Morgunblaðið - 22.09.2012, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2012
Morgunblaðið/Golli
Svig Buna í fjöllunum stendur fyrir sínu.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í
Garðabæ, vill snjóframleiðslu í Blá-
fjöllum og jafnvel í Skálafelli. Hann
segir að stjórnarmenn í stjórn
Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
séu jákvæðir í garð snjóframleiðslu
í Bláfjöllum en aukin fjárframlög til
uppbyggingar á skíðasvæðunum
hiksti helst hjá Reykvíkingum.
Í Morgunblaðinu í gær birtist við-
tal við Magnús Árnason, fram-
kvæmdastjóra Skíðasvæðanna, þar
sem hann segir m.a. að taka þurfi
pólitíska ákvörðun um framtíð Blá-
fjallasvæðisins og Skálafells. Gera
þurfi þjónustusamning og leggja
meira fé til rekstrarins. Reykjavík
greiðir um 70% rekstrarframlags-
ins til skíðasvæðanna.
Á síðasta fundi stjórnar Skíða-
svæðanna var lögð fram bókun um
að gerður yrði nýr þjónustusamn-
ingur, samhliða því að samþykkt
fyrir stjórn svæðanna yrði endur-
skoðuð.
Gunnar Einarsson segir að móta
þurfi stefnu til framtíðar, um fjár-
festingu í tækjum og tólum og
hvort koma eigi upp snjófram-
leiðslu. „Mín persónulega skoðun er
sú að við eigum að stefna að því að
framleiða snjó í Bláfjöllum og þess
vegna í Skálafelli, tryggja rekstur-
inn og líta á þetta sem gott innlegg
í almennings- og afreksíþróttir,“
segir hann. Sveitarfélög leggi mik-
ið fé í íþróttir og með því að standa
saman að uppbyggingu skíðasvæð-
anna ætti hún ekki að vera þeim of-
viða.
Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi
Besta flokksins og formaður stjórn-
ar Skíðasvæðanna, segir of snemmt
að segja hversu mikið fjármagn
borgin leggi til skíðasvæðanna,
enda sé fjárhagsáætlun ekki tilbú-
in. Til að hægt sé að verja fé í upp-
byggingu verði það að vera til.
Garðbæingar vilja snjóframleiðslu
Gunnar
Einarsson
Eva
Einarsdóttir
Hikstar helst
hjá Reykvíkingum
Framtalsfrestur
félaga er liðinn
Til forráðamanna hlutafélaga, einkahlutafélaga og annarra
skattskyldra lögaðila um skil á skattframtali 2012
Minnt er á að í október fer fram álagning
opinberra gjalda lögaðila 2012 vegna rekstrarársins 2011.
Þrátt fyrir að framtalsfrestur sé runninn út eru
þau félög sem enn eiga eftir að skila skattframtali
2012 ásamt ársreikningi hvött til að gera það
hið allra fyrsta.
Skattframtali á alltaf að skila, jafnvel þó að
engin eiginleg atvinnustarfsemi eða rekstur
hafi verið til staðar hjá félaginu á árinu 2011.
Félög eiga jafnframt að skila ársreikningi
til Ársreikningaskrár.
Hægt er að skila skattframtali og ársreikningi
rafrænt á www.skattur.is.
Sími 442 1000 - Opið kl. 9:30-15:30
skattur.is