Morgunblaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vinnuferlið verður rofið á einhvern hátt í dag. Þér tekst að jafna gamalt deilumál og mátt vel við niðurstöðuna una. Slepptu engu tækifæri til að njóta samvista við vini og vandamenn. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er eitthvert valdatafl í gangi í vinnunni svo þér er skapi næst að gefast upp. Komdu böndum á peningamálin og fáðu rétta mynd af ástandinu, hversu slæmt sem það kann að vera. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að koma þér upp dagbók og skipuleggja tíma þinn betur. Gleymdu ekki að þakka þeim sem gera vel við þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er ekki rétt að fötin skapi mann- inn. Þau eru algert aukaatriði. Farðu út á meðal fólks og ræddu málin því þá færðu ferskar hugmyndir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ef einhver hefur hæfileika til að heilla aðra upp úr skónum ert það þú. Þú hefur heppnina með þér í lok mánaðar. Þú munt hugsanlega eignast nýjan vin í dag. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Flest okkar eiga það til að falla í þá gryfju að taka okkar nánustu sem sjálfgefna. Gerðu áætlun fyrr en seinna. Gleymdu ekki að taka mikilvægi hamingjunnar með í reikn- inginn. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ástin blómstrar um þessar mundir. Farðu varlega í akstri, göngu eða hjólreiðum. Þú færð skemmtilega frétt í kvöld. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur náð góðu verklagi og átt að kappkosta að halda því. Reyndu að forðast nöldur og sýndu þínum nánustu hlýju og tillitssemi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt skapandi dag í vændum. Aðstæður eru góðar fyrir andlega áreynslu og stuttar ferðir og/eða samtöl sem eru mannbætandi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Láttu ekki smáatriðin fara í taug- arnar á þér. Þú nýtur lista, kvikmynda eða skapandi viðfangsefna í botn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert mjög hænd/ur að vissri manneskju, en sambandið hefur breyst. Kannski þarftu að skipta um umhverfi til þess að fá meira súrefnisflæði um heilann. 19. feb. - 20. mars Fiskar Alls kyns vinir úr fortíðinni hafa látið á sér kræla að undanförnu, sem er dálítið óvenjulegt. Þú ert á réttri hillu í lífinu akkúrat núna. Páll Jónasson, æðarbóndi í Hlíð áLanganesi, hefur sent frá sér lítið kver, Vísnagátur, og gefur þá skýringu í formála að í hverri gátu sé lausnarorðið hið sama í öllum línum en með fjórum mismunandi merkingum: Stjörnumerki á himni há, heiti líka manni á, heyið flytur heim í tótt, í honum barnið sefur rótt. Hér er lausnarorðið vagn, Karls- vagn, sérnafnið Vagn, heyvagn og barnavagn. Hér er önnur gáta: Okkur vísar veginn sá, virðulegur syllu á. Hálsliður það heiti ber, á helgidögum messa fer. Páll er gott limruskáld og hefur gefið út ljóðabókina Hananú, safn af fuglalimrum Þessa kallar hann Útfararræðu Steindepils: Æ, fari í kolsvart og kolandi að kúra hér aleinn og volandi, í frosti og trekki, ég fíla það ekki. Nei þetta er sko alls ekki þolandi. Næstu limrur eru af öðrum toga. Hinn fyrri ber yfirskriftina Blús: Borð mitt er auðara en autt, blóð mitt er dauðara en dautt, og grárra en grátt er geð mitt svo flátt og lífið er snauðara en snautt. Og Hótel Ísland:. Starfslið er færra en fátt og kjötið er smærra en smátt, og hrárra en hrátt og þrárra en þrátt, en verðið – er hærra en hátt. Limran Litlu andarungarnir var ort í upphafi kreppunnar haustið 2008: Þeir ætluðu að halda út á haf og höndla með perlur og raf, en hafið svo blátt er hrekkjótt og flátt og færði þá flesta í kaf. Halldór Blöndal halldorblondal@mbl.is Vísnahorn Hér er lausnarorðið vagn Í klípu „ENGAR ÁHYGGJUR, ÉG STYÐ VIÐ BAKIÐ Á ÞÉR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG HELD AÐ ÆTTJARÐARÁST SÉ AF HINU GÓÐA FYRIR OKKUR, EN EKKI FYRIR FÓLK Í ÖÐRUM LÖNDUM.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ...að sitja saman í rökkrinu. AAAAAAAÁÁÁÁÁÁÁ! ÉG VISSI EKKI RÖDDIN ÞÍN NÆÐI SVONA HÁTT! ÞÚ KLÓRAÐIR MIG! EKKI SKIPTA UM UMRÆÐU- EFNI, KÓR- DRENGUR. HVER ER ÞETTA? ÉG VEIT ÞAÐ EKKI, HANN BAÐ UM AÐ FÁ AÐ FARA FYRSTUR UPP STIGANN. GÓÐAN DAG, HERRA ... ÉG ER KOMINN TIL AÐ TILKYNNA ÞÉR AÐ TRYGGINGAIÐGJALDIÐ MUN HÆKKA UM 500% FRÁ OG MEÐ ÞESSARI STUNDU. Víkverji heillast alltaf jafn mikið affólki sem talar af ástríðu um þá hluti í lífinu sem það fæst við dags daglega. Í starfi Víkverja hittir hann ófáa viðmælendur sem eru uppfullir af ástríðu og eljusemi. x x x Það er alltaf gaman að fá að forvitn-ast um hvað það er sem fær fólk til að fara á fætur á morgnana. Hvaða afl er það sem dregur fólk áfram og fær það jafnvel til að leggja allt í söl- urnar til þess að ná árangri á þeirri braut sem það hefur kosið sér? Af- reksfólk á sínu sviði veitir Víkverja ómældan innblástur. Íþróttafólk og þeir sem fylgja hjartanu og vilja hafa gaman af því sem þeir gera eru verðir eftirbreytni. x x x Ótal lýsingarorð er hægt að finna oggefa þessum einstaklingum greinandi lyndiseinkunn, til þess að hægt sé að komast að sannleikanum um hvað það er sem knýr þá áfram. x x x Kannski er þetta tal lýsandi fyrir þáhugsun sem er einkennandi í okk- ar samfélagi að margir vilja samræma ástríðu sína, hæfileika og síðast en ekki síst skemmtanagildið og setja samasemmerki við vinnu. x x x Vinnustaðir eiga að vera skemmti-staðir. Fullyrðing sem er orðin hávær og fylgir líklega yngri kynslóð- inni sem er tiltölulega nýkomin út á vinnumarkaðinn. Allt á að vera gaman – líka vinnan – sem er í sjálfu sér ekki alslæmt. Þetta má rekja til Google- stemningarinnar svokallaðrar, en fyr- irtækið er þekkt fyrir að skapa „al- vöru“ skemmtilegt og skapandi and- rúmsloft og gengur mjög langt í að gleðja starfsmenn sína. Aðrir íslenskir vinnustaðir vilja líkjast Google. Fyr- irtækið Nova hefur gefið það út að það vilji fá rennibrautir og aðra gleðigjafa því vinnustaðurinn eigi að endur- spegla að það sé stærsti skemmti- staður í heimi. Þeir sem munu skoða myndir af hressilegu partíi sem haldið var hér innanhúss í tilefni af nýju sunnudagsblaði geta afsannað kenn- ingu Nova. víkverji@mbl.is Víkverji Hjá Guði einum hlýtur sál mín hvíld því að frá honum kemur von mín. Hann einn er klettur minn og hjálp- ræði, vígi mitt, mér skrikar ekki fótur. (Sálm. 62:6-7) Sérsmíðaðar baðlausnir Speglar • Gler • Hert gler Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar Sandblástur • Álprófílar Máltöku- og uppsetningaþjónusta Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtu-skilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af ljósaspeglunum okkar vinsælu. Á nýrri heimasíðu okkar glerslipun.is er gott yfirlit yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla velkomna í Vatnagarða 12 þar sem fagfólk veitir góða þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf. Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.