Morgunblaðið - 22.09.2012, Qupperneq 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2012
Það er bara einn Raggi Bjarna og það er sá sem á 78 ára afmælií dag, hinn síungi Ragnar Bjarnason söngvari. „Ég fer austurog borða með fjölskyldunni í tilefni dagsins en þarf reyndar
að skjótast aðeins áður,“ segir hann.
Raggi hefur verið að lengur en elstu menn muna og það er eins og
verkefnunum fjölgi eftir því sem árin verða fleiri. „Ég er alltaf eitt-
hvað að gutla,“ segir hann, en væntanleg er 10 laga plata með hon-
um og öðrum þekktum söngvurum eins og Jóni Jónssyni, Lay Low,
Eivöru Pálsdóttur og Helga Björns. „Þetta er þrælskemmtileg plata
með mér og unga fólkinu,“ segir Raggi.
„Annars er ég bara að skemmta,“ heldur Raggi áfram en hann
verður meðal annars heiðursgestur á Minningartónleikum um Elly
Vilhjálms í Laugardalshöll í október. En hann kemur ekki aðeins
fram á tónleikum heldur er eftirsóttur í afmælisveislum, brúð-
kaupum og á öðrum mannamótum. „Ég skemmti öllum aldurs-
flokkum, alveg niður í skólana og upp í elliheimilin og öllu þar á
milli.“ Hann bætir við að þetta gangi eins vel og raun ber vitni
vegna þess að hann hafi svo gaman af þessu sjálfur. „Fólk finnur
það að ég hef jafngaman af þessu og þegar ég byrjaði fyrir 60 árum
eða svo.“ Hann er löngu hættur að keyra leigubíl en einkunnarorðin
hafa ekki breyst. „Ef fólk vill fá mig þá hringir það bara og ég kem,
rétt eins og taxi.“ steinthor@mbl.is
Ragnar Bjarnason söngvari 78 ára
Morgunblaðið/Ómar
Gleðigjafi Það hefur geislað af Ragga Bjarna í áratugi og gerir enn.
Bara hringja og
Raggi mætir
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Akureyri Juan Davíð fæddist 6. des-
ember kl. 14.20. Hann vó 3.350 g og
var 50 cm langur. Foreldrar hans eru
Juana Patricia Durand Arana og
Ruddy Wesley Durand Rojas.
Nýr borgari
H
jálmar fæddist á Ísa-
firði og ólst þar upp,
var í sveit hjá frænd-
fólki í Mývatnssveit,
hóf píanónám hjá
föður sínum sex ára, og kom fram á
ótal tónleikum í bænum.
Hjálmar lauk stúdentsprófi frá
MR 1972, stundaði nám við Tónlist-
arskólann í Reykjavík þar sem aðal-
kennari hans var Árni Kristjánsson
píanóleikari, stundaði nám í píanó-
leik, tónfræði og tónsmíðum við
Brandeis-háskólann í Boston og
lauk þaðan BA-prófi 1974, stundaði
rannsóknir og tilraunir í raf- og
tölvutónlist við Háskólann í Utrecht
1976-77, og lauk MFA-prófi í tón-
fræðum og tónsmíðum við Cornell-
háskóla í Íþöku í New York fylki
1980.
Hjálmar var kórstjóri og kenndi
við Tónlistarskólann á Ísafirði ogMÍ
1974-76, var kennari við Tónlistar-
skólann í Reykjavík 1980-88, söng-
stjóri Háskólakórsins 1980-83 og
kennari við Tónmenntaskóla
Reykjavíkur 1981-1982, var ráðinn
fyrsti rektor Listaháskólans við
stofnun hans haustið 1998 og hefur
sinnt þeirri uppbyggingu síðan.
Nokkur tónverka Hjálmars
Hjálmar hefur samið fjölda tón-
verka, m.a. tónlist fyrir leiksýn-
ingar og kvikmyndir og unnið með
fjölda kóra og sönghópa. Meðal
helstu verka hans má nefna Spjóta-
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands – 60 ára
Morgunblaðið/Golli
Hjón í menningargeiranum Hjálmar Ragnarsson og Ása Richardsdóttir í Borgarleikhúsinu árið 2007.
Tónskáld með skilning
á afstæðiskenningunni
Með börnunum Talið frá vinstri: Nína Sigríður, Snorri, Hjálmar, Ragnar.
Frú Þorbjörg
Ólafsdóttir frá
Króki í Selárdal í
Arnarfirði fagnar
níutíu ára afmæli
sínu í dag, 22.
september. Hún
bjó lengst af með
eiginmanni sínum, Sigurði heitnum
Bergssyni, í Hólabergi 22 í Reykjavík.
Þorbjörg verður að heiman á afmæl-
inu og fagnar deginum með börnum
sínum og öðrum afkomendum.
Árnað heilla
90 ára
Stefán Ólafur
Jónsson, fyrrver-
andi kennari við
Laugarnesskóla í
Reykjavík og deild-
arstjóri í mennta-
málaráðuneytinu,
er níræður á
morgun, 23. september. Eiginkona
hans er Elín Vilmundardóttir. Stefán
Ólafur tekur á móti gestum í safn-
aðarheimili Háteigskirkju milli kl. 15
og 18 á afmælisdaginn.
90 ára
Guðmundur Ingi
Guðjónsson, Eyr-
arbakka, vegtækn-
ir hjá Vegagerð-
inni, verður
sjötugur mánu-
daginn 24. sept-
ember næstkom-
andi. Í tilefni þess
ætlar hann og fjölskylda hans að hafa
opið hús í dag, 22. september frá kl. 18
í samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka
og vonast til að sjá sem flesta.
70 ára
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
18
16
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
LÁTTU FAGMENN
META GULLIÐ
Sérstaða okkar hjá Jóni og Óskari er sú að við höfum keypt og selt
gull í 41 ár og búum því yfir mikilli þekkingu, reynslu og fagmennsku
á þessu sviði.
Við kaupum til endurvinnslu allar tegundir af gullskartgripum, gamla
og nýja, gullúr, tanngull, gullpeninga, hvers kyns silfur og demanta í betri
skartgripagæðum.
Við bjóðum gott og alþjóðlega samkeppnishæft verð fyrir gripina og
framleiðum úr öllu gulli sem við kaupum. Þannig spörum við gjaldeyri.
Komdu til okkar á Laugaveg 61 og leyfðu okkur að veita þér faglega
ráðgjöf sem tryggir að þú færð rétta greiningu á þínum verðmætum.
Það skiptir mestu máli.
Við staðgreiðum allt gull en áskiljum okkur rétt til að biðja um persónuskilríki.
Aðeins í verslun okkar að Laugavegi 61, virka daga milli kl. 10–18.
Góð séraðstaða þar sem gull er metið í ró og næði.