi- greind eru því ástæðulausar að mati Krist- ins Laxveiðimenn hafa margir hverjir verið þungir á brún það semaf er sumri. Veiðin hefur verið mjög treg, árnar vatnslitlar,lítið af laxi og hann smár. „Ég mann ekki eftir þessu svonaslæmu,“ sagði ágætur veiðimaður sem ég hitti í Búðardal og hann hélt áfram. „Ég hef verið hérna í Laxánni nú í ein fjögur ár, þetta hefur aldrei verið svona slappt,“ sagði veiðimaðurinn og hélt áfram að dæla olíu á bílinn sinn. Já, menn eru fljótir að gleyma, við sem stundað höfum laxveiðar í áratugi vitum mætavel að það eru miklar sveiflur í laxveið- inni eins og í öðrum veiðum. Laxveiðar undanfarin ár hafa gengið einstaklega vel. Árið 2008 var metár, en þá veiddust 84.214 laxar, það er gríðarlega mikil veiði ef það er haft í huga að meðalveiðin í íslensk- um ám er líklegast um 46.000 laxar. Í fyrra veiddust 55.706 laxar, 2010 74.961 laxar og árið 2009 var veiðin nánast sú sama eða 74.408 laxar. Í þessu sambandi er rétt að minna á að árið 1990 veiddust að- eins 29.443 laxar, árið 2000, 27.257 laxar. Undanfarin ár hefur laxveiði breyst talsvert hér á landi, farið er að veiða meira á flugu en var gert bara fyrir svona 10 árum, árið 1996 byrjuðu veiðimenn að veiða og sleppa laxi og er sú þróun í sókn. Þá veiðast æ fleiri laxar í svokölluðum hafbeitarám, í því sambandi mætti nefna Rangárnar. Að mörgu er því að hyggja í þessum efnum, en sérfræðingar og vanir veiðimenn eru þó sammála um að það eru skilyrði í hafinu sem hafa úrslitaþýðingu hvað varðar vöxt og viðgang laxins. Í ár er laxinn frekar rýr og smár, þá er talið að veiðin sé líklegast um 40% minni nú en í fyrra. Skilyrði í hafinu hafa því verið laxinum erfið, við bætist svo kalt vor og þurrkar. Þegar veiði er treg ræða veiðimenn það gjarnan sín á milli hverjar séu helstu ástæðurnar fyrir tregari veiði. Meðal þess sem tínt hefur verið til er aukin makrílgengd hér við land. Ekki eru þó neinar vísbendingar um að svo sé enda var frábær lax- veiði hér í fyrra þrátt fyrir ekki minni makrílgengd við strendur landsins er nú er. Hlýindin í sumar og vatnsskortur á auðvitað sinn þátt í tregari veiði. Það er hinsvegar laxinum lífsnauðsynlegt að ganga í árnar, hann brýst því upp árnar þó að vatnslitlar séu. Ef hann kemst alls ekki upp ána bíður hann í ósnum þar til vatn vex í ánni. Ágæt laxveiði hefur oft verið undanfarin ár þó svo að hlýtt hafi verið í veðri og árnar vatnslitlar, í því sambandi mætti nefna síðastliðið sumar. Þá hafa augu manna beinst að netaveiðinni, sem kunnugt er eru engar netaveiðar heimilaðar í sjó hér við land og er því öll laxveiði í net í ferskvatni. Í fyrra veiddust tæplega 8.500 laxar í net, flestir voru veiddir í Þjórsá eða 4.945 laxar. Laxveiðar í net eiga í vissum tilfellum fyllilega rétt á sér, það er að segja ef veiðarnar eru sjálfbærar og ekki er auðvelt að koma við stangaveiðum á svæðinu. Hentugt er því að stunda netaveiðar í Þjórsá, hinsvegar er það vafa- mál hvort rétt sé að stunda netaveiðar í Hvítá – Ölfusá. Allavega væri rétt að leggja ekki net í þessar ár fyrst á veiðitímanum til að gefa stórlaxinum tækifæri að ganga upp árnar. Mikil eftirspurn er eftir villtum laxi í verslunum og á veitingahúsum, brýnt er því að villtur lax sé á markaðnum, það stuðlar meðal annars að því að veiðimenn verða frekar fúsir til að sleppa veiddum laxi aftur í ána. Laxveiði í net hefur verið afar treg það sem af er sumri, það treg að netaveiðibændur hafa hætt veiðum. Það er því bitur staðreynd að það er miklu minna af laxi í ám landsins en undanfarin ár. Við gætum jafnvel átt von á að það yrði treg veiði í íslenskum ám næstu fjögur til fimm árin. Við þessu er lítið að gera, svona eru nú duttlungar náttúr- unnar, við þekkjum þetta hvað varðar aðra vinsæla bráð, rjúpuna. Áleitin spurning er hinsvegar hvaða áhrif minnkandi veiði næstu ár muni hafa á sölu veiðileyfa. Veiðileyfi hafa hækkað talsvert í verði á undanförnum árum, veiðileyfasalar hafa boðið ótrúlegar fjárhæðir í bestu árnar, það háar upphæðir að flókið er að átta sig á því hvernig dæmið geti gengið upp. Þá eru byggð íburðarmikil veiðihús sem oft á tíðum er erfitt að sjá hvort nokkur þörf sé fyrir. Lágt gengi krónunnar hefur auðveldað sölu veiðileyfa í íslenskar ár. Horfur eru því á að minnkandi veiði, hækkað gengi krónunnar, lækkandi gengi evrunnar og lítill hagvöxtur í Bandaríkjunum geti orðið til þess að verulega dragi úr sölu veiðileyfa til erlendra veiðimanna. Til lengri tíma litið gæti það orðið til þess að verð á veiðileyfum í betri laxveiðiár landsins ætti eftir að lækka. Leyndardómar laxveiðanna ’ Hentugt er því að stunda neta- veiðar í Þjórsá, hinsvegar er það vafamál hvort rétt sé að stunda netaveiðar í Hvítá – Ölfusá. Lax Sigmar B. Hauksson

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.