Morgunblaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Viðskipti | Atvinnulif MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2012 Það lítur út fyrir að verðbólgan verði búin að éta upp alla þá launahækkun sem varð af 7% kjarasamningsbund- inni hækkun í júní í fyrra, að því er fram kemur í Morgunkorni Grein- ingar Íslandsbanka. Segir þar að ljóst sé að mikill þrýstingur verði á aukna samningsbundna launahækk- un í janúar þegar opnað verður fyrir endurskoðun samninganna þar sem kaupmáttur hefur minnkað nokkuð síðasta árið. Greining Íslandsbanka telur ólík- legt að skilyrði núverandi samninga verði uppfyllt. „Núverandi samn- ingar hljóða upp á 3,25% hækkun launa á fyrsta fjórðungi næsta árs, en sett eru skilyrði um að verðbólga verði við 2,5% markmið Seðlabank- ans, gengi krónu verði u.þ.b. 16% sterkara en raunin er nú og að kaup- máttur hafi aukist yfir þetta ár. Hverfandi líkur eru á að þessi skil- yrði verði uppfyllt um áramótin.“ Samkvæmt launavísitölu Hag- stofu Íslands hafa laun lítið breyst í sumar. Þannig hækkuðu laun um 0,1% í ágúst frá fyrri mánuði. Verðbólgan étur upp launahækkanir Morgunblaðið/Ómar Kaupmáttur Flest bendir til að verðbólgan verði búin að éta upp alla þá launahækkun sem varð af 7% kjarasamningsbundinni hækkun í júní 2011. Líklegt er að verðið á olíu eigi eftir að haldast í kringum 110 Banda- ríkjadali fatið. Þetta kemur fram í greiningu IFS um horfur og þróun á olíumarkaði. Um miðjan júlí skreið olíuverð yf- ir 100 dali fatið eftir að hafa farið í lægsta gildi á árinu 21. júní síðastlið- inn eða 90 dali. IFS bendir á að aðgerðir Seðlabanka Bandaríkjanna um að kaupa skuldabréf til að örva hagvöxt muni leiða til veikingar á gengi Bandaríkjadals og því hækk- unar á olíuverði. Sádi-Arabar hafi einnig gefið út að þeir áformi að auka framleiðslu sína til að lækka olíuverð, en þarlend stjórnvöld telja ásættanlegt verð á fatinu um 110 dali. Spá óbreyttu olíuverði Veiðar á gulllaxi munu leggjast af vegna veiðigjaldsins samkvæmt út- reikningum Þorsteins Péturs Guð- jónssonar, endurskoðanda hjá Delo- itte, en hlutfall veiðigjalds af fram- legð verður 155%. Það mun því kosta útgerðir aukalega 55% að fara á veiðar og landa aflanum, þrátt fyrir að ekki sé tekið mið af fjármagns- kostnaði. Þetta hefur þau áhrif að ekki verður róið eftir þessum verð- mætum, sem myndi draga úr tekjum fyrir þjóðarbúið og tekjuskatti til handa ríkinu. Þorsteinn hélt fyrirlestur á ráð- stefnu Félags löggiltra endurskoð- enda í gær. Hann tók raunhæft dæmi um tilbúið fyrirtæki sem hefði fyrir hækkun veiðigjalds ekki staðið vel, en veiðigjaldið myndi orsaka samningaviðræður við lánardrottna og miklar niðurfærslur skulda. Veiðigjald sem hlutfall af EBITDA færi úr tæplega 6% í tæp 30% og fjárstreymi minnkaði gífurlega. Veiðigjald útrýmir gull- laxveiðum Morgunblaðið/Ómar Gulllax Útreikningar sýna að veið- ar legðust af vegna veiðigjaldsins.  Útgerðir myndu borga með sér WOW air hóf í gær flug til Gat- wick-flugvall- arins, nærri Lundúnum, sem hluti af vetr- aráætlun sinni, en áður hafði fé- lagið flogið til Stansted. Flogið er út á föstudög- um og heim á mánudögum í vetur, en næsta sum- ar verður ferðum fjölgað í átta á viku. Í tilkynningu frá flugfélaginu er sagt að á síðasta ári hafi breskum ferðamönnum sem sæki Ísland heim fjölgað um 12% frá fyrra ári og að flug WOW air muni auka þá þjónustu enn frekar. WOW air flýgur til Gatwick Skúli Mogensen  Fjölgar um 12% Í aðdraganda Vísindavöku er hellt upp á Vísindakaffi þar sem fræðimenn kynna rannsóknir sínar. Markmiðið með Vísindakaffi er að færa vísindin nær fólki og segja frá rannsóknum sem skipta máli fyrir daglegt líf. Vísindakaffin eru haldin á Súfistanum, Máli og menningu Laugavegi, 24., 25., 26. og 27. september kl. 20:00 - 21:30 hvert kvöld. Gestir fá tækifæri til að spyrja og taka þátt í umræðum. Mánudagur 24. september Sýkingar og pestir -- hvað er til ráða? Sigurður Guðmundsson, læknir og prófessor við læknadeild HÍ og Þórólfur Guðnason, barnalæknir og yfirlæknir á sóttvarnasviði Landlæknisembættisins. Smitsjúkdómar eru algengustu sjúkdómar sem manninn hrjá. Flestir eru saklausir og batna fljótt, en aðrir eru erfiðari og hættulegri og geta jafnvel dregið hraustan mann til dauða á fáeinum klukkustundum. Rætt verður um helstu orsakir sýkinga, muninn á bakteríum, veirum og sveppum, algengustu sýkingar og einkenni alvarlegra sýkinga. Fjallað verður um varnir gegn sýkingum, mikilvægi bólusetninga og ferðalög til fjarlægra landa. Jafnframt verður talað um rannsókn á sýkingum á dagheimilum. Þriðjudagur 25. september Jarðskjálftar -- er jörðin að segja okkur eitthvað? Sigríður Kristjánsdóttir, jarðeðlisfræðingur hjá ÍSOR. Hvað er jarðskjálfti? Hvað geta jarðskjálftar sagt okkur um jörðina okkar? Höfum við eitthvað um það að segja hvar eða hvenær jarðskjálfti á sér stað? Eru þeir alltaf óvelkomnir eða eru þeir lykillinn sem opnar okkur dyr að huliðsheimum jarðskorpunnar? Miðvikudagur 26. september Eru jöklarnir að hverfa? Þorsteinn Þorsteinson, jöklafræðingur, Veðurstofu Íslands. Jöklar þekja tíunda hluta landsins og hafa veruleg áhrif á náttúrufar. Þeir geyma mikinn vatnsforða sem fer rýrn- andi með hlýnandi loftslagi. Hve mikil var leysingin í sumar? Hvert er áætlað framlag jöklaleysingar á Íslandi til hækkunar sjávarborðs á þessari öld? Hverjar verða afleiðingar þessara breytinga fyrir vatnsorkunýtingu og samgöngur? Hvernig geta rannsóknir á Íslandi gagnast könnun Mars og ístungla sólkerfisins? Fimmtudagur 27. september Skiptir náttúrufegurð einhverju máli? Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, doktorsnemi í heimspeki við HÍ. Fagurfræðileg gildi vega oft ekki þungt í ákvarðanatöku um vernd og nýtingu náttúru. En á sama tíma virðast fagurfræðileg gildi vera eitt mikilvægasta gildi sem almenningur telur íslenska náttúru búa yfir. Hverskonar hugleiðingar, þekkingu, upplifun, merkingu og gildi skapar reynslan af náttúrufegurð? Hafa viðbrögð við náttúrufegurð einhverjar afleiðingar fyrir siðferðilegt viðhorf manna til náttúrunnar? Skiptir náttúrufegurð einhverju máli fyrir lífsgæði okkar? Er hægt að meta náttúrufegurð?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.