SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Side 37

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Side 37
19. ágúst 2012 37 var þennan mánudaginn má heilshugar taka undir þessi orð. Aldrei á lífsleiðinni hefur undirritaður séð jafngæfan hafflöt; Djúpið minnti á yfirborð sundlaugar í logni, þar sem hvítir toppar sjást engir, svo langt sem augað eygir. Það var varla gára á sjónum, hvað þá meira. Enda sagði Siggi, sem var skipper okkar og leiðsögumaður í veiðiferðinni, að hann hefði aldrei verið á stuttermabolnum áður heilan veiðitúr og þekkti vart Djúpið fyrir sjó- inn sem hann reri á að atvinnu. Ekki stóð heldur á veiðinni, margir myndarlegir þorskar dregnir um borð, ásamt einum vænum makríl. Nokkrir ufsar og ein lýsa tóku sömuleiðis en fuglarnir fengu þá bita. Þorskarnir voru hins vegar hafðir með heim í hús, þar sem þeir voru ristir upp um kvöldið, fylltir af kúnst með sítrónusneiðum og ferskum kryddjurtum, vafðir vandlega í álpappír og svo heilgrillaðir í holu. Dýrindis sjávarfang sem hafði auk- inheldur ótvíræðan veiðisjarma á sér, og fyrir bragðið voru bráðinni gerð góð skil um kvöld- ið. Daginn eftir hafði mannskapurinn svo ærnar harðsperrur í herðum og handleggjum. Óðalið við Arngerðareyri Þegar að því kom að halda heim eftir vel heppnaða Vestfjarðaheimsókn blasti við að aka suður eftir Djúpinu heim yfir heiðarnar og loka þannig hringnum. Bæirnir á leiðinni eru vafalaust heimsóknar virði en verða að bíða næstu heimsóknar. Hins vegar var eitt stopp gert á leiðinni, og það fyrir botni Djúpsins. Þar stendur aldurhnigið óðal, þar sem heitir að Arngerðareyri. Þar ólst móðurafi minn, Jón Halldórsson, upp frá fjögurra ára aldri, á jörð sem faðir hans, Halldór Jónsson búfræðingur og bóndi, byggði. Húsið, sem oft er kallað „kastalinn“ vegna ferningslagaðs kögurs á þakbrún, ekki ósvipað gamaldags kastalavegg, ber með sér að hafa verið stæðilegt setur þegar Arngerðareyri var í blóma, miðstöð verslunar og viðskipta, iðandi af athafnalífi og umgangi. Til marks um það er steypt bryggja sem stend- ur frá flæðarmálinu út í Ísafjörðinn. Sú tíð er löngu liðin og hljótt hefur verið kringum óðalið um áratugaskeið, meðan náttúruöflin vinna á húsinu ár frá ári. Hinir drifhvítu vegg- ir sem forðum endurvörpuðu hádegissólinni svo mannfjöldinn fékk nánast ofbirtu af, eru nú máðir að lit og lúnir að lögun; sprungur í veggjum, ryðtaumar og málning sem má muna sinn fífil fegurri eru til marks um að tíminn lætur sér fátt um finnast þó forðum hafi hér verið ys og þys. Hann heldur hjá án þess að líta um öxl og þeir sem ekki halda í við hann, sitja eftir og láta um leið á sjá. En góðu heilli horfir betur við Arngerðareyri ef að líkum lætur því ungt par af erlendu bergi brotið hefur fest kaup á jörðinni með það fyrir augum að gera húseignina upp. Hyggjast þau endurreisa kastalann í upprunalegri mynd með samskonar gluggum og hurðum og áður. Þau eiga ærinn starfa fyrir höndum en gæfan gefi að þeim lukkist ætlunarverið því til mikils er að vinna og margir munu eflaust fagna því að sjá skínandi kastala á ný við Arngerðareyri. Ferðalok Að loknu ferðalagi um Vestfirði togast á gleði yfir öllu því sem undirritaður upplifði, og svo ákveðin gremja að hafa ekki haskað sér fyrr af stað í slíkan túr. En eftirsjá er tímasóun og meira um vert að leggja tímanlega drög að næstu ferð og ákveða hvar niður skuli borið í það skiptið. Af nógu er að taka og næsta víst að valkvíði verði allnokkur, slíkt er úrvalið. Best er þó að maður er víst aldrei „búinn“ með Vestfirðina þó að maður taki svolítið með sér eftir hverja heimsókn. Vestfirðir, sem með rentu mættu nefnast Bestfirðir, eiga feikinóg af áhugaverðum stöðum til að skoða næst, sama hversu rækilega gesturinn bergir af bikar þeirra. Ég hlakka þegar til næstu heimsóknar og eru punktar komnir á blað í minnisbókinni yfir mögulega viðkomustaði þá. Þangað til bið ég að heilsa Vestfjörðum. Djúpið skartaði sínu lygnasta þegar haldið var út á sjóstöng mánudaginn 16. júlí. Hvergi sást hvítur toppur á silkimjúkum hafflet- inum svo langt sem augað eygði til allra átta. Skipstjórinn kvaðst heldur ekki muna annað eins og var þó reynslubolti í róðrinum. Það er fallegt að horfa inn Súgandafjörðinn sem blasir við þegar komið er úr Breiðadals- og Botnsheiðargöngum, en samgöngur á fyrir vestan hafa stórbatnað á undanförnum árum. Landslagið á Vestfjörðum er einkar tilkomumikið og eftir því myndrænt.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.