Morgunblaðið - 22.09.2012, Síða 51

Morgunblaðið - 22.09.2012, Síða 51
lög og Í Svarthvítu fyrir hljómsveit; Konzert fyrir orgel og hljómsveit; Yfir heiðan morgun, fyrir selló og sinfóníuhljómsveit; kamm- eróperuna Rhodymenia Palmata, við ljóðabálk Halldórs Laxness; raf- tónverkið Nocturne; Messu fyrir blandaðan kór, og balletverkið Rauðan þráð. Af leikhústónlist má nefna tónlist við Pétur Gaut og Cyrano de Berge- rac og af kvikmyndatónlist má nefna tónlistina við Tár úr steini, Sporlaust, og Kaldaljós. Hjálmar var formaður Tón- skáldafélags Íslands 1988-92, for- seti BÍL 1991-98, sat í stjórn STEFs, í stjórn Íslenskrar tón- verkamiðstöðvar 1983-88, í stjórn listamannalauna 2001-2003 og Menningarsjóðs SPRON 1996-2006. Hjálmar hefur verið virkur í bar- áttusamtökum fyrir náttúruvernd, var Borgarlistamaður Reykjavíkur 1988-91, hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu 1996, leiklist- arverðlaun Grímunnar fyrir bestu leikhústónlist 2003, og var heið- urslistamaður Kópavogs 2009. Áhugamál listafrömuðarins koma sannarlega á óvart: „Ég hef óslökkvandi áhuga á eðlisfræði, stjörnufræði og heimsmyndarfræði, sögu raunvísinda, eðli og aðferðum. Ég ásetti mér að skilja afstæð- iskenninguna áður en ég yrði 60 ára og er langt kominn með það.“ Fjölskylda Eiginkona Hjálmars er Ása Rich- ardsdóttir, f. 19.8. 1964, fyrrv. fram- kvæmdastjóri Íslenska dansflokks- ins og forseti Leiklistarsambands Íslands. Sonur Hjálmars og Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur, er Ragn- ar, f. 18.9. 1978, skrifstofustjóri Al- þjóða gjaldeyrissjóðsins á Íslandi en kona hans er Sara Öldu- og Sig- urbjörnsdóttur, við doktorsnám í umhverfisfræðum og eru börn þeirra Hjálmar, f. 2008, og ónefnd dóttir, f. 2012. Börn Hjálmars og Ásu eru Nína Sigríður, f. 26.6. 1992, og Snorri, f. 5.10. 1993. Systkini Hjálmars eru Anna Ás- laug Ragnarsdóttir, f .7.11. 1946, pí- anóleikari, búsett í München í Þýskalandi; Sigríður Ragnarsdóttir, f. 31.10. 1949, skólastjóra Tónlistar- skólans á Ísafirði en maður hennar er Jónas Tómasson tónskáld. Foreldrar Hjálmars voru Ragnar Hjálmarsson Ragnar, f. á Ljóts- stöðum í Laxárdal í Suður- Þingeyjarsýslu 28.9. 1898, d. 24.12. 1987, tónlistarskólastjóri og söng- stjóri á Ísafirði, og k.h., Sigríður Jónsdóttir Ragnar, f. á Gautlöndum í Mývatnssveit, 26.7. 1922, d. 10.3. 1993, kennari. Úr frændgarði Hjálmars Ragnarssonar Hjálmar Ragnarsson Þóra Jónsdóttir frá Grænavatni Jón Gauti Pétursson b. á Gautlöndum Anna Jakobsdóttir húsfr. á Gautlöndum Sigríður Ragnars Jónsdóttir kennari á Ísafirði Sigíður Sigurðardóttir húsfr. á Narfastöðum Jakob Jónasson b. á Narfastöðum Guðlaug Zakaríasdóttir húsfr. í Ólafsdal Torfi Bjarnason skólastj. í Ólafsdal Áslaug Torfadóttir húsfr. á Ljótsstöðum Hjálmar Jónsson b. á Ljótsstöðum Ragnar H. Ragnars skólstj. og kórstj. á Ísafirði Jón Árnason b. á Skútustöðum Þuríður dóttir Helga Ásmundssonar, ættföður Skútustaðaættar Sigurður Jónsson b. og ráðh. á Ystafelli Árni Jónsson prófastur á Skútustöðum Jón Sigurðsson b. og rith. á Ystafelli Jónas Jónsson búnaðarmálastj. Inga Árnadóttir húsfr. í Rvík Þór Vilhjálmsson fyrrv. dómari við Mannréttindadóm- stól Evrópu Auður Eir Vilhjálmsdóttir fyrrv. sóknarpr. Gunnar Árnason sóknarpr. í Kópavogi Torfi Hjálmarsson b. á Halldórsstöðum Magnús Torfason hæstaréttardómari Ragnheiður Torfadóttir húsfr.á Skeljabrekku Torfi Hjartars. sáttasemjari Snorri Hjartars. skáld Hjörtur Torfason fyrrv. hæstaréttard. Ragnheiður Torfadóttir fyrrv. rektor MR Björn Jakobsson stofnandi Íþróttask. á Laugarvatni Hólmfríður Pétursdóttir húsfr. á Arnarvatni Málfríður Sigurðardóttir fyrrv. alþm. Pétur Jónsson ráðh. á Gautlöndum, sonur Jóns Sigurðssonar, alþm. á Gautlöndum Rebekka Jónsdóttir húsfr. í Gufudal Kristján Jónsson ráðh. og háyfirdómari Sigurður Guðmundsson bakaram. á Ísaf. Jón Sigurðsson fyrrv. ráðh. og bankastj. Haraldur Guðmundsson ráðh. ÍSLENDINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2012 Helga Valtýsdóttir leikkonafæddist 22. september 1923í Kaupmannahöfn. For- eldrar hennar voru Valtýr Stefáns- son, ritstjóri Morgunblaðsins, og Kristín Jónsdóttir listmálari. Systir hennar Hulda starfaði sem blaða- maður á Morgunblaðinu. Helga eignaðist fjögur börn með Birni Thors blaðamanni, þau Kjart- an, doktor í jarðfræði, Kristínu förðunarfræðing, Stefán skipulags- arkitekt og Björn tæknimann. Af- komendur hennar eru fjölmargir, er hún til að mynda amma Björns Thors leikara. Helga stundaði nám við Mennta- skólann í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi 1943. Hún lagði stund á leiklistarnám hjá Soffíu Guðlaugs- dóttur leikkonu, sú hafði mikla trú á henni og benti meðal annars Guð- laugi Rósinkranz þjóðleikhússtjóra á hana til að taka að sér vandasamt hlutverk, sem hún gerði og stóð sig með stakri prýði. Eftir það hélt hún til Vesturheims og var við listnám við Kaliforníuháskóla 1943-44. Hún var starfandi leikkona frá 1952, fyrst hjá Leikfélagi Reykja- víkur og var síðar fastráðin hjá Þjóðleikhúsinu frá 1963 til æviloka. Hún var talin meðal mikilhæfustu leikkvenna þann tíma sem hennar naut við. Í Æviminningabók Menn- ingar- og minningarsjóðs kvenna, V (1984), kemst Guðlaugur Rósin- kranz að orði í minningarorðum um Helgu: „Helga var framúrskarandi vönduð, samvizkusöm og kraftmikil leikkona. Hún gæddi hlutverkin hinu sterka svipmóti sínu, innilega sönnu lífi. Mörg hlutverk hennar eru mér minnisstæð, en sérstaklega þó Mutter Courage í samnefndu leikriti Brechts og Marta í „Hver er hræddur við Virginíu Wolf“, sem hún lék af dæmafárri snilld og inn- lifun.“ Helga stjórnaði barnatímum hjá Ríkisútvarpinu ásamt Huldu systur sinni í mörg ár frá 1950. Þá átti hún sæti í stjórn Leikfélags Reykjavík- ur 1960-63, var varaforseti Banda- lags íslenzkra listamanna 1963-65. Helga lést 24. mars 1968. Merkir Íslendingar Helga Valtýsdóttir Laugardagur 90 ára Albert Guðmundsson Ana Filomena T. Jesus Rosário 80 ára Jón Hannes Sigurðsson Steinn Valur Magnússon 75 ára Björn Þorsteinsson Gísli Hjálmar Ólafsson Páll Bjarnason 70 ára Erla Guðmundsdóttir Kristrún Kjartans Óskar Ágústsson 60 ára Benedikt Þór Valsson Björg Jóhannesdóttir Sigurveig Sigurðardóttir Þórður Kristinsson 50 ára Harpa Pétursdóttir Kristinn Hauksson Kristín Kristinsdóttir Þórdís Dröfn Eiðsdóttir Þór Þórsson 40 ára Andrea Oddný Þráinsdóttir Arnar Már Arngrímsson Brynjar Birkisson Guðfinna Jónsdóttir Svala Guðmundsdóttir 30 ára Arnar Dór Hannesson Davíð Sigurðsson Sigríður Geirsdóttir Sunnudagur 90 ára Guðjón Ólafsson Stefán Ólafur Jónsson 80 ára Ásta Torfadóttir Elma Jónatansdóttir Geir Guðnason Guðlaug Hróbjartsdóttir 75 ára Ástvaldur Elísson Viðar Pétursson 70 ára Birgir Örn Birgisson Egill Ólafsson Rannveig Hjaltadóttir Steinn Lárusson 60 ára Einar Hörðdal Jónsson Elín Guðjónsdóttir Guðbjörg Garðarsdóttir Guðmundur Jónsson Inga Erlingsdóttir Rúnar Björgvinsson Þóra Helgadóttir Þór Elís Pálsson 50 ára Birgir Arnar Birgisson Bjarni Guðmundsson Súsanna Ernudóttir Vilhjálmur A. Vilhjálmsson 40 ára Aðalsteinn Ásmundarson Ásdís Ómarsdóttir Einar Marteinn Sigurðsson Helgi Magnús Hilmarsson 30 ára Agnes Kristjánsdóttir Bára Hlín Vignisdóttir Eiður Þorri Þrastarson Stefnir Guðmundsson Þorkell Snæbjörnsson Til hamingju með daginn 50 ára Ingibjörg ólst upp á Borg í Skriðdal, lauk prófum frá Alþýðuskól- anum á Eiðum og hefur starfað við sláturhúsið á Egilsstöðum. Börn: Ragnar Helgi, f. 1985, sölum. og leigubíl- stjóri, og Kristrún Anna, f. 1994, menntaskólanemi. Foreldrar: Ragnar Bjarna- son, f. 1923, d. 2004, bóndi á Borg, og Oddný Kristjánsdóttir, f. 1932, d. 2011, húsfreyja. Ingibjörg Ragnarsdóttir 30 ára Magnús lauk stúdentsprófi frá FS og starfrækir bílaleiguna Blue Car Rental. Maki: Guðrún Sædal Björgvinsdóttir, f. 1984, framkvæmdastjóri. Dætur: Kristín Embla, f. 2006, og Inga Lind, f. 2009. Foreldrar: Þorsteinn Magnússon, f. 1961, form. knattsp.d. Keflavíkur, og Magnea I. Magnúsdóttir, f. 1963, hjá Myllub.sk. Magnús Sverrir Þorsteinsson 30 ára Steinunn ólst upp á Akranesi og lauk ML- prófi í lögfræði við Há- skólann á Bifröst þann 1.9. sl. Maki: Stefán Bjarnarson, f. 1980, sölumaður HHÍ. Börn: Sara Fanney, f. 2009, og Eva Rakel, f. 2011. Foreldrar: Helga Stein- arsdóttir, f. 1953, sjúkra- liði, og Magnús Einarsson, f. 1947, d. 2012, bók- haldsmaður. Steinunn Birna Magnúsdóttir Síðumúla 16 ~ 108 Reykjavík ~ Sími: 580 3900 ~ fastus.is Fastus til framtíðar Bjóðum öflugar og endingargóðar vélar frá Electrolux og Primus. Hafðu samband við söluráðgjafa okkar og við aðstoðum þig við að finna hagkvæmustu lausnina. ÞVOTTAVÉLAR, ÞURRKARAR, STRAU- OG BROTVÉLAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.