Morgunblaðið - 22.09.2012, Page 1

Morgunblaðið - 22.09.2012, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 2. S E P T E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  222. tölublað  100. árgangur  STÓRMENNI MEÐ GULLHJARTA ÞAKKLÁT FYRIR TÆKIFÆRIN Á SAMA TÍMA, MEÐ TÁRI NÝR SUNNUDAGUR Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Við erum að vinna í því að koma í veg fyrir að hér skapist eitthvert hættu- ástand eða að öryggi sjúklinga sé stefnt í hættu. Það hefur verið skorið mikið niður á undanförnum árum. Alls hefur spítalinn skorið samtals niður um 32 milljarða frá 2007,“ segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans. Í ályktun fundar Læknafélags Reykjavíkur og Félags almennra lækna er lýst áhyggjum af versnandi ástandi á spítalanum og í heilbrigðis- þjónustunni. Talað er um vaxandi álag, erfiðar vinnuaðstæður og van- mat á störfum fagfólks. Niðurskurðurinn hefur enn sem komið er ekki komið niður á öryggi sjúklinga að mati Björns og þakkar hann það samhent verk allra starfs- manna spítalans á þessum tíma. „Það hefur þurft að fækka starfsfólki úr 5.200 niður í 4.500 á þessum tíma en okkur hefur samt tekist að halda í jafn marga sérfræðilækna og hjúkrunarfræðinga og var árið 2007,“ segir Björn. Hann tekur fram að verði ekki fljótlega hugað að tækjakaupum fyrir spítalann geti stefnt í vont ástand. „Við fáum 262 milljónir til kaupa á tækjum á sam- kvæmt fjárlagafrumvarpinu eins og það liggur fyrir nú en þurfum minnst 860 milljónir. Ég geri mér vonir um að við fáum meiri fjármuni til tækja- kaupa eftir umfjöllun um málið í fjár- laganefnd Alþingis.“ Björn segir komið að þolmörkum spítalans bæði hvað varði niðurskurð og þörfina á endurnýjun tækja- búnaðar . Komið að þolmörkum  Unnið að því að koma í veg fyrir hættuástand  Starfsmönnum fækkað um 700 Björn Zoëga Jafndægur á hausti eru í dag en þá er sólin beint yfir miðbaug jarðar og dagurinn um það bil jafnlangur nóttunni alls staðar á hnettinum. Það var fallegt á Þingvöllum þegar myndin var tekin en þess er stutt að bíða að myrkrið nái yfirhöndinni og styttist dagurinn nú um 6-7 mínútur á sólarhring. Á vetrarsólstöðum fer daginn svo aftur að lengja og tek- ur hann völdin á ný eftir vorjafndægur. Morgunblaðið/Ómar Dagurinn lætur undan síga „Tilfellið er að um leið og maður fer að skoða sögu Veru Hertzsch þá er Halldór [Lax- ness] alltaf nálæg- ur,“ segir Jón Ólafsson heim- spekingur en hann hefur rannsakað líf Veru í Gúlaginu og komið höndum yfir ýmsar frumheimildir um fanga- búðavist hennar í Sovétríkjunum á árunum 1938-1943. Bók Jóns um Veru Hertzsch, barnsmóður Benjamíns Eiríkssonar hagfræðings, kemur út innan nokk- urra vikna. Vera varð goðsögn í menningarlífi þjóðarinnar þegar Halldór Laxness skrifaði kafla um hana í Skáldatíma árið 1963 en hann var gestkomandi á heimili hennar þegar hún var tekin hönd- um en með henni í Gúlagið hvarf dóttir hennar, Erla Sólveig, fædd í mars 1937. Skrif Halldórs vöktu mikla at- hygli á sínum tíma og var hann bæði gagnrýndur og afsakaður fyr- ir áframhaldandi lofskrif um Sovét- ríkin eftir þennan atburð. Jón er í viðtali í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um bók sína og frændsystkinin Árný og Benjamín Árnason segja frá því hvernig þau upplifðu afa sinn og fortíð hans. julia@mbl.is „Halldór er alltaf nálægur“  Ný bók um afdrif Veru Hertzsch Jón Ólafsson Kynslóðir vinna saman að sláturgerð  Vaxandi áhugi virðist vera á slát- urgerð meðal landsmanna. Bjarni F. Jóhannesson, rekstrarstjóri Nóa- túns, segir áberandi að yngra fólkið komi með stuðningsaðila í slátur- kaupin. „Eldra fólkið sem kann handtökin er flutt yfir heiðar til að taka sér sláturgerð fyrir hendur og miðla þekkingunni til þeirra sem yngri eru,“ segir Bjarni. »6  Læknir sem er að gera rann- sókn á misnotk- un á metýlfeni- datlyfjum, sem notuð eru gegn ADHD, hefur komist að raun um að nokkuð af þessum lyfjum kemur beint á svarta markaðinn frá útlöndum, m.a. hafa menn séð pólskar lyfja- umbúðir. Páll Matthíasson, fram- kvæmdastjóri geðsviðs Landspít- alans, segir að þessi staðreynd hafi komið mönnum töluvert á óvart. »12 Beint frá útlöndum á svarta markaðinn Áframhaldandi myntsamstarf á evrusvæðinu útheimtir frekari samþættingu í efnahagsstjórn evruríkjanna með aðferðum sem ekki hefðu komið til greina þegar evran fór af stað. Þetta segir Yves-Thibault de Silguy, einn af feðrum evrunnar, í samtali við Morgunblaðið í dag en hann rekur þar hvernig evruríkin hafi ekki fylgt fyrirmælum um að- hald í ríkisfjármálum. Afleiðingin hafi verið sú að þegar harðna tók á dalnum í fjármála- kreppunni 2008 hafi ríki, sem höfðu lengi tekið mið af vaxtastigi í Þýska- landi, staðið berskjölduð frammi fyr- ir lausafjárþurrð á mörkuðum. De Silguy telur evruna einu lausn- ina. „Við eigum engra annarra kosta völ en að halda áfram með evruna … Þetta er spurning um hvort álfan kemst af.“ »20 Framtíð Evrópu sögð í húfi De Silguy  Rekstrarkostnaður slitastjórnar Glitnis nam tæpum fjórum millj- örðum fyrstu sex mánuði ársins, en á öllu síðasta ári var hann 5,4 milljarðar. Að öðru óbreyttu stefnir í að rekstrarkostnaður slita- stjórnarinnar aukist um 50% milli ára og verði hátt í átta milljarðar. Steinunn Guðbjartsdóttir, for- maður slitastjórnar, segir skýr- inguna vera aukinn erlendan sérfræðikostnað. »26 Rekstrarkostnaður stefnir í 8 milljarða Hulda Gunnlaugsdóttir, fram- kvæmdastjóri Ahus-spítalans í Nor- egi, hefur beðið sjúklinga sem dvöldu á spítalanum árið 2011 afsök- unar á skaða sem hlaust af mann- eklu sem varð vegna samruna spítala áður en hún tók til starfa þar. Læknar og hjúkrunarstarfsfólk höfðu ítrekað kvartað yfir manneklu en heilbrigðisráðherrann, Anne-Grete Strøm-Erichsen, sagði ástandið vera í góðu lagi. Hún hefur nú látið af störfum og Jonas Gahr Støre, fyrr- verandi utanríkisráðherra, verður nýr heilbrigðisráðherra. Málið hefur vak- ið mikla athygli í Noregi. Hulda segir málið snúast um ör- yggi sjúklinga og fari svo að heil- brigðisstarfsfólk fari frá Íslandi geti myndast álíka ástand hér á landi þar sem öryggi sjúklinga verði í hættu. „Þegar ég var forstjóri LSH furðaði ég mig á því hvað tækjabún- aður á Íslandi var gamall og spít- alinn háður gjafafé. Þá vinna færri hlutfallslega á LSH en á spítulum í Noregi og vaktirnar eru lengri. Þetta og flótti starfsfólks úr landi dregur úr öryggi sjúklinga,“ segir Hulda. Snýst um öryggi sjúklinga SJÚKLINGAR Í NOREGI BEÐNIR AFSÖKUNAR Hulda Gunnlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.