SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Síða 39

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Síða 39
19. ágúst 2012 39 Gamall vinur minn, saklaus á sál og líkama og sér-deilis alþýðlegur, vissi ei hvaðan á hann stóð veðr-ið í liðinni viku, þar sem hann grandalaus bograðiyfir bláberjalyngi og var við það að fylla sína krús, er undir honum titraði jörðin og til eyrna bárust drunur svo miklar að hann leit upp frá verkinu og sá sér til þó nokkurrar skelfingar að aðvífandi kom hófaljón og gerði sig líklegt til að vaða yfir hrúgaldið. Skepna þessi kom æðandi í átt að honum og undan hófum hennar tættust upp þúfurnar í kraftmiklum stökkum. Sjónarhorn hins varnarlausa og berjatínandi vinar míns var upp undir hestinn og sá hann hvers kyns var, hreðj- ar heldur stórvaxnar hentust til og frá í náranum. Ekki var um að villast, þetta var graðhestur grjótharður og lítt til þess lík- legur að skeyta nokkru um það sem á vegi hans yrði, hann átti jú brýnt erindi við hryssu í látum, sem stödd var þarna í fjarskanum og beið þess að fá í sig böllinn. Með þandar nasir og blindaður af blóðsins þrá, flaug hann yfir allt sem fyrir varð og engu líkara en þarna væri kominn hinn áttfætti og gammvakri Sleipnir Óðins. Ekki var laust við að sjón þessi vekti vott af fortíðarþrá í beygðu brjósti vinar míns, hann fann fyrir sætum söknuði frá þeim árum þeg- ar hann sjálfur óð um sviðið með ólgu í æðum, rekinn áfram af æskuþrótti og friðlaus af hamslausri holdsins reisn. Hann hristi af sér blámann í sálinni og strauk snöggt yfir höfuð hugsandi, ekki tjóaði að liggja í lynginu lamaður. Í ljósi þess hve geyst hann fór yfir, fákurinn, var svigrúm til umhugsunar af skornum skammti fyrir vininn minn berja- bláa, en þó tók hann sér augnablik til að íhuga stöðu sína: Átti hann að liggja sem dauður væri í þeirri veiku von að folinn fótfrái færi hjá án þess að skaða hann, eða átti hann að rísa upp til varnar, baða út öllum öngum, öskra af lífs og sálar kröftum? Heldur þótti honum hláleg sú tilhugsun að finnast hálf- dauður milli þúfna, niðurtroðinn af hófum, líkastur geldum klár með horfið hungur í augum. Hann spratt því upp eins og stálfjöður og ákvað að horfast í augu við gandinn. Eins og títt er um fólk sem telur sig vera að mæta endalok- um sínum, sá vinur minn líf sitt sem í hendingu, og þá kom hún yfir hann eftirsjáin, að hafa ekki nýtt þær til fulls stund- irnar með stúlkunum. Nú var of seint að grípa allar þær gæsir sem gáfust. „Ég hefði átt að liggja hana Línu. Og hví drakk ég ei af kossaþyrstum vörum Viggu? Hvers vegna elti ég ekki uppi augun hennar Ástu sem loguðu af losta?“ Hvinurinn frá hestinum stælta sem þaut framhjá honum fnæsandi, skall á honum. Hann lyppaðist niður líkt og ný- tæmdur lókur og huggaði sig með berjunum bláu og bústnu. Gott ef glitti ekki í tár á hvarmi. Vissulega var hann feginn að vera á lífi, en hann grét öll sín glötuðu tækifæri. Graðhestur í berjamó ’ Með þandar nasir og blindaður af blóðsins þrá. Stigið í vænginn Kristín Heiða khk@mbl.is í röð; fyrst sr. Ólafur Skúlason og síðar sr. Karl Sigurbjörnsson sem sat á biskupsstóli fram á þetta sumar. Fyrir fáum árum hefði líklega þótt nánast fjarstæða að kona yrði nokkru sinni valin biskup. Á út- mánuðum í ár fór hins vegar svo að „öll vötn féllu til Dýrafjarðar“ og á vettvangi þjóðkirkjunnar var stemning fyrir því að kjósa konu. Fór svo að í embættið var kjörinn prestur Bolvíkinga, sr. Agnes M. Sig- urðardóttir. Hún er dóttir Margrétar Hagalínsdóttur og Sigurðar Kristjánssonar Ísafjarðarprests sem bjuggu – vel að merkja – á Pól- götu 10. Þar er æskuheimili Agnesar. Hvar annars staðar? Pétur Sigurgeirsson sigraði Ólaf Skúlason í umdeildum bisk- upskosningum. Fljótlega féll þó allt í ljúfa löð og sr. Pétur sigldi lygn- an sjó sem andlegur og veraldlegur leiðtogi þjóðkirkjunnar. Markaði ef til vill engin kaflaskil í sögu kirkju og kristni en komst vel frá sínu. Í viðtali við kirkjuritið Víðförla við starfslok sagðist hann hafa lagt áherslu á hlutverk kirkjunnar sem friðarhreyfingar, m.a. á þann veg að fólk kæmist af hvað við annað. Og þótt Pétur hefði látið af embætti lét hann til sín heyra fram undir það síðasta. Í nóvember 2008, fáum vikum eftir hrun, skrifaði hann grein í Morgunblaðið og gerði krepp- una að umfjöllunarefni: „Sé leitað að rótum hennar kemur kapítalisminn fyrst til greina. Peningarnir geta aldrei orðið takmark í sjálfu sér. Þá er hættan á næsta leiti að þeir verði að fíkn. Þetta er önnur neikvæða opinber- unin. Hver er þá hin jákvæða? Það er kristindómurinn. Það er þessi röð orðanna: mitt er þitt, það er að segja kristindómurinn. Eftir því sem meir er hugsað um núverandi ástand … er þar eina vonin til lausnar, sagði Pétur sem lést sumarið 2010. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ Það er að segja kristindóm- urinn. Eftir því sem meir er hugsað um núverandi ástand … er þar eina vonin til lausnar Agnes M. Sigurðardóttir hafi verið tekið á móti henni í bænum þó það hafi tekið tíma fyrir hana og Johnson að ná saman en sú síðarnefnda var ekki vön því að þurfa að deila athygli þjálfara síns mikið. Hún hefur mikla líkamlega hæfileika og hefur verið nefnd „fljúgandi íkorninn“ en til að ná ár- angri á heimsvísu þarf að þjálfa andlegu hliðina líka. Á því sviði hefur Chow unnið mikið með henni, að auka andlegt úthald og styrk. „Hún sannaði það í dag að hún þolir þvílíka pressu,“ sagði Chow eftir að nemandi hans hafði betur í baráttunni við þær rússnesku Victoriu Ko- movu og Aliyu Mustafinu í fjölþrautinni. Douglas mætti í sjónvarpsviðtal hjá Jay Leno í vikunni og játaði þar að hún hefði fagnað sigrinum með því að fá sér skyndibita. Forsetafrúin Michelle Obama var einnig gestur þáttarins. „Þú vinnur gegn mér Gabby,“ sagði hún í léttum dúr en Obama er talskona heilbrigðs lifnaðarháttar. Leno spurði síðar hvort það að vinna gull á Ólympíuleikunum hefði verið eins og hana dreymdi um. „Þetta var allt öðruvísi en ég hélt og þegar ég segi „öðruvísi“ meina ég bara betra. Mér datt til dæmis aldrei í hug að ég yrði í þætti með forsetafrúnni eða þér, Jay.“ Framundan er líka viðtal við Opruh Winfrey og hún er komin á forsíðu tímaritsins People þannig að frægðarsól hennar skín skært eftir leikana. Nú þegar meðalaldur keppenda í fimleikum á Ólympíuleikunum fer hækkandi má vona að Gabby komi sterk til leiks á leikunum í Ríó í Brasilíu árið 2016. Gabby á fljúgandi siglingu á Ólympíuleikunum í London. AFP ’ Þetta var allt öðruvísi en ég hélt og þegar ég segi „öðru- vísi“ meina ég bara betra. Yfirmaður í bandaríska sjóhern- um ætlaði sér að fara heldur óvenjulega leið til að losna út úr framhjáhaldi sínu og sviðsetti dauða sinn til að losna úr sam- bandinu. Maðurinn, sem er 43 ára og giftur með börn kynntist 23 ára konu í gegnum stefnu- mótasíðu í október síðast- liðnum. Maðurinn sagði henni að hann væri skilinn og ynni við leynileg sérverkefni. Í júlí fékk ástkonan síðan tölvupóst frá „Bob“ sem sagði að því miður væri maðurinn „farinn“ og „allt hefði verið gert að bjarga honum“ en hann gæti ekki sagt meir. Konan varð auðvitað algjörlega miður sín, fór heim til hans og komst þá að því að fyrrverandi elskhugi hennar væri sprelllifandi. Hann var bara fluttur til Connecticut þar sem hann var orðinn yf- irmaður á kafbáti. Þetta endaði illa fyrir manninn sem missti í kjölfarið vinnuna, vegna „skorts á trausti“. Sviðsetti dauða sinn Maðurinn þurfti að hætta í hernum. Komið hefur í ljós að ónotuð neð- anjarðarlestargöng, sem Mussolini fyrirskipaði að yrðu byggð á fjórða áratugnum í Róm, voru notuð til að rækta kannabisplöntur. Lögreglan komst á snoðir um þessa ólöglegu framleiðslu þegar lögregluþjónn fann lyktina berast úr innganginum. Meirihluti ganganna var notaður til að rækta löglega sveppi en innst leyndust kannabis- plöturnar. Þetta er einhver stærsti kannabisfundur Ítal- íu en lögreglan lagði hald á um 340 kíló af efninu. Sannkölluð neðanjarðarstarfsemi

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.